Vestfirðir - 26.11.2015, Qupperneq 13
Iðnaðar-
þurrktæki
Loftræsting
Tilboð
frá kr99.900
Með varmaskipti
Rörablásari
Tilboð
frá kr12.990
100 mm
ísvélar
Þakblásarar Kælar - frystar
Í þakrennur, frostvörn eða
vatnslagnir.
Hitavír Handþurrkari Hljóðlátur
Tilboð
frá kr14.990
Tilboð
frá kr29.990
Tilboð
frá kr29.990
Allar stærðir
Tilboð
frá kr1.450
2100 wött 100 mm
-vélar sem borga sig sjálfar
S:566 6000 ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur
íshúsið 30ára reynsla
198
3 - 2013
viftur.is
-andaðu léttar
Hljóðlátar viftur
Fyrir heimili og hótel
Tilboð
frá kr8.990
Þurrktæki
Tilboð
frá kr49.990
-Er raki í gluggunum?
Kælimiðlar
-Hágæða Freon og Ammoníak
26. Nóvember 2015 13
Kvenfélagið Hvöt í Hnífsdal hélt sinn árlegan markað um síðustu helgi.
Nefndist hann kolaport og basar. Til sölu var alls konar varningur, svo
sem notaður fatnaður, skór og húsbúnaður. Einng var á boðstólum margs
konar heimatilbúið góðgæti, nýbakaðr vöfflur, heitt súkkulaði og kaffi.
Allur ágóði rennur til góðgerðarmála og er markaðurinn aðaltekjuöflun
félagsins. Geysilegur fjöldi kom á markaðinn eins og sjá má af meðfylgj-
andi mynd sem Andrea Gylfadóttir tók.
Framsókn hagur heimilanna
Framsóknarflokkurinn stóð fyrir opnum stjórnmálafundi á Ísa-firði síðasta föstudag. Yfirskrift
fundarins var hagur heimilanna og
losun fjármagnshafta. Benedikt Árna-
son, efnahagsráðgjafi forsætisráðherra
hafði framsögu og rakti aðgerðir til
lækkunar skulda vegna fasteignakaupa
og losun fjármagnshafta. Að framsögu
lokinni sat Gunnar Bragi Sveinsson,
utanríkisráðherra fyrir svörum.
Ólafur Halldórsson spurði ráðherra
um efndir á yfirlýsingu þáverandi Sam-
gönguráðherra Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur, sem gefin var á málþingi
á Tálknafirði sumarið 2013, þess efnis
að byrjað yrði á Dýrafjarðargöngum
árið 2016. Utanríkisráðherra kvaðst
nýlega hafa séð drög að Samgönguá-
ætlun og taldi hætt við að myndi vanta
fé og líklegt að framkvæmdum myndi
seinka til 2017, en sagði að reynt yrði að
tryggja óbreyttan framgang verksins.
Aðspurður um framkvæmdir í Gufu-
dalssveit um Teigsskóg sagði ráðherra
að umhverfismatsferli væri farið af stað
og allir væru að reyna að vanda sig,
en enginn gæti vitað um neitt á þessu
stigi um mögulegar kærur. Gunnar
Bragi sagði að ekki stæði á honum að
endurflytja frumvarp um að lögfesta
veglínuna, en hann hafði ekki trú á því
að það myndi fást samþykkt á Alþingi.
Konráð Eggertsson minnti á bág kjör
ellilífeyrisþega, hækkandi matarskatt
og óviðunandi stöðu Þingeyrarflug-
vallar. Bergur Torfason spurði hvort
ekki væri hægt að taka Teigsskóg
eignarnámi en ráðherra sagði Vega-
gerðina telja það ekki færa leið. Þá
minnti Bergur á ótryggar raflínur á
Vestfjörðum og taldi það öryggisatriði
fyrir Vestfirðinga að fá raflínur í jörð.
Þá var Utanríkisráðherra spurður um
Sýrland, arabíska vorið, viðbrögð við
árásinni á París og frumvarp hansum
að leggja niður Þróunarsamvinnu-
stofnun. Ráðherra svaraði því til að
Frakkar hefði virkjað ákvæði í aðildar-
samningi um Evrópusamningnum sem
kveður á um hernaðaraðstoð þjóða,
arabíska vorið hefði brugðist alls staðar
nema í Túnis og varðandi Þróunar-
samvinnustofnun þá yrðu verkefni
stofnunarinnar flutt inn í Utanríkis-
ráðuneytið. Allir starfsmenn nema for-
stjórinn myndi halda störfum sínum.
Fleiri fyrirspurnir voru bornar fram
um margvísleg málefni.