Nesfréttir - 01.01.2006, Page 20
Stillum upp sigurliði!
Kæri sjálfstæðismaður!
Laugardaginn 4. febrúar
verður prófkjör okkar
sjálfstæðismanna á
Seltjarnarnesi. Verkefni
Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjórn er að treysta
enn frekar þann stöðugleika,
ráðdeild og metnað sem einkennt
hefur stjórn Seltjarnarness og
þjónustu við bæjarbúa.
Ég hvet þig til þess að taka þátt og
leggja þitt af mörkum til þess að stilla
upp öflugum framboðslista fyrir
kosningarnar í vor. Styrkur okkar hefur ávallt
falist í samheldnum og þróttmiklum hópi.
Góð þátttaka í prófkjörinu gefur framboðs-
listanum skýrt umboð til verka á nýju
kjörtímabili og endurspeglar um leið
styrk sjálfstæðismanna í
kosningunum í vor.
Með kærri kveðju,
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri