Fréttablaðið - 29.02.2016, Side 44
Áhugi Kjartans á ljósum vaknaði
snemma enda er fjölskyldan ná-
tengd áhugamálinu. „Foreldrar
mínir eiga ljósaverslunina Raf-
kaup og ég byrjaði snemma að
vinna þar og hannaði lýsingu með-
fram námi,“ segir Kjartan sem út-
skrifaðist sem innanhússarkitekt
frá við Istituto Superiore di Archi-
tettura e Design (ISAD) í Mílanó á
Ítalíu árið 1998. Hann starfaði við
fagið í nokkur ár og hannaði auk
þess nokkur ljós. Hins vegar rak
hann sig á að þekkingarleysi hans í
framleiðsluferlinu háði honum, og
ákvað hann því að taka masters-
gráðu í húsgagnahönnun og -fram-
leiðslu í Rhode Island School of
Design (RISD) árið 2014.
Í útskriftarverkefni sínu hann-
aði hann fimm lampa. Hreyfan-
leiki og tengsl við notandann voru
Kjartani hugleikin við hönnunina.
„Mig langaði til að búa til hreyfan-
lega lampa sem fólk gæti snert og
stjórnað með einfaldri hreyfingu,“
segir Kjartan.
Við hvað er hann að fást í dag?
„Maður er eins og hljómsveit sem
fylgir eftir plötu. Nú er ég að
fylgja eftir þessum lömpum og
ljósum sem ég hannaði í útskrift-
arverkefni mínu og hef verið á
sýningum víða um heim að með-
altali annan hvern mánuð,“ svar-
ar Kjartan sem hefur síðastliðna
mánuði ferðast til Los Angeles,
Frakklands og víðar auk þess sem
hann mun taka þátt í Hönnunar-
Mars á Íslandi.
Kjartan gengur með fjölmargar
fleiri ljósahugmyndir í maganum
og næsta skref er að koma þeim
í framleiðslu hvort sem það verð-
ur hér á landi eða erlendis. Nokk-
ur af ljósum Kjartans eru fram-
leidd hér á landi en hann er ekki
bjartsýnn á að það gangi til fram-
tíðar sér í lagi vegna hás flutnings-
kostnaðar. „Þetta eru sérsmíðuð og
fremur dýr ljós sem ekki er mikill
markaður fyrir hér á landi og því
flest keypt utan landsteinanna,“
segir Kjartan.
Hönnun hans má skoða á
www.kjartanoskarsson.com
Vinnur með hreyfanleika og tengsl
Kjartan Óskarsson húsgagnahönnuður og innanhússarkitekt er höfundur fallegra ljósa. Hann hlaut meðal annars verðlaun fyrir hönnun
sína á alþjóðlegri hönnunarsýningu í New York á síðasta ári. Nú ferðast hann milli sýninga til að kynna ljósin sín.
Halo Lava. Veggljós úr hrauni.Forester. Skógurinn var innblásturinn
við hönnun þessa ljóss. Stilka ljóssins er
hægt að hreyfa og beina í ýmsar áttir.
Halo Mirror. Ljósinu er stjórnað með
því að snúa hringlaga lampanum.
Halo. Styrk ljóssins er hægt að breyta
með því að toga í leðurreimina sem
heldur lampanum uppi.
Ég hef verið á sýn-
ingum víða um heim að
meðaltali annan hvern
mánuð.
Kjartan Óskarsson
HeiMiLið Kynningarblað
29. febrúar 2016
14
Hollenskir blómapottar með lýsingu fyrir þá sem vilja hafa nýstárlega
og sérlega glæsilega aðkomu að fyrirtæki sínu eða heimili.
Pottarnir eru gerðir úr sérstaklega sterku plasti sem þolir vel íslenska veðráttu,
snjó, frost, rigningu og rok. Rafkerfið er mjög aðgengilegt, með sparperum
og nota lítið rafmagn.
Margar stærðir, allt frá litlum upp í risastóra potta.
Nánari upplýsingar er að finna á www.zolo.is, eða í síma 615 3333
Þet a sérðu ekki
hv r sem er…...

Þetta sérðu ekki
hvar sem er…...

2
9
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
9
C
-F
F
5
4
1
8
9
C
-F
E
1
8
1
8
9
C
-F
C
D
C
1
8
9
C
-F
B
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K