Nesfréttir - 01.03.2015, Blaðsíða 17
Nes frétt ir 17
„Við höfum fundið fyrir mikilli
eftirspurn eftir kennsluefni um
fjármál, bæði frá kennurum,
foreldrum og nemendunum
sjálfum. Fjármálavit er liður í að
mæta þessari eftirspurn.” segir
Kristín Lúðvíksdóttir Seltirningur
og verkefnisstjóri Fjármálavits en
verkefnið er á vegum Samtaka
fjármálafyrirtækja og er liður
í að fá unglinga til að byrja
fyrr að hugsa skynsamlega um
fjármál. Nemendur í 10. bekk
í Valhúsaskóla voru heimsóttir
í vikunni.
„Við höfum þróað efnið í
allan vetur en kennslustundin
samanstendur af myndböndum
um fjármál og verkefnum sem
nemendur leysa í kjölfarið,” segir
Kristín. Páll Óskar Hjálmtýsson
er verndari verkefnisins en hann
varð nærri gjaldþrota um þrítugt
og þekkir því mikilvægi þess
vera skynsamur í fjármálum. Í
myndböndunum leikur Seltirnin-
gurinn Andrea Marín, sem lék
Viggu í Fólkinu í blokkinni auk
Arnórs Björnssonar og Óla
Gunnars Gunnarssonar, úr
leikritinu Unglingurinn, sem
sló í gegn í Gaflaraleikhúsinu í
Hafnarfirði í fyrra.
Fjármálavit helst í hendur við
Evrópsku peningavikuna sem
stendur frá 9. til 15. mars en um
20 lönd taka þátt í vikunni auk
Íslands. „Það var ótrúlega gaman
að fylgjast með krökkunum
í Valhúsaskóla. Fréttastofa
RÚV kom í heimsókn og þau
voru ófeimin við að spjalla og
spyrja. Þetta verða fjármálas-
nillingar framtíðarinnar - ég er
ekki í nokkrum vafa um það.”
sagði Kristín að lokum.
Nemendur í Való
fá kynningu á
Fjármálaviti
Kristín Lúðvíksdóttir Seltirningur
og verkefnisstjóri Fjármálavits.
AFMÆLISKÖKUR
ÞARF AÐ PANTA MEÐ
DAGS FYRIRVARA
… Á AFMÆLI Í DAG!
APOTEK ER MEÐ AFMÆLISKÖKUNA
Hjá okkur færðu þessa frábæru afmælisköku. Hún er tilvalinn eftirréttur
fyrir ölskyldur og vinahópa sem hafa gaman saman á Apotekinu.
Gómsæt súkkulaðikaka með súkkulaðimús og hindberjum, hjúpuð
súkkulaðiganache að hætti Axels Þ., Pastry Chef. Kakan er hæfileg
fyrir 6–10 manns og kostar 3.990 kr.
Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.is
Slysvarnardeildin Varðan hefur undan-
farin þrjú ár gefið ungbarnagjafir til
nýbakaðra foreldra á Nesinu og Vesturbæ
Reykjavíkur í gegnum Heilsugæslustöð
Seltjarnarness. Deildin hefur mikið látið að
sér kveða í forvörnum barna og látið gott
af sér leiða.
Í þessum ungbarnapökkum eru
forvarnarbæklingur, öryggisvara, endurskins-
merki, 112 segull og bréf frá Vörðunni með
ýmsum upplýsingum og fróðleik til hinna
nýbökuðu foreldra. Í ár var ákveðið að bæta
við í pakkann fallegum handgerðum snuddu-
böndum sem konur í deildinni hafa búið til.
Við vonumst til að bæði ungabarnið og for-
eldrarnir njóti vel um leið og við óskum for-
eldrunum til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn.
Varðan gefur
ungbarnagjafir
Með vinsemd
Jón Ingvar Jónasson, bæjarverkstjóri