Nesfréttir - 01.03.2008, Page 12
Vorið 2005 var grenndarkynnt
teikning af fjórbýlishúsi tveggja
hæða með risþaki í staðinn fyrir
lágreist lítið einbýli sem byggingar-
félagið Smári hafði áður keypt fyrir
16 til 17 milljónir kr. við Melabraut
27. Eigendur aðliggjandi eigna mót-
mæltu kröftuglega slíku stórhýsi í
stað gamla hússins. Í eitt ár gerðist
ekkert í málinu, mótmælum íbúa
var ekki einu sinni svarað af bæjar-
yfirvöldum.
Sumarið 2006 fá íbúar við Val-
húsabraut að hluta, Melabraut, Mið-
braut, Vallarbraut og Lindarbraut að
hluta norðan Hæðarbrautar, inn um
bréfalúguna hjá sér auglýsingu um
forkynningu á deiliskipulagi Vestur-
hverfis. Margir á svæðinu höfðu eng-
an áhuga á málinu, aðrir í sumarfríi,
einhverjir skildu ekki út á hvað þetta
gekk og flestir höfðu ekki hugmynd
um að þeir byggju í hverfi sem héti
Vesturhverfi. Íbúar gátu kynnt sér
málið á netinu og bókasafninu og
gert athugasemdir innan mánaðar.
Á svæðinu eru rúmlega 60 lóðir og
eru byggingarnar á þeim mjög mis-
munandi. Í deiliskipulaginu er þeim
úthlutað byggingarleyfi fyrir einni
eða tveimur hæðum, fjölda íbúða
og nýtingarhlutfallið frá 0,3 til 0,5.
Þannig er lóðaeigendum mismunað
innan hverfisins. Í þessari forkynn-
ingu var kynnt þriggja íbúða hús við
Melabraut 27 og töldu nágrannar að
þar með hefði verið tekið tillit til mót-
mæla þeirra og gerðu þeir því ekki
athugasemdir við deiliskipulagið.
Nokkrar athugasemdir voru gerð-
ar við forkynninguna og þá helst
varðandi mismunun á úthlutun dýr-
mæts byggingarréttar.
Í október 2006 var deiliskipulag
Vesturhverfis síðan auglýst nánast
óbreytt frá forkynningunni nema
hvað búið var að úthluta fjórum íbúð-
um á Melabraut 27, fólk þurfti að
fara á bókasafnið eða netið og kynna
sér málið og gera athugasemdir inn-
an mánaðar. Auglýsing þessi virðist
hafa farið framhjá mörgum á svæð-
inu og flestum kringum Melabraut
27 en þrettán gerðu athugasemdir
varðandi byggingarrétt þ.e. þeir sem
fengu minnst úthlutað.
Í júlí 2007 berast svör við athuga-
semdum til þeirra sem mótmæltu
deiliskipulaginu formlega þar segir
meðal annars að stjórnvald megi
mismuna fólki og vilji íbúa svæðisins
hafi verið hafður til hliðsjónar við
gerð deiliskipulagsins. Núverandi
íbúar hverfisins kannast ekki við að
hafa verið spurðir álits um væntan-
legt deiliskipulag enda er komið í ljós
að það var unnið fyrir 10 árum síðan
og má ætla að meira en 50% eigna
hafi skipt um eigendur á síðastliðn-
um 10 árum, einnig er ljóst að verð-
mæti bygginganna hefur margfaldast
á þessum árum og lóðanna mest
sérstaklega þeirra sem hafa fyrir og
fengu úthlutað mestan byggingarrétt-
inn. Áður en svörin frá því í júlí voru
send út var búið að senda deiliskipu-
lagið til Skipulagsstofnunar þar sem
það var samþykkt í lok júlí. 7. ágúst
var síðan gefið út byggingarleyfi fyr-
ir fjórbýlishúsi á tveimur hæðum
með risþaki og tveimur bílskúrum á
Melabraut 27, nánast sama teikning
og nágrannar höfðu hafnað sumar-
ið 2005 nema húsið hafði hækkað á
lóðinni.
Svona fer bæjarstjórn Seltjarnar-
nes að því að hjálpa þeim sem hún
hefur meiri mætur en sínum eigin
bæjarbúum, hver tengsl bæjarstjórn-
arinnar og byggingarfélagsins Smára
í Garðabæ eru, vitum við ekki, en
það er ljóst að þessu félagi átti að
úthluta dýrmætum byggingarrétti í
andstöðu við nágrannana og áttu aðr-
ir íbúar hverfisins að sætta sig við þá
mismunun og brot á jafnræði sem í
deiliskipulaginu felst.
Við Miðbraut eru tvær aðliggj-
andi lóðir við Melabraut 27 þar sem
annarri er úthlutað tvíbýlishúsi, sú
lóð (hús til niðurrifs) var seld fyrir
stuttu á tæpar 50 milljónir, en hin lóð-
in sem norðar er við götuna og ætti
því að vera með sama eða minna
byggingarmagn skv. markmiðum
deiliskipulagsins, kom frá Skipulags-
stofnun sem fjórbýlislóð þó hvergi
hafi það verið kynnt áður en þess má
geta að höfundur deiliskipulagsins.
Valgerður Bjarnadóttir arkitekt og
fyrrverandi formaður Arkitektafélags-
ins, er systir eiganda þeirrar lóðar.
Hvar skyldi þessi stefna í skipu-
lagsmálum hafa verið mörkuð ? Hún
minnir óneitanlega á framgöngu
bæjarstórnar Akureyrar og Kópa-
vogs gagnvart sínum íbúum, mætti
kannski kalla þetta skipulagsfasisma.
Það er líka spurning hvort reglur um
aðal og deiliskipulagsgerð séu svo
ófullkomnar að pólitíkusarnir geti
alltaf snúið út úr þeim fyrir sig og
sína þó það sé í andstöðu við íbúana,
það eru samt alltaf íbúarnir sem hafa
af þessu leiðindi og borga brúsann.
Það er ljóst að bæjarstjórninni er
mjög umhugað að koma þessu fjór-
býlishúsi upp þar sem hún hefur í
tvígang gefið út byggingarleyfi, sem
uppfyllir ekki einu sinni skilmála
deiliskipulagsins sem virðist hafa ver-
ið sett á hverfið svo byggingarfélagið
Smári gæti haft hámarks hagnað af
byggingu hússins.
Deiliskipulag Vesturhverfis er í
kærumeðferð hjá úrskurðarnefnd
skipulags og byggingarmála þar sem
a.m.k 18 stjórnsýslukærur bárust frá
þeim húseigendum sem litlar eða
engar breytingar fá að gera á sínum
eignum skv. deiliskipulaginu. Einnig
hafa eigendur ca. 15 til 20 eigna í
námunda við Melabraut 27 lagt fram
kærur á skipulagið og útgefin bygg-
ingarleyfi frá 7. ágúst og aftur frá 8.
nóvember og krafist stöðvunar fram-
kvæmda þar til úrskurðarnefndin
felli sinn dóm.
Þann 10. janúar 2008 var kveð-
inn upp bráðabirgðaúrskurður hjá
úrskurðarnefnd skipulags- og bygg-
ingarmála þar sem framkvæmdir
voru stöðvaðar á lóðinni nr. 27 við
Melabraut meðan deiliskipulagið er
til meðferðar hjá nefndinni. Gildir
íbúðalýðræði í skipulagsmálum ein-
ungis um sérvalin hverfi á Nesinu?
Er yfirgangur og valdníðsla stefnan í
öðrum hverfum?
12 NES FRÉTTIR
Umhverfisnefnd Seltjarnarnes
hefur samið við Náttúrufræði-
stofu Kópavogs um að fram fari
rannsókn á lífríki Bakkatjarnar.
Bakkatjörn er friðlýst og þekkt
fyrir fjölskrúðugt fuglalíf og mun
rannsóknin m.a. varpa ljósi á
lífskilyrði fuglanna. Lykilþættir í
lífríki og efnabúskap tjarnarinnar
verða athugaðir til að meta núver-
andi og aðsteðjandi álag á vist-
kerfið og hvort nauðsynlegt sé
að grípa til sérstakra ráðstafana
í eða við tjörnina. Að auki verður
hugað að almennu ástandi lífríkis
í Búðatjörn og Daltjörn.
Niðurstöður rannsóknarinnar
eiga m.a. að nýtast við skipulags-
vinnu á Vestursvæði Seltjarnar-
ness. Að auki er það von Umhverf-
isnefndar að rannsóknina megi
nýta til námsefnisgerðar við
Grunnskóla Seltjarnarness, þar
sem börnin fái fróðleik og verk-
efni um sitt nánasta umhverfi.
F.h. Umhverfisnefndar,
Kristín Ólafsdóttir
U M H V E R F I S H O R N I Ð
Rannsókn á lífríki
Bakkatjarnar í sumar
Bæjarstjórn byggingarverktaka
Einar Þorbergsson, Björn Ólafsson, Árný Jakobsdóttir og
Guðrún Rúnarsdóttir íbúar í Vesturhverfi skrifa: