Fréttablaðið - 29.02.2016, Page 20
Alda og Sigurður Óli keyptu húsið
árið 2004 og voru alltaf ákveðin í
að taka það í gegn smátt og smátt.
„Við erum búin að endurnýja bæði
baðherbergin í húsinu. Eldhúsinu
þurftum við að breyta talsvert.
Settur var nýr veggur með skáp-
um þar sem áður var opið upp á pall
þar sem sjónvarpsherbergið var.
Þegar við sátum yfir kvöldmatnum
blasti við okkur handrið og gólfið
undir sjónvarpssófanum sem var
ekki skemmtilegt. Einnig opnuð-
um við inn í borðstofuna og borðum
þar núna sem við gerðum sjaldnast
áður. Nýtingin á húsinu gjörbreytt-
ist vegna þessara breytinga,“ segir
Alda.
Hún ákvað að leita til Þóru Birnu
Björnsdóttur innanhússarkitekts
með breytingar á eldhúsinu. „Það
var mjög mikilvægt að fá aðstoð
fagmanns. Þóra sá lausnir sem
okkur hefðu ekki dottið í hug. Við
settum skápa á heila vegginn og
þar fékk ég búrskáp. Þar geymi ég
hrærivélina og þarf ekkert að færa
hana til þegar ég nota hana. Það er
gott vinnupláss inni í skápnum,“
segir Alda. „Við létum gera eyju
þar sem við höfum eldavélina sem
er mjög þægilegt. Eldhúsinnrétting-
in var sérsmíðuð hjá Við og við tré-
smíðaverkstæði. Flísarnar fengum
við í Vídd í Bæjarlind. Þær eru stór-
ar, 60x60 cm, og koma mjög vel út.“
Alda segir að húsið hafi karakt-
er og þau hafi alls ekki viljað rífa
allt út. „Við vildum fá arkitekt sem
hannaði eldhúsið út frá karakt-
er hússins. Húsið er skemmtilega
hannað og við vildum að það myndi
halda sér. Ég var mjög ánægð með
vinnu Þóru Birnu því hún tók tillit
til heildarútlits hússins.“
Alda rekur tvær verslanir, Út-
gerðina, sem eru í Vestmannaeyj-
um og í Hafnarfirði. Þar selur hún
alls kyns vörur fyrir heimilið. „Ég
starfaði sem kennari í Flensborg en
deildin sem ég kenndi við var lögð
niður. Þar sem ég hafði lengi gengið
með þann draum að opna verslun lét
ég hann rætast. Ég hafði samt engin
tengsl við Vestmannaeyjar. Við
fórum í óvissuferð til Eyja og mér
leist svo vel á staðinn að ég ákvað
að setja upp verslun þar. Núna er ég
með annan fótinn í Eyjum en okkur
hefur verið mjög vel tekið þar,“
segir Alda og er mjög sátt við þessa
ákvörðun. elin@365.is
Nýtingin á húsinu gjörbreyttist
Alda Áskelsdóttir og maður hennar, Sigurður Óli Gestsson, hafa verið að taka í gegn húsið sitt í Hafnarfirði. Eldhúsið og baðherbergið
hafa fengið nýtt útlit en næsta verkefni er að setja hita í stofugólfið og skipta um gólfefni. Breytingin hefur verið mjög til góðs.
Alda vildi hafa eyju í eldhúsinu sem kemur mjög vel út. Þar er nú eldavél og ofn.
MYND/ERNIR
Eldhúsið var allt tekið í gegn. Veggur brotinn niður og annar byggður upp. Mjög vel
heppnaðar breytingar. MYND/ERNIR
Það var mjög mikil-
vægt að fá aðstoð fag-
manns. Þóra sá lausnir
sem okkur hefðu ekki
dottið í hug.
Alda Áskelsdóttir
Verið velkomin í verslun okkar
að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8:30 - 17:00
Fastus hef • Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Veit á vandaða lausn
FALLEG
HÖNNUN
Í ELDHÚSIÐ
ÞITT
HEIMIlIð Kynningarblað
29. febrúar 20166
2
9
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
9
C
-F
0
8
4
1
8
9
C
-E
F
4
8
1
8
9
C
-E
E
0
C
1
8
9
C
-E
C
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K