Öldrun - 01.02.2001, Blaðsíða 14

Öldrun - 01.02.2001, Blaðsíða 14
14 ÖLDRUN – 19. ÁRG. 1. TBL. 2001 urými fyrir 16. Einungis 4 af þessum hópi vistuðust úr heimahúsi en 7 eftir endurinnlögn á sjúkrahús. Samantekt Flestir þátttakenda höfðu fengið utanaðkomandi aðstoð áður og úrræðin reynd en í mismiklum mæli. Eftir 5 mánuði voru 56 (76%) þátttakenda enn heima. Í flestum tilfellum fengu sjúklingar þá þjónustu sem lagt var upp með við útskrift, þó nokkurs mis- ræmis gæti í magni þeirrar þjónustu sem sótt var um frá sjúkrahúsinu og þeirrar sem var veitt. Sjúkraþjálfun var meira nýtt eftir útskrift en fyrir innlögn Dagspítalinn kom inn sem nýtt úrræði. Dagvistun og félagsstarf aldr- aðra er annaðhvort vannýtt úrræði eða hentar ekki þessum sjúklinga- hópi. Skammtímainnlögn er ekki mik- ið notað úrræði . Hjálpartæki koma oft að góðum notum þegar þau eru komin til not- anda, eru rétt stillt og sjúklingur nýtir sér þau. Í þessum hópi komu 15% hjálpartækja ekki í tilætlaða notkun. Þetta er stórt hlutfall miðað við þá vinnu og kostnað sem er lögð í að sækja um hjálpartæki, fylgjast með umsóknum auk samtala við sjúklinga og aðstandendur varðandi hjálpartækin. Það er augljóst að þörf er á eftirfylgni í einhverri mynd til að fullvíst sé að hjálpartækin komi að gagni. 47% þátttakenda sem áttu um- sókn um vistun á öldrunarheimili höfðu ekki komist að 5 mánuðum frá útskrift. Lokaorð Við sem unnum að þessari könnun teljum að með því að undir- búa útskrift sem allra best megi draga úr endurinnlögn og stuðla að því að einstaklingar geti búið lengur á eigin heimili við sem bestar aðstæður. Það hversu margir voru enn í heimahúsi þrátt fyrir vistunar- mat hlýtur að velta þeirri spurningu upp hvort úrræðin hafi reynst svona vel, hvort álag á aðstandendur sé ásættanlegt, eða hvort þörfin á vist- un skv. vistunarmati hafi verið of- metin. Þörfin á hjúkrunarrýmum á Stór-Reykjavíkursvæðinu er enn til staðar og bið sjúk- linga hefur ekki styst á þeim 2 árum sem eru liðin frá því að þessi könnun var gerð. Þess má í lokin geta að í árslok árið 2000 voru 32 einstaklingar látnir af þessum hópi, 21 bjó enn heima, 19 hafa vistast á hjúkrunar- heimili og 2 í þjónustuhúsnæði. Þeir sem stóðu að gerð þessarar könnunar voru: Karítas Ólafsdóttir sjúkraþjálfari, Sara Hafsteinsdóttir sjúkraþjálfari og Jóna Eggertsdóttir félagsráðgjafi. Auk þeirra tók Fanney Jónsdóttir iðjuþjálfi þátt í gagnasöfnun. Könnunin náði til þeirra sjúklinga sem dvöldu á öldrunarlækninga- deild SHR í Fossvogi og útskrifuðust heim. Gagnasöfnun hófst í febrúar 1997 og lauk í nóvember 1998. Mynd 4. Mynd 5. Úrræði við útskrift, við 4 vikur og eftir 5 mánuði Hjálpartæki per fjölda einstaklinga (n=74) 0 10 20 30 40 50 Áætlað við útskrift 4 vikur eftir útskrift (n=65) 5 mán. frá útskrift (n=56)

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.