Fréttablaðið - 29.02.2016, Side 12
Hvað gerði Gylfi?
Gylfi Þór Sigurðsson var að vanda
í byrjunarliði Swansea gegn hans
gömlu félögum í Tottenham, sem
vann leikinn 2-1. Gylfi fékk gott
færi í upphafi leiks en Hugo Lloris
varði glæsilega frá honum.
Stærstu úrslitin Manchester United
vann Arsenal, 3-2, á Old Trafford.
Titilvonir Arsenal dvínuðu, þar
sem Leicester og Tottenham unnu
bæði sína leiki.
Hetjan Leonard
Ulloa skoraði
sigurmark topp-
liðs Leicester
gegn Norwich
á 89. mínútu.
Leicester hefur oft
spilað betur en um helgina en náði
samt að vinna, sem hefur oft verið
einkenni meistaraliða.
Kom á óvart Marcus Rashford, sem
skoraði tvö mörk í sínum fyrsta
aðalliðsleik gegn Mitdjylland fyrir
helgi, skoraði tvö marka Man ches-
ter United gegn Arsenal í sínum
fyrsta deildarleik með félaginu.
Í dag
19.10 Stjarnan - Haukar Sport
19.55 Fiorentina - Napoli Sport 3
21.00 Messan Sport 2
Domino’s-deild kvenna
19.15 Stjarnan - Haukar Ásgarður
MANcHeSTeR ciTy
deiLdARbikARMeiSTARi
Willy caballero var hetja Man-
chester city sem varð enskur
deildabikarmeistari
í gær eftir sigur
á Liverpool í
úrslitaleiknum á
Wembley. Staðan
að loknum venju-
legum leiktíma
og framlengingu var
1-1 en Fernandinho kom city yfir
í leiknum en Philippe coutinho
jafnaði fyrir Liverpool. caballero
varði svo þrjár af fjórum spyrnum
Liverpool í vítaspyrnukeppninni
sem gerði útslagið.
Nýjast
West Ham 1 – 0 Sunderland
Watford 0 – 0 Bournemouth
Leicester 1 – 0 Norwich
Stoke 2 – 1 Aston Villa
Southampton 1 – 2 Chelsea
West Brom 3 – 2 Crystal Palace
Tottenham 2 – 1 Swansea
Man. United 3 – 2 Arsenal
Efst
Leicester 56
Tottenham 54
Arsenal 51
Man. City 47
Man. United 44
Neðst
Swansea 27
Norwich 24
Newcastle 24
Sunderland 23
Aston Villa 16
Enska úrvalsdeildin
Handbolti Valur varð bikarmeistari
karla um helgina og árangurinn var
sögulegur fyrir þjálfarann Óskar
bjarna Óskarsson. Hann vann þar
með sinn fjórða titil sem þjálfari
karlaliðsins og varð um leið sigur-
sælasti þjálfari bikarkeppninnar frá
upphafi.
„Það er alltaf gaman að geta slegið
met eins og þetta og það gefur þessu
smá lit,“ sagði Óskar bjarni í samtali
við Fréttablaðið. „Það er heiður að
ná að vinna fjóra titla. bara að kom-
ast einu sinni í úrslitaleikinn þykir
mörgum gott.“
Valur hafði betur gegn Gróttu í
úrslitaleiknum á laugardag, 25-23,
þar sem góð byrjun í síðari hálfleik
réð miklu. Valsmenn höfðu betur í
hörkuleik gegn Haukum í undanúr-
slitunum á föstudagskvöld, þar sem
tvö efstu lið Olísdeildarinnar mætt-
ust.
Óskar bjarni segir að sér líði vel
í leikjum þar sem allt er undir og
hann njóti spennunnar. Valur tap-
aði fyrir Haukum í tvíframlengdum
undanúrslitaleik bikarkeppninnar
í fyrra en Óskar bjarni segir að það
sé í fyrsta skiptið sem hann tapi í
framlengingu sem þjálfari, svo hann
muni eftir.
„Þegar maður kemst aftur og
aftur í svona aðstæður þá fer manni
að líða vel í þeim. Manni finnst til
dæmis orðið gaman að fara í fram-
lengingu,“ segir hann og bætir við
að þessi titill sé afar sætur.
„Sá nýjasti er alltaf sá sætasti
en það var skemmtilegt að vinna
þennan, bæði fyrir strákana og mig.
Við höfum verið að spila illa á móti
Haukum, bæði í úrslitakeppninni í
fyrra og í deildinni í vetur. Því var
það sérstaklega gaman að vinna þá
í undanúrslitunum.“
Hann segir að það hafi ekki orðið
spennufall hjá hans mönnum eftir
sigurinn á Haukum. Það hafi ein-
faldlega ekki verið tími til þess enda
innan við sólarhringur í úrslitaleik-
inn.
„Gróttumenn eru með afar
skemmtilegt lið og þá ber að varast.
en okkar verkefni snerist um að
vinna Hauka og mæta svo á fullu
í næsta leik, sama hver andstæð-
ingurinn yrði. Við ætluðum ekki að
láta neitt trufla okkur,“ segir Óskar
bjarni.
Valur er fjórum stigum á eftir
toppliði Hauka þegar sex umferðir
eru eftir af deildarkeppninni. Þessi
tvö lið eru langefst í deildinni en í
fyrra náðu Haukar að slá Val úr leik í
úrslitakeppninni, 3-0, eftir að Valur
varð deildarmeistari.
„Við lögðum mikið upp úr því
að verða deildarmeistarar, enda
erfiðast að vinna þann titil. en svo
mættum við hnjaskaðir til leiks
gegn Haukum sem voru á flottum
stað þá og fóru alla leið,“ segir
þjálfarinn.
„Strákarnir fóru mjög svekktir
inn í sumarfríið í fyrra og við ætlum
að gera betur núna. Þeir vildu líka
sanna fyrir sjálfum sér um helgina
að þeir væru sigurvegarar – að þeir
myndu ekki bregðast þegar á reynir.
Það tókst. Við fórum erfiða leið að
titlinum – til eyja í 8-liða úrslitum
og gegn Haukum í undanúrslitum –
og strákarnir trúa því nú að þeir séu
sigurvegarar.“ eirikur@frettabladid.is
Líður vel þegar allt er undir
Óskar Bjarni Óskarsson er orðinn sigursælasti þjálfarinn í sögu bikarkeppni karla. Hann vann sinn fjórða
titil um helgina og tók fram úr Bogdan Kowalczyk og Reyni Ólafssyni. Hann vill vinna fleiri titla í vor.
Valur og Stjarnan bikarmeistarar í handbolta 2016
Stór stund Hlynur Morthens, fyrirliði karlaliðs Vals, og Sólveig Lára Kjærnested, fyrirliði kvennaliðs Stjörnunnar, lyfta hér bikurunum sem lið
þeirra unnu um helgina. Bæði lið lögðu Gróttu að velli í úrslitaleikjunum sem fóru fram í Laugardalshöllinni á laugardag. Bæði lið hafa verið sigur-
sæl í gegnum árin en Valur varð meistari í níunda sinn og Stjarnan í það sjöunda. Fréttablaðið/aNDri MariNó
Strákarnir vildu
sanna fyrir sjálfum
sér að þeir væru sigurvegarar
– að þeir myndu ekki bregð-
ast þegar á reynir.
Óskar Bjarni
Óskarsson,
þjálfari Vals
Sigursælustu
þjálfararnir
óskar bjarni óskarsson 4 titlar
Valur 2008, 2009, 2011, 2016
bogdan Kowalczyk 3 titlar
Víkingur 1979, 1983, 1985
reynir ólafsson 3 titlar
Valur 1974, FH 1977, 1978
Karl benediktsson 2 titlar
Víkingur 1978, 1984
Þorbjörn Jensson 2 titlar
Valur 1990, 1993
Kristján arason 2 titlar
FH 1992, 1994
Sigurður Gunnarsson 2 titlar
ÍBV 1991, Haukar 1997
alfreð Gíslason 2 titlar
KA 1995, 1996
Viggó Sigurðsson 2 titlar
Haukar 2001, 2002
aron Kristjánsson 2 titlar
Haukar 2010, 2012
Vildi ekki gefa mömmu
klístraða fimmu
Stjarnan varð um helgina bikar-
meistari í sjöunda sinn í sögunni
og í fyrsta sinn í sjö ár eftir sigur á
Gróttu í úrslitaleiknum, 20-16.
„Það var svo góð tilfinning að
vinna loksins eftir alla þessa bið.
Sérstaklega þar sem við höfum
oft verið nálægt því að vinna titil
síðustu árin en ekki tekist,“ sagði
Sólveig Lára Kjærnested sem
hefur verið í Stjörnunni frá 2002
og upplifað margt á þeim árum
– bæði gullaldarskeið félagsins í
kvennahandbolta og erfiða tíma.
Hún fagnaði eftir leik með
dætrum sínum, sex og þriggja
ára. Sú yngri vildi hins vegar ekki
gefa mömmu sinni „sigurfimmu“
eftir leikinn enda með klístraðar
hendur. Sólveig Lára sneri þá
hendinni við eins og sjá má á
myndinni hér fyrir ofan. „Hún var
eitthvað pjöttuð, sú stutta,“ segir
Sólveig Lára og hlær en lengra við-
tal við hana má lesa á íþróttavef
Vísis.
Coca-Cola bikar kvenna
Stjarnan - Grótta 20-16
Markahæstar: Þórhildur Gunnarsdóttir 5
(6), Sólveig Lára Kjærnested 5 (13) – Laufey
Ásta Guðmundsd. 4 (8), tvær með 3 mörk.
Coca-Cola bikar karla
Grótta - Valur 23-25
Markahæstir: Aron Dagur Pálsson 7 (11),
Finnur Ingi Stefánsson 5/2 (9/2) – Sveinn
Aron Sveinsson 6 (9), þrír með 4 mörk.
domino’s-deild kvenna
Valur - Keflavík 90-73
Stigahæstar: Karisma Chapman 41/16 frák./7
stoðs., Hallveig Jónsdóttir 15 – Thelma
Ágústsdóttir 17, Monica Wright 13/11 frák.
Hamar - Snæfell 39-69
Stigahæstar: Alexandra Ford 11 – Berg-
lind Gunnarsdóttir 22/10 fráköst, Haiden
Denise Palmer 14/12 fráköst/7 stoðs.
2 9 . f e b r ú a r 2 0 1 6 M Á n U d a G U r12 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
Sport
2
9
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
9
C
-F
5
7
4
1
8
9
C
-F
4
3
8
1
8
9
C
-F
2
F
C
1
8
9
C
-F
1
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K