Nesfréttir - 01.12.2014, Blaðsíða 5
Samþykkt hefur verið tillaga
frá stjórnendum Tónlistarskóla
Seltjarnarness um að bæta tón-
listarnemum í skólanum upp þá
kennslu sem þeir urðu af vegna
verkfalls félagsmanna FT í október
og nóvembermánuði sl.
Með því móti verður komið til
móts við þarfir nemenda skólans
hvað nám og námsframvindu
varðar og bættur sá skaði nemenda
sem missir kennslu annars hefði í
för með sér. Stjórnendur skólans
munu ásamt kennurum sjá um
skipulag þessarar kennslu, sem
verður innt af hendi og að fullu
lokið á vorönn 2015. Ekki kemur til
Nes frétt ir 5
Seltjarnarnes bar nýlega
sigur út býtum í viðureign
liðsins gegn Akranesi í sjón-
varpsþættinum Útsvari á
RÚV. Urðu lokatölur 68 - 59,
Seltirningum í vil.
Akranes komst samt sem
áður áfram í næstu umferð sem
stigahæsta tapliðið. Sigurliðið
skipuðu þau Stefán Eiríks-
son, Saga Ómarsdóttir og
Karl Pétur Jónsson.
Seltjarnar-
nes áfram
í Útsvari
Tónlistarnemum
bættur kennslutími
endurgreiðslu skólagjalda vegna
verkfallsins. Bæjarráð fagnar til-
lögu skólastjórnenda um að bæta
nemendum þá tíma sem féllu niður.
JÓLA
TILBOÐ
Desember glaðningur
fyrir viðskiptavini:
Grænn orkudrykkur.
Í BOÐI HÚSSINS
h e i l s a t i l f r a m t í ð a r
Heilsuráðgjöf og heilsumælingar. Opið 10-18, virka daga - Ægisíða 121 - Sími: 551 1717
Full búð af lífrænni næringu,
snyrtivörum og nuddolíum.
Íslensk armbönd og hálsmen.
Gjafapakkningar.
sem gleður
Heilsa er gjöf
Frá útskrift Tónlistarskóla
Seltjarnarness fyrir nokkru.