Fréttablaðið - 29.02.2016, Síða 41
Viðargólf og lakkað parket ætti ekki að rennbleyta við þrif. Við
dagleg þrif ætti að nota þurra rykmoppu eða ryksuga yfir gólf-
ið og passa að smella burstanum á ryksuguhausnum niður.
Burstinn verður einnig að vera heill og hreinn svo ekki nudd-
ist sandkorn eða annað eftir gólfinu. Þegar skúra þarf gólf-
ið ætti að vinda moppuna vel og þurrka gólfið fljótt á eftir.
Nota þarf viðeigandi hreinsiefni á gólfið og fjá ráðlegging-
ar um það hjá fagmanni í gólfefnaverslunum. Ekki má til
að mynda nota sömu sápur á lakkað gólf og olíuborið
eða lútað gólf. Á olíuborið gólf henta feitar sápur en
þær skilja aftur á móti eftir fituhúð á lökkuðum
fleti svo gólfið lítur út fyrir að vera óhreint.
Heimild: Bigisson.is
Bannað að Bleyta
Elsta gólfteppi eða gólfmotta
sem vitað er um í heimin-
um er Pazyryk-teppið svo-
kallaða sem talið er vera frá
fimmtu eða fjórðu öld fyrir
Krist. Teppið fann fornleifa-
fræðingurinn Sergei Ivanovich
Rudenko árið 1949 í Síberíu í
grafhýsi í Pazyryk-musterinu í
Altai-fjöllum. Það er 200 x 183
cm að stærð og er í góðu ásig-
komulagi.
Ekkert er nákvæmlega vitað
um uppruna þess eða höf-
und en þó er talið að teppið
sé upprunnið í Armeníu eða
Kákasus en það er tuftað með
tækni sem þekktist þar. Rauði
liturinn er unninn úr skordýri,
Armenian cochineal, sem Ar-
menar voru þekktir fyrir að
vinna rauðan lit úr sem kallað-
ist Vordan karmir, eða orma-
rauður. Þá þykir hestamunstr-
ið minna á armenskt munstur.
Teppið er geymt í Hermi-
gate safninu í St. Pétursborg í
Rússlandi.
Heimild: wikipedia.org
Elsta motta
í heimi
Hreinar flísar
Eins og annað geta flísar orðið
skítugar, bæði í eldhúsinu og á
baðinu. Að þrífa flísar er ekki
sérlega gefandi verknaður sér
í lagi þegar oft reynist erfitt að
ná verstu blettunum. Ráð sem
Leiðbeiningastöð heimilanna
gefur á heimasíðu sinni ættu
þó að auðvelda leikinn aðeins.
1. Stráið matarsóda á svamp
og nuddið yfir óhreinindin.
Þvoið af með vatni.
2. Hrærið saman í þykka
blöndu ediki og lyftidufti eða
matarsóda og sítrónusafa.
Þessu er nuddað á flísarnar
og látið bíða í 3 til
4 klukkustund-
ir og þvegið
síðan af með
volgu vatni
og góðum
klút.
3. Sítrónu-
safi einn
og sér getur
verið ágætur. Þá
er sítróna skorin í
tvennt og sárinu nudd-
að yfir óhreinindin, látið liggja
smástund og þvegið af.
Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð
og samþykkt af Mannvirkjastofnun.
Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna
og léttir þrif.
Stigahúsateppi
Mælum og gerum tilboð
án skuldbindinga og kostnaðar
Sérverslun með teppi og parket
Mikið úrval!
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Kynningarblað HEimilið
29. febrúar 2016 11
2
9
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
9
D
-1
8
0
4
1
8
9
D
-1
6
C
8
1
8
9
D
-1
5
8
C
1
8
9
D
-1
4
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K