Nesfréttir - 01.12.2014, Qupperneq 6
6 Nes frétt ir
Þurfum ávallt að vera á tánum
Bæjarfulltrúar minnihlutans,
þ.e. Samfylkingar og Neslista
sátu hjá við atkvæðagreiðslu um
fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið
2015. Árni Einarsson, bæjarfull-
trúi Neslista, tilgreinir í bókun
að fyrir því liggi einkum tvær
ástæður af hans hálfu. Annars
vegar að ekki hafi náðst fram
tillaga minnihlutans um 15%
lækkun leikskólagjalda og hins
vegar að ekkert bóli á ákvörðun
um endurbætur og viðbyggingu
við íþróttamiðstöðina. Nesfréttir
spurðu Árna nánar út í þessa
þætti og fjárhagsáætlunina
almennt.
,,Það eru svo sem engin stórtíðin-
di eða breytingar í þessar áætlun
og um hana er enginn meiriháttar
ágreiningur. Eðlilega er áherslu-
munur í ýmsum málum en almenn
samstaða um grunnþjónustu
bæjarfélagsins og aðhald í rekstri.
Við þurfum samt að tryggja að
hún þjóni þörfum íbúa og tryggi
góðar vinnuaðstæður fyrir starfs-
fólk bæjarins. Áætlunin verður að
endurspegla raunþörf til að reka
þessa þjónustu vel. Málaflokkar
eru almennt í járnum að öðru leyti
en því að launaliðirnir hækka frá
áætlun yfirstandandi árs. Meira
tilfærslur á milli liða og ýmsir kost-
naðarliðir í málaflokkum standa
í stað í krónutölu og lækka því að
raungildi haldist verðþróun svipuð
og verið hefur undanfarið. Bæjar-
fulltrúar koma nú orðið allir að
vinnslu og gerð fjárhagsáætlunar
Seltjarnarnesbæjar og bæjarstjórn
hefur setið fjölmarga vinnufundi
síðastliðnar vikur þar sem farið
hefur verið yfir gögn og forsendur.
Á þessa fundi hafa einnig komið
forstöðumenn sviða og farið yfir og
skýrt einstaka rekstrarliði eftir því
sem óskað hefur verið eftir. Þetta er
vinnulag sem ég tel til fyrirmyndar í
samskiptum meiri- og minnihluta í
bæjarstjórn og stuðlar að vandaðri
og gegnsærri stjórnsýslu.»
Álagningarstuðull
fasteignaskatts lækkaður
til þess að mæta hækkun á
fasteignamati
Samkvæmt áætluninni lækkar
álagningarstuðull fasteignaskatts
úr 0,21% í 0,20%, eða um tæp 5%.
Sú lækkun skilar sér hins vegar
ekki til bæjarbúa sem bein kró-
nutölulækkun, segir Árni, því tekjur
bæjarsjóðs af fasteignagjöldum
aukist um rúmlega 3% frá áætlun
þessa árs. Fasteignagjöldin eru
reiknuð út frá fasteignamati sem
hefur hækkað umtalsvert á milli
ára og því hefði hækkun gjaldanna
orðið umtalsverð hefði stuðullinn
ekki verið lækkaður.
Þú vilt lækka leikskólagjöld?
,,Það er stefna Neslistans að
leikskólagjöld á Seltjarnarnesi
séu með þeim lægstu á höfuðbor-
garsvæðinu, eins og segir í bókun
minni. Ég bendi þar einnig á að
hátt fasteignaverð á Seltjarnarnesi
gerir ungu fjölskyldufólki erfitt
um vik að setjast að í sveitar-
félaginu. Því þarf að koma með
afgerandi og markvissum hætti til
móts við þennan hóp og auðvelda
honum búsetu í bænum, m.a. með
lágum leikskólagjöldum og öðrum
þjónustugjöldum vegna barna og
ungmenna. Það er því ánægjulegt
að tómstundastyrkir skuli hækka,
fara úr 30 þúsundum í 50 þúsund.“
Lögðu til 15% lækkun
,,Bæjarfulltrúar minnihlutans
lögðu til við lokagerð fjárhagsáæt-
lunarinnar að leikskólagjöld yrðu
lækkuð um 15% frá því sem nú er.
Það eru mér mikil vonbrigði að sú
tillaga náði ekki fram að ganga. Ekki
síst í ljósi kosningaloforðs mei-
rihlutans fyrir sveitarstjórnarkos-
ningarnar fyrr á árinu um að lækka
leikskólagjöld um 25%. Það er rau-
nalegt að hefja kjörtímabilið á því
að svíkja það loforð. Í umræðum
á fundi bæjarráðs 20. nóvember
síðastliðinn var opnað á að skoða
lækkun leikskólagjalda þegar
líður á næsta ár. Ég vona að það
gangi eftir.“
Þú gerir í bókun þinni athugasemd
við að ekki sé gert ráð fyrir fram-
kvæmdum við íþróttamiðstöðina?
,,Eins og fram kemur í bókuninni
var samstaða innan bæjarstjórnar
við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið
2013 um að fresta endurbótum og
viðbyggingu við íþróttamiðstöðina
til næsta árs og nota tímann til þess
að undirbúa þá framkvæmd enn
betur. Það var gert. Í fjárhagsáætlun
fyrir árið 2014 var, þrátt fyrir það,
heldur ekki gert ráð fyrir neinum
kostnaði vegna verkefnisins. Sama
staða er enn í fjárhagsáætlun bæja-
rins fyrir árið 2015 og framkvæmdir
við íþróttamiðstöðina ekki á dag-
skrá næstu ár ef marka má þriggja
ára fjárhagsáætlun bæjarins. Þetta
er ein brýnasta framkvæmd sem
býður okkar. Núverandi ástand
er t.d. óviðunandi fyrir fimleika-
deild Gróttu og veldur þeim sem
halda starfinu þar úti miklum van-
dræðum. Ég hef því lagt til með
formlegum tillögum bæði í bæjar-
ráði og bæjarstjórn að sölutekjum
bæjarsjóðs vegna sölu lóðarinnar
að Hrólfsskálamel 1-7 verði varið
til þessa verkefnis í samræmi
við tillögur sem settar eru fram í
skýrslu sem lögð var fram á fundi
bæjarstjórnar þann 25. september
2013. Það er miður að þessu brýna
verkefni skuli enn á ný skotið á frest
og neikvæð skilaboð til þess mikla
fjölda sjálfboðaliða sem heldur uppi
íþróttastarfinu í bænum.“
Minnihlutinn sat einnig
hjá við afgreiðslu þriggja ára
fjárhagsáætlunarinnar?
,,Við bæjarfulltrúar Neslista
og Samfylkingar sátum hjá við
afgreiðslu þriggja ára fjárhagsáæt-
lunar bæjarins með sameiginlegri
bókun. Þar bendum við á mikilvægi
þess að þriggja ára fjárhagsáætlun
bæjarins sé ítarleg og endurspegli
framtíðarsýn og áherslur Selt-
jarnarnesbæjar um þjónustu og
uppbyggingu. Okkur finnst þessi
áætlun ekki standa undir því nafni
heldur sé eingöngu verið að uppfyl-
la lagskyldu og engin tilraun gerð
til að leggja mat á þarfir og þróun
samfélagsins til næstu ára.“
,,Þurfum ávallt að vera á
tánum“
,,Verkefni, þjónusta og skyldur
sveitarfélaga er vissulega að
stórum hluta niðurnjörvuð í
lögum. Þrátt fyrir það er svigrúmið
sem sveitarfélögin hafa í þjónustu
og forgangsröðun umtalsvert.
Kröfur fólks og þarfir breytast.
Því þurfa sveitarfélögin að mæta
og vera ávallt á tánum. Dæmi um
slíka breytingu er aukin umferð
gangandi vegfarenda, aukin not-
kun á almenningssamgöngum og
aukin notkun reiðhjóla, bæði til
samgangna og útivistar. Við hér á
Nesinu þurfum að mæta þessu
t.d. með því að breikka og aðskilja
hjóla- og göngustíga og bæta
aðstöðu hjólreiðafólks við stof-
nanir bæjarins, s.s. með hjólastön-
dum og hjólaskýlum. Ég vona að
þess muni sjást áþreifanleg merki
á næsta ári,“ segir Árni Einarsson
bæjarfulltrúi Neslista.
17 ára reynsla og
þekking í sölu fasteigna ANDRI SIGURÐSSON
Löggiltur fasteignasali
s. 690 3111www.frittsoluverdmat.is
Árni Ein ars son.