Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Blaðsíða 9
DV Fréttír MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2007 9 STOP REPRESSION IN ZIMBAOWE RE8PECT freeoom 01 associat'on IN ZíMBABWE Námur í Úkraínu meöal þeirra hættulegustu í heimi: Mannskaði ísprengingu íkolanámu Breskur lávarður mælti fyrir innrás í Simbabve: Yfirvöld í Simbabve reiðubúin Um sextíu námamenn, hið fæsta, létust þegar sprenging varð í námu í Úkraínu í gær og óttast er að minnsta kosti hundrað hafi látið lífið. Spreng- ingin átti sér stað í Zasyadko-nám- unni í Donetsk-héraði á um það bil þúsund metra dýpi. Ástæður hennar voru uppsafnað metangas. Fleiri en fjögur hundruð og fimm- tíu námamenn voru neðanjarðar þegar sprengingin átti sér stað og í gær hafði um þrjú hundruð og fimm- tíu þeirra verið bjargað og tuttugu verið fluttir á sjúkrahús. Að sögn embættismanna höfðu lík þrjátíu og níu fundist, en björgunarmenn leit- uðu enn fimmtíu manna, en ekki var vitað um afdrif þeirra. Viktor Janúkovitsj, forsætisráð- herra landsins, kom á staðinn en um er að ræða eitt versta námuslys í Úkraínu til margra ára. Fjölskyldur námamannanna flykktust að nám- unni í von um að fá fregnir af fjöl- skyldumeðlimum sínum, en svartan reyk lagði upp um námuopið. Kolanámur í Úkraínu eru meðal þeirra hættulegustu í heiminum og tíðni dauðsfalla er há. Um helgina lést námamaður í Lenín-námunni sem er í sama héraði og Zasyadko- náman. í september í fyrra létust þrettán námamenn í Zasyadko-nám- unni vegna gasleka og fjöldi annarra slasaðist. Tuttugu létu lífið í spreng- ingu í sömu námu árið 2002 og átta- tíu námamenn létu lífið í sprengingu í Barakova-kolanámunni í Luhansk árið 2000. kolbeinn@dv.is Ríkisstjórn Simbabve hefur sak- að Bretland um að ætla að ráðast inn í landið og áform um að ráða leið- toga þess af lífi. Talsmaður Roberts Mugabe, forseta landsins, George Charamba, sagði að stjórnvöld í Har- are, höfuðborg landsins, væru reiðu- búin til varnar gegn allri ógn. Char- amba var þar að svara ummælum sem birtust í bresku dagblaði fyrir skömmu og höfð voru eftir Guthrie lávarði. Þar sagði Guthrie lávarð- ur að hann hefði ráðlagt íyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, að ráðast inn í Simbabve. Yfirvöld í Simbabve hafa iðulega sakað sína fyrrverandi nýlendu- herra um afskipti af innanríkismál- um landsins, oftar en ekki með hags- muni hvítra bænda að leiðarljósi. Og Bretar hafa sakað stjórnvöld í Simb- abve um stórfelld mannréttindabrot. f viðtali við breska blaðið Inde- pendent sagði Guthrie lávarður að Kynnum vinsælasta vaxið í dag Sársaukaminna SÚKKULAÐIVAX Bjóðum bæði upp á Brasilískt vax og Hollywood vax 15 % kynningarafsláttur af fyrstu komutil 1 Des. Minnum á nýja og endurbætta heimaslöu á www.snyrtihornid.is f Twf) m w A. SNYRTIHDRNIÐ Miövangi 41 I Hafnarfiröi I Sími: 552 1200 hann hefði haft náin samskipti við Tony Blair og að þeir hefðu gjarnan rætt málin. „Ég gat sagt hvað sem er við hann því ég vissi að hann myndi ekki blaðrað því í aðra," sagði Guthrie. Á meðal þess sem þeir ræddu var, að sögn blaðsins, innrás í Simbabve. Charamba, talsmaður Mugabes, sagði í viðtali við breska dagblað- ið Sunday Mail að leiðtogar Simb- abve hefðu ávallt verið meðvitaðir um hættuna á innrás. „Ríkisstjórn- in vissi af áformunum og forsetinn hefur ýjað að þessum illgjörnu fyrir- ætlunum við nokkur tækifæri," sagði Charamba. Hann bætti við að varn- aráætlun hefði verið sett af stað og væri enn viðhaldið. Charamba sagði að Bretar litu á hvíta Simbabva sem framlengingu bresku þjóðarinnar og að innrás þeirra hefði ekki snúist um stjórnmál heldur breska hagsmuni. kolbeinn@dv.is Fellibylurinn Sidr Hefur nu þegar kostað um tvö þúsund og tvö hundruð mannslíf, sem vitað er um. SðUDAKtlT ' WITM ■ 'ýToop CMAWH .iiíl&nJ UHIONISTÍ I Óttast innrás Ríkisstjórn ISimbabve hefur sakað Bretland um að ætla að ráðast inn í landið H fjölda manns til lífs er lífsviður- væri íbúanna farið og milljónir manns horfast nú í augu við hús- næðisleysi og matarskort. Þyrlur og fílar Þyrlur eru notaðar til að koma hjálpargögnum á þau svæði sem verst urðu úti með strönd lands- ins, og inn til landsins hafa fílar verið notaðir til að ryðja vegi svo hægt sé að koma hjálpargögnum til nauðstaddra. Nokkur lönd hafa heitið að- stoð vegna hamfaranna. Banda- ríkin hafa sent tvö herskip með hjálpargögn og áforma að fljúga með neyðarskýli og hreinlætis- tæki til landsins. Bretland, Þýskaland og Evrópusambandið hafa boðið nokkrar milljónir bandaríkjadala til neyðaraðstoðarinnar og mat- vælaaðstoðin, World Food Pro- gramme, hefur tekið til við að út- vega matvæli. Samkvæmt þróunaraðstoð Sameinuðu þjóðanna er dánar- tíðni hvergi í heiminum eins há og í Bangladess vegna náttúru- hamfara. Þar hefur rúmlega hálf milljón manns, að minnsta kosti, látist á árunum 1970 til 2005 í eitt hundrað sjötíu og einu tilfelli náttúruhamfara. Birkiaska Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is BETUSAN Matjurtir m. „A&gengileg, falleg, fróbleg og síöast en ekki síst skemmtileg bók - alvöru hvatning fyrlr hörbustu Innlpúka tll ab laumast út á svallr eba í garblnn sinn og prófa ab rækta elgib grænmeti!" Bryndís Loftsdóttir Vömstjórl Eymundsson Hókabiíö Mdls og menningor SUMARHUSIÐ RHGarourinn Síöumúla 15,108 Reykjavík Sími 586 8003, www.rlt.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.