Nesfréttir - 01.03.2015, Blaðsíða 18

Nesfréttir - 01.03.2015, Blaðsíða 18
18 Nes ­frétt ir 5.918 kr. á mán. 8.883 kr. á mán. 10.859 kr. á mán. RED RED RED 500 MB GAGNAMAGN 2,5 GB GAGNAMAGN 5 GB GAGNAMAGN RED er vinsælasta áskriftarleið okkar frá upphafi Þúsundir viðskiptavina hafa valið einfaldleika og áhyggjuleysi með því að skipta yfir í Vodafone RED. Á hvaða áskriftarleið ert þú? Vodafone Góð samskipti bæta lífið ÁHYGGJULAUSTÓTAKMARKAÐ EINFALT Öll fjölskyldan í RED Ef einn í fjölskyldunni er í Vodafone RED geta aðrir fullorðnir fjölskyldumeðlimir fengið RED Family á 2.954 kr. á mánuði fyrir hvert númer. Börn og ungmenni undir 18 ára geta fengið RED Young án aukakostnaðar og geta hringt og sent SMS fyrir 0 kr. í alla farsíma og heimasíma á Íslandi. Að auki fylgir 50 MB gagna- magn sem endurnýjast mánaðarlega. Eitt gjald fyrir alla þína notkun Í Vodafone RED notar þú símann eins mikið og þú vilt fyrir fast mánaðargjald. Þú velur áskriftarleið, RED S, RED M og RED L allt eftir því hvað þú þarft mikið gagnamagn. Í ár er því fagnað að öld er liðin frá því að konur á Íslandi fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Konur höfðu reyndar fengið kosningarétt til sveitarstjórna í þéttbýli áður, eða árið 1908, og frá árinu 1882 höfðu ekkjur og ógiftar konur, sem stóðu fyrir búi og höfðu náð 25 ára aldri, kosningarétt í sýslunef- ndir, hreppsnefndir, bæjarstjórnir og á safnaðarfundum. Sama ár og konur fengu kosningar- rétt til sveitarstjórna í þéttbýli, 1908, buðu konur fram lista til bæjarstjórnar Reykjavíkur með góðum árangri. Í fyrstu var kos- ningarréttur kvenna til Alþingis bundinn við 40 ára aldur og skyldi svo lækka um eitt ár á hverju ári þar til kosningaréttur kynjanna yrði loks jafn árið 1931. Árið 1920 var stjórnarskránni hins vegar breytt að nýju og kosningarréttur kvenna færður til jafns við rétt karla. Þá er vert að halda til haga og minnast að við staðfestingu stjór- narskrárbreytingarinnar 19. júní 1915 var ekki aðeins lögfestur kosningaréttur kvenna, heldur einnig hjúa, svo og „kaupstaða- borgara, þurrabúðarmanna og lausamanna“ sem greiddu a.m.k. fjórar krónur í „aukaútsvar“. Fátækt fólk og öðrum háð fékk þar með líka þau mannréttindi sem í kosningaréttinum felast. Þessara merku tímamóta í sögu landsins verður minnst á árinu með ýmsum menningar-, lista- og fræðaviðburðum um allt land, m.a. á Seltjarnarnesi. Margt hefur áunnist Mörgum hindrunum í jafnrétti kvenna, og þar með sjálfsögðum mannréttindum, hefur verið rutt úr vegi á þessum hundrað árum. Lög tryggja almennt jafnan rétt kynjanna, náms- og starfsval er ekki kynskipt í sama mæli og áður og konum í æðstu embættum og áhrifastöðum í samfélaginu fjölgar jafnt og þétt, svo dæmi séu tekin. Þrátt fyrir þessa ánægjulegu þróun og markvisst starf á sviði jafnréttis- mála síðastliðna áratugi hefur samt ekki tekist að koma á fullum launa- jöfnuði karla og kvenna og uppræta óásættanlegan kynbundinn launamun þótt mikilvæg skref hafi verið stigin í þeim efnum á undan- förnum misserum. Enginn óútskýrður launa- munur sé á Seltjarnarnesi Á fundi bæjarstjórnar 15. desember síðastliðinn var samhljóða samþykkt tillaga mín um að fela jafnréttisnefnd að standa fyrir faglegri úttekt á því hvort óútskýrður launamunur sé til staðar hjá Seltjarnarnesbæ, hvort heldur bæjarskrifstofu eða undir- stofnunum. Komi slíkur munur í ljós verði gripið til viðeigandi ráðstafana til þess að uppræta hann svo að í lok árs liggi fyrir með skýrum hætti að körlum og konum í störfum hjá Seltjar- narnesbæ séu greidd jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf. Jafnréttis- nefnd samþykkti á fundi sínum þann 29. janúar síðastliðinn að fela félagsmálastjóra, starfsmannastjóra og mannauðsstjóra bæjarins að hefja undirbúning slíkrar úttektar. Þurfum stöðugt að minna okkur á Kynbundinn l a u n a m u n u r er margþætt vandamál sem orsakast af mörgum sam- verkandi þáttum. Hann er, eins og önnur mannréttindi, mannanna verk en ekki náttúrulögmál, líklega öðru fremur arfleifð gamallar þjóð- félagskipunar og löngu tímabært að hann heyri sögunni til. Tregða hefðarinnar er sterkt afl sem getur tekið langan tíma að yfirvinna. Þar þurfa stjórnvöld, sveitarfélög og ríkisvaldið að ganga á undan með góðu fordæmi og halda mannrétt- indum stöðugt á lofti. Við þurfum m.a. efla jafnréttis- og lýðræðisvi- tund þjóðarinnar með því að sinna markvisst mannréttindafræðslu, þar á meðal jafnréttisfræðslu, á öllum skólastigum. Við þurfum að minna okkur á að jafn réttur og jöfn þátttaka í samfélaginu eru meðal grunnstoða þess að lýðræðislegir stjórnarhættir fái staðist og þróist á æskilegan hátt um ókomin ár. Árni Einarsson bæjarfulltrúi Neslista. Kynbundinn launamunur er óásættanlegur -í tilefni aldarafmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi Árni Ein ars son. Auglýsingasími 511 1188 www.borgarblod.is

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.