Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2007, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007
Fréttir DV
Launavísitala
hækkar
Mánaðarleg launavísitala
hækkaði um 0,5 prósent á milli
mánaða, frá september til okt-
óber, á þessu ári. Samkvæmt
tölum frá Hagstofu fslands var
launavísitala í október 324, 6 stig.
f tilkynningu Hagstofunnar segir
jafnframt að síðastliðna tólf mán-
uði hafi launavísitalan hækkað
um 8,1 prósent. Launavísitalan
hækkaði mest á fyrstu þremur
mánuðum ársins en síðan hefur
hækkunin verið minni.
Kyrkia, lemja
og hengja
Tuttugu og átta ára karl-
maður var á þriðjudag dæmd-
ur í níu mánaða skilorðs-
bundið farigelsi fyrir að hóta
lögreglumönnum lífláti og
beita þá ofbeldi. Lögreglu-
menn höfðu afskipti af mann-
inum á bílastæði Samkaupa
á Blönduósi. Maðurinn brást
hinn versti við, sló til lög-
reglumanna og kvaðst mundi
drepa þá, kyrkja, lemja og
hengja.
Maðurinn, sem á allnokk-
urn brotaferil að baki, játaði
brot sín greiðlega við dómara.
Níu mánaða fangelsisdómur-
inn fellur niður haldi maður-
inn skilorð í þrjú ár.
Ósannindi
meirihlutans
„Orð borgarstjóra Reykjavíkur,
Dags B. Eggertssonar, um hús-
næðismál eldri borgara voru ekk-
ert annað en ósannindavaðall,"
sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, áborgarstjórnarfundií gær.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá framkvæmdastjóra borgar-
stjórnarflokks Sjálfstæðisflokks-
ins. Á fundinum nefndi Vil-
hjálmur ýmis önnur dæmi um
rangfærslur í ræðu borgarstjóra.
Á fundinum kom fram að frum-
varp að fjárhagsáætlun fyrir árið
2008 grundvallist í stórum drátt-
um á þeirri stefnumörkun sem
fráfarandi meirihluti lagði grunn
að og hrinti verkefnum í fram-
kvæmd í stjórnartíð sinni.
Óttaðist
fangelsi
Malcolm Walker, stofnandi
og forstjóri verslunarkeðj-
unnar Iceland, viðurkennir
að hafa óttast að lenda í fang-
elsi þegar breska fjármála-
eftirlitið rannsakaði ásakanir
um innherjasvik í tengslum
við hlutabréfaviðskipti hans.
Walker hætti með látum hjá
Iceland árið 2001, stuttu eftir
að hann seldi hlutabréf í fyr-
irtækinu upp á 13,5 milljónir
punda. í kjölfarið sendi fyr-
irtækið frá sér viðvörun. Ekki
var gert annað en að rannsaka
málið en Walker segist þann
tíma stöðugt hafa séð fanga-
klefann fyrir sér.
Gísli Gíslason, lögmaður í Kaupmannahöfn, undirbýr nú málsókn gegn Gísla Reynis-
syni, forstjóra Nordic Partners, vegna vanefnda á samningi þeirra. Gisli lögmaður hafði
milligöngu um kaup Gísla forstjóra á Hotel D'Anglaterre í miðborg Kaupmannahafnar
og telur sig eiga inni háar upphæðir í þóknun. Málið fer fyrir dómstóla í Danmörku.
VILL 500 MILLJ0NIR
FYRIR HÓTELSÖLU
VALGEIR ORN RAGNARSSON
bladamadur skrifar: valgeinwdv.is
Gísli Gíslason, lögmaður og at-
hafnamaður í Kaupmannahöfn,
sakar Gísla Reynisson, forstjóra fé-
lagsins Nordic Partners, um að hafa
ekíd efnt skriflegan samning þeirra á
milli og fer fram á hundruð milljóna
greiðslur sem hann telur sig eiga inni
hjá Nordic Partners. Málið snýst um
kaup Gísla Reynissonar og Nordic
Partners á hinu sögufræga verð-
launahóteli Hotel D 'Anglaterre
í miðborg Kaupmannahafn-
ar sem fslendingar eign-
uðust snemma í haust.
Gísli Gíslason hafði
í gegnum félagið Eur-
opean Consulting
milligöngu um kaup
Gísla Reynisson-
ar á hótelinu og
kom meðal ann-
ars kaupendum
og seljendum
saman. Fyrir
það hlutverk átti
hann að fá í sinn hlut tiltekinn pró-
sentuhlut af verðinu þegar kaupin
gengu í gegn. Eftir því sem DV kemst
næst er reikningur Gísla lögmanns
nærri hálfum milljarði króna.
Milljarða virði
Hotel D'Anglaterre er 250 ára,
staðsett við Kongens Nytorv og hef-
ur verið eitt af flaggskipum danskra
hótela. Þjóðhöfðingjar og viðskipta-
jöfrar eru tíðir gestir á hótelinu sem
hefur verið valið besta hótel Dan-
merkur.
Kaupverðið á hótelinu var ekki
gefið upp en það var mat sérfræð-
inga í milligöngu um fasteigna- og
fyrirtækjasölu sem DV leitaði til, að
venjan væri að um 2-5 prósent af
kaupverði eigna renni til milligöngu-
manna sem þóknun. Ætla má að
Hotel D'Anglaterre sé metið á millj-
arða og því ljóst að um er að ræða
umtalsverðar fjárhæðir sem Gísli tel-
ur sig eiga inni.
Höfðar hugsanlega einkamál
Gísli Gíslason hefur nú ráðið
Hróbjart Jónatansson hæstaréttar-
lögmann til þess að innheimta hina
ógreiddu skuld og er málið komið
nokkuð langt á veg. Hróbjartur frá-
bað sér að tjá sig um mál-
ið við DV að öðru leytí
en að staðfesta að
Gísli Gíslason
væri umbjóðandi
hans. Samkvæmt
heimildum DV
nema umboðs-
laun hundruðum
milljóna króna
og allt að hálf-
um milljarði króna.
Skriflegur samning-
ur var gerður á milli að-
ilanna sem tók gildi um
leið og kaupin gengu í
gegn. Þar er kveð
ið á um að Eur-
opean Con-
sulting eigi
hefur ekki
greitt þá upp-
hæð sem Gísli Gísla-
son telur sig eiga inni og mun hinn
síðarnefndi höfða einkamál fyrir
dönskum dómstólum ef ekki verð-
ur leyst úr þessum ágreiningi
utan þeirra. f samnings-
skjölum á milli málsað-
ila var kveðið á um að
ef ágreiningsefrii
kæmu upp skyldi
leyst úr þeim
fýrir dönskum
dómstólum.
Hotel D'Angleterre Glæsilegt hótel í
hjarta Kaupmannahafnar. Var valið besta
hótel Danmerkur árið 2007 og hefur
hlotið World Travel-verðlaunin fjórum
sinnum.
um DV mun málið fara fýrir dóm í
Danmörku innan nokkurra daga ef
sættir nást ekki og er undirbún-
ingur málsins þegar hafinn.
Sambærilegt mál er nú
statt fyrir dómstólum þar
sem milligöngumaður
um kaup á fyrirtækinu
Bláfugli hefur höfðað
mál á hendur kaupend-
um félagsins fýrir van-
efndar greiðsluskyld-
ur eftir að kaupin gengu
í gegn. Hvorki náðist í
Gísla Gíslason né Gísla
^ Reynisson við vinnslu
Bl fréttarinnar.
Nokkurra
daga frestur
Samkvæmt
fífc. heilmild-
Gisli Reymsson
Forstjóri Nordic Partners
er sagður ekki vilja
greiða reikninginn fyrir
milligöngu kaupanna i
Kaupmannahöfn.
inni þokn-
un vegna
málsins.
Gísli
Reynisson
forstjóri
Hróbjartur Jónatansson Flæstaréttarlögmaður
hefur tekið að sér að sækja þá innistæðu sem
lögmaðurinn í Danmörku telur sig eiga inni.
ATLIGÍSLASON,
þingmaðurvinstrigrænna. . /
Langt í frá
„Nei, langt ífrá. Þróunarfélagið hefurþver-
brotið lög sem gilda um sölu á eignum ríkisins í
almenningseigu. Það hefurfórnað samfélagsleg-
um hagsmunumfyrir einhver sérhyggjusjónarmið.
Einhverjar ákvarðanir hafa verið teknar bakvið
tjöldin. Salan er án útboðs, án þess að Ríkiskaup
hafi komið að málum ogán samkeppnisreglna. Menn
hafa einfaldlega ekki setið við sama borð. Verið er að
selja 1700 íbúðir til einhverra aðila án gagnsærra reglna.
Það á að gerastfyrir opnum tjöldum þegar verið er að ráð-
stafa almenningseignum. Það er bara þannig samkvœmt lög-
um. í staðinn er verið að ráðstafa til einhverra sem maður veit
ekki hvort þeir hafa sérstaka velvild til. Það er bara lagabrot að
gefa ekki öllum kost á að bjóða í eignirnar og selja eignirnar með þessum
hætti. Það á aðfara fram útboð, allir eiga að sitja við sama borð og regl-
urnar eiga að vera öllum sýnilegar. 1 þessu máli erum við í vafa um að
svo hafi verið."
ÁRNI SIGFÚSSON,
bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
^ ,,/rí. Salan byggir á lögum sem sett voru um verkefnið þar
■ sem Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar varfalið að þróa
suæðið ogselja eignir. Þvíhefur veriðfylgt samviskusam-
* JMpil lega eftir. Á það hefur verið bent aðfylgja hefði átt lög-
um um Ríkiskaup og sölu ríkiseigna. Þeir sem það segja
gleyma þvíað sett voru sérlög um Þróunarfélagið. Það
var sérstaklega stofnað til að Jýlgja þessu verk-
efni eftir. Þetta ermálið ígrundvallaratriðum.
Svo er auðvitað verið að benda á að Þorgils
Óttar Mathiesen sé bróðirfjármálaráðherra,
það er rétt að hann er einn af éigendumfyrir-
tækisins sem er að bjóða í eignirnar. Hann er
athafnamaður og Itann er að bjóða i ákveðnar
eignir og það kemur málinu ekkert við.
Ég veit að þeir eru bræður og að báðir eru þeir
virkir í samfélaginu."
MEÐOGAMÓTI
VAR RÉTT STAÐIÐ AÐ SÖLU RÍKISEIGNA Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI?