Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Blaðsíða 11
PV Sport
MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2007 11
Valur tapaði fyrir Gummersbach í Meistaradeildinni í handbolta 34-22:
12marka ósigurVals
Valsmenn léku við íslendingaliðið
Gummersbach í Meistaradeild Evrópu
í handbolta í gær og biðu ósigur 22-34.
Valsmenn byrjuðu vel og komust í 3-1
og spiluðu góða vöm í byrjun. Gumm-
ersbach breytti þá stöðunni í 5-3 og
var yfir allt til loka. Staðan í hálfleik var
15-11 fyrir Gummersbach.
Gummersbach skoraði íyrstu tvö
mörkin í síðari hálfleik en Valsmenn
svöruðu með þremur mörkum í röð og
náðu að minnka muninn í þrjú mörk á
tímabili. En þá fór sóknarleikur Vals í
baklás og Gummersbach gekk á iagið
og vann öruggan 12 marka sigur. Am-
ór Gunnarsson var markahæstur Vals-
manna með 9 mörk.
Ólafur Haukur Gíslason markvörð-
ur og fyrirliði Vals varði 9 skot og var
nokkuð sáttur eftir leikinn þó mun-
urinn hefði verið óþarflega mikill í
lokinn. „Við byrjuðum vel og spiluð-
um fi'na vöm. En svo lentum við í því
að elta allan leikinn og það var mjög
erfitt. Við áttum alveg góðan séns eft-
ir fyrri hálfleikinn en byrjuðum síðari
hálfleikinn illa. Svo datt vömin í gang
hjá þeim og þeir skomðu úr hraða-
upphlaupum í gríð og erg og náðu
muninum upp í tíu mörk. Það komu
17 með okkur hingað út og það var góð
stemming hérna." Ólafur sagði að mik-
ill munur væri á því að spila í Þýska-
landi og Slóvemu og Ungverjalandi.
„I Þýskalandi er þetta dannaðra. Fólk
kemur á leiki til að njóta handboltans.
f Slóvemu og Ungverjalandi mætir fólk
til að taka andstæðingana á taugum og
búa til hávaða. Hérna var klappað fyr-
ir okkur ef við gerðum eitthvað flott. Á
hinum stöðunum var flautað og baul-
að á okkur allan tímann." Með Gumm-
ersbach leika Sverre Jackobsen og Ró-
bert Gunnarsson. Ólafur sagði að þeir
hefðu staðið vaktina vel. „Sverre spil-
aði mjög góða vörn enda skoruðum
við ekki nema 22 mörk. Róbert spilaði
ekki mikið, var með einhver þrjú mörk.
En þeir voru svolítið að spila á vara-
liðinu. Momir Ilic spilaði nánast ekki
neitt og þetta voru einhverjir óþekkt-
STAÐAN í RIÐLINUM:
Lið Stig
1. Gummersbach 54 1 0 166:139 9
2. MKBVeszptém 412 1 130:1194
3. Celje Lasko 4112 114:1093
4. Valur 5 1 04 127:170 2
ir menn í flestum stöðum megnið af
leiknum."
Lokaieikur Vals í Meistaradeildinni
verður á fimmtudaginn en þá leikur
liðið við Veszprém frá Ungverjalandi.
„Við ætíum að gera eitthvað húllum-
hæ fyrir þann leik og reyna að vinna
þá. Það vantaði aðeins upp á trúna á
þetta hérna en þeir spiluðu fi'na vörn
og unnu okkur á því." benni@dv.is
Markahæstur Arnór Gunnarsson
skoraði 9 mörkfyrirVal.
VEXTIR FRÁ AÐEINS 3,2% Miðað við myntkörfu 4, Libor-vextir 24.7.2007. Þannig er mál með vexti ... ... að það er hægt að létta greiðslubyrðina. FRJÁLSI