Fréttablaðið - 29.02.2016, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 29.02.2016, Blaðsíða 48
„Það fyrsta sem ég geri er að skil- greina þarfir og óskir fólks sem geta verið afar mismunandi,“ segir Anna sem lærði innanhúss- arkitektúr í Konstfack University College of Arts, Crafts and De- sign í Stokkhólmi en hefur starf- að sem innanhússarkitekt á Ís- landi frá árinu 2000. „Sumir vilja sturtu meðan aðrir kjósa bað- ker, sumir leggja áherslu á mikið geymslupláss, aðrir hafa sér- stakt þema í huga á borð við „old country“ eða nútímalegan míní- malisma,“ segir Anna sem hlust- ar ávallt á óskir fólks en heldur þó alltaf tryggð við eigin stíl. „Bað- herbergin sem ég hanna eru afar fjölbreytt en mér finnst að hönn- unin megi ekki vera æpandi held- ur eigi fólk að finna fyrir vellíðan þegar það kemur inn í herbergið,“ segir Anna sem er hrifin af nátt- úrusteini og vill helst af öllu nota náttúruefni í hönnun sinni. Fúskið kostar Anna segist ávallt setja notagildi í fyrsta sæti. „Baðherbergi er eitthvað sem maður notar mikið og þarf því að virka,“ segir hún og er afar umhugað um að öll vinna í kringum baðherbergið sé unnin fagmannlega. „Það er afar heimskulegt að fúska við baðher- bergið. Tjón sem verður vegna raka í illa frágengnum flísum eða skápum getur skemmt heilt hús. Þá ætti fólk einnig að hugsa sig tvisv- ar um áður en þau kaupir ódýr blöndunartæki því ef þau bila og eru innfelld getur verið afar dýrt að rífa allt upp,“ segir Anna. Lýsingin er mikilvæg Anna segist leggja mikla áherslu á góða lýsingu á baðherbergj- um. „Ég er alltaf að predika yfir fólki um að á baðherberginu þurfi að geta verið allt frá skurðstofu- ljósi og niður í spa-lýsingu,“ segir hún og telur gott að vera með lýs- ingu á nokkrum stöðum á baðinu. „Ég veit að fólki finnst til dæmis þægilegt að geta haft dempað ljós ef það þarf að fara á baðherberg- ið á nóttunni.“ Lýsing og notagildi í fyrirrúmi Anna Hansson innanhússarkitekt segir frá því sem hún hugar að við skipulagningu baðherbergis og sýnir tvö falleg baðherbergi sem hún hefur sjálf hannað. Hún segir notagildið skipta mestu máli en lýsing sé einnig stór þáttur í því að auka vellíðan íbúanna. Þetta baðherbergi var frekar stórt en töluvert ílangt sem var dálítil áskorun. Mósaíkröndin í kringum salernið gefur herberginu mikinn svip en að öðru leyti er hönnunin frekar dempuð. Eigendur óskuðu eftir miklu geymsluplássi. Anna leysti það með því að setja speglaskáp sem þekur stóran hluta veggjarins. Spegillinn gefur tilfinningu fyrir stærra rými og skápurinn gefur mikið geymslu- pláss. Liturinn var valinn í samráði við eigendur og kemur fallega út svona jöklablár á móti svörtu. Það getur verið þrautin þyngri þegar plássið á baðherberginu er ekki mikið. Fólk í litlum baðher- bergjum um allan heim glímir við nokkur sameiginleg vandamál eins og þau sem fara hér á eftir. Hvar á að geyma klósettrúll- urnar? Þegar plássið fyrir rúlluna sem er í notkun er varla nægt er nánast ómögulegt að finna pláss fyrir aukarúllurnar. Niðurstað- an er yfirleitt sú að stafla þeim upp á vatnskassann (ef hann er ekki innbyggður það er að segja) eða troða þeim ofan í skúffu. Og gefa gestum þar með tilefni til að skoða í einkahirslurnar. Of heitt! Eftir sturtuna getur orðið verulega heitt inni á litlum baðherbergjum, sérstaklega þeim gluggalausu. Þegar ætlunin er svo að blása hárið eftir heitu sturt- una er orðið nánast ólíft þar inni. Afleiðingin af því er rauðar kinn- ar og sviti. Ekkert skraut. Þeir sem vilja hafa fallegt í kringum sig þurfa að finna hagkvæmar lausnir ef þeir vilja hafa skraut inni á litla baðherberginu sínu. Lausnin gæti verið sú að hengja einfald- ar myndir á veggina eða setja hill- ur hátt uppi til að setja blóm eða skrautmuni á. Ekkert pláss á baðinu Geymslupláss er oft af skornum skammti. Nokkur trix Anna gefur nokkur ráð sem hún hefur notað við vinnu sína. l Speglar geta hjálpað til við að láta rými sýnast stærra. l Grunnir skápar spara pláss og eru oft mun þægilegri en djúpir skápar á baðherberg- inu. l Eitt af því sem gleymist oft við hönnun sturtuklefa er staður fyrir fólk að leggja frá sér sjampó og sápur. Anna reynir iðulega að hafa slíkar geymslur innfelldar og telur það smáatriði sem skipti miklu máli. Það er afar heimsku- legt að fúska við baðher- bergið. Anna Hansson Uppþvottavélar Helluborð Ofnar Háfar Kæliskápar Mán. - föst. kl. 10-18 · Laugardaga kl. 11-15 friform.is Viftur SANNKALLAÐ PÁSKAVERÐ Nú í AÐdRAgANdA PÁSKANNA höfum ViÐ ÁKVEÐiÐ AÐ bjóÐA oKKAR ALbEStA VERÐ Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 AFSLÁTTUR 15% AF ÖLLUM INNRÉTTINGUMTIL PÁSKA 20% AFSLÁTTUR AF RAFTæKjUM VÖNDUÐ RAFTæKI Á VæGU VERÐI HEiMiLið Kynningarblað 29. febrúar 201618 2 9 -0 2 -2 0 1 6 0 4 :2 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 9 C -D 7 D 4 1 8 9 C -D 6 9 8 1 8 9 C -D 5 5 C 1 8 9 C -D 4 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 2 8 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.