Öldrun - 01.02.2001, Blaðsíða 25

Öldrun - 01.02.2001, Blaðsíða 25
25ÖLDRUN – 19. ÁRG. 1. TBL. 2001 sjúklingarnir hafa ýmist verið dagspítalasjúklingar, 5- daga deild eða samfelld innlögn. Árangurinn hefur í flestum tilfellum verið góður, og yfir 90% þeirra sem hafa innritast hafa klárað próg- ramið. Ástæður brottfalls hafa oftast verið alvarleg veikindi sem komið hafa upp meðan á þjálfun hefur staðið, og einungis tveir einstaklingar hafa hætt vegna álags. Að meðaltali hafa sjúklingarnir bætt sig um rúm 15% í úthaldi, og heldur meira í vöðvastyrk. Þessi árangur er mjög góður miðað við aðrar þekktar aðferðir sem notaðar eru við endurhæfingu aldraðra. Haustið 2000 urðu breytingar á starfseminni, þannig að framvindufundir eru nú fjarfundir, þ.s. Ólafur situr í Reykjavík en aðrir meðlimir teymisins í fjarfundastofu FSÍ. Við upphaf og lok hverrar lotu eru allir skoðaðir og metnir af teyminu og öldrunarlækni sem kemur mánaðarlega til Ísafjarðar. Starfsemin hefur til þessa miðast við megin starfs- væði FSÍ, en í raun er ekkert því til fyrirstöðu að taka inn sjúklinga annars staðar af landinu eftir tilvísun lækna. Þriggja ára reynsla af kröftugri endurhæfingu aldr- aðra á Ísafirði hefur sýnt að hægt er að ná verulegum árangri, jafnvel þegar unnið er með mjög veikburða einstaklinga. Aukin færni og styrkur skilar sér í auknum lífsgæðum, og gerir eldri einstaklinga sjálf- stæðari og færa um að búa lengur að sínu, utan stofn- ana.

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.