Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2007, Blaðsíða 21
DV Umræða
FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 21
pórður Björnsson kaupmadur
'|íj fær plúsinn að þessu sinni
fyrir aðstanda keikur eftir að
þrir vopnaðir grimuklæddir piltar
réðust inn i verslun hans og rændu
hann.
SPURNINGIN
ER ÞETTA ÓVINNANDI
VEGUR?
„Alls ekki. Við gefumst ekki svo
auðveldlega upp. Piratebay er undir
opinberri rannsókn í Svíþjóð og þá
verða íslenskir aðilar bara með í því,"
segir Snæbjörn Steingrimsson,
framkvæmdastjóri SMÁIS (Samtök
myndrétthafa á íslandi). Heimasíðunni
torrent.is var lokað á mánudaginn en
óprúttniraðilarvoru ekki lengi að færa
efni á borð við Næturvaktina og
Tekinn yfir á sænska heimasíðu sem er
á slóðinni piratebay.org. Síðan er hins
vegar núna undir opinberri rannsókn
og mun henni Ijúka á næsta ári.
DVFYRIR
25ÁRUM
FUnLortur Unnjáfo oio»<njaru.
Leysist vonandi
ínæstuviku
SKÁHOLAN GERJR
FJÖGUR MEGAVÖTf
Lögbanrtið staðfest fmáli
Haukdals gegn séra Páli
MMikim porow
:=r- m+i.
MYNDIN
Gaman á Alþingi Kristinn H. Gunnarsson skellti upp úr á meðan Guðni Ágústsson fyrrverandi flokks-
félagi hans úr Framsóknarflokknum hélt ræðu á Alþingi í gær. dvmynd/ásgeir
Umburðarlyndi þrýtur
Þarf alltaf að vera eitthvað kauðskt
og hallærislegt við opinbera íslenska
stjórnsýslu? Almenningi gefst vart
tími til að jafna sig á REI-málinu og
vondri stjórnsýslu á vegum kjörinna
fulltrúa Reykvíkinga í því máli þeg-
ar annað viðlíka geggjað mál skýtur
upp kollinum. Að þessu sinni er það
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf
sem selur bræðrum, hálfbræðrum,
vinum og kunningjum, viðskiptafé-
lögum og gæðingum eigur almenn-
ings án þess að fara að lögum um út-
boð og gagnsæ vinnubrögð. Er nema
von að Adi Gíslason, hæstaréttarlög-
maður og þingmaður VG, geri at-
hugsasemdir við aðferðirnar á hinu
háa Alþingi og telji að nýtt Orku-
veitumál sé í uppsiglingu.
Þegjandaleg einkavæðing
Málið hófst vitanlega fýrir áratug-
um þegar Bandaríkjaher settist að
á Miðnesheiði og tók að byggja eitt
stykki kaupstað með öllu og stærsta
flugvöll í landinu. Dollarar seytluðu
inn í landið. Stjórnmálamenn og
stærstu fyrirtæki landsins ákváðu að
skipta hagnaðinum af veru verndar-
anna á milli sín. Sambandið, verk-
takar og kaupmenn. Framsóknar-
flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn.
Kenningar um að hagsmunum al-
mennings væri best borgið með sér-
hagsmunagæslu í þágu útvalinna
bræðra, hálfbræðra, vina og kunn-
ingja skutu upp kollinum. Islenskir
aðalverktakar einokuðu herinn.
Og svo gerist það að herinn hverf-
ur skyndilega á brott og afhendir ís-
lensku þjóðinni, almenningi, ríkinu
(það erum við), allar eigur sínar á
„An þess að nokkur tæki
eftir því - varla hægt að
segja að vinstri grænir
hefðu gert það fremur en
aðrir - var ákveðið að selja
allareignirnar."
Keflavíkurflugvelli að gjöf. Eðlilega
hlaut umsýslan af þessum milljarða-
eignum almennings að vera í hönd-
um stjórnvalda, ríkisstjórnarinnar.
Án þess að nokkur tæki eftir því -
varla hægt að segja að vinstri grænir
hefðu gert það fremur en aðrir - var
ákveðið að selja allar eignirnar. Yf-
irgefni kaupstaðurinn skyldi einka-
væddur með hraði. Ekki þurfti að
markaðsvæða neitt því eignirnar
voru umsvifalaust settar undir hatt
Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar
ehf sem stofnað var með hraði.
Stjórn Þróunarfélagsins, skipuð
sjálfstæðis- og framsóknarmönn-
um gerði þjónustusamning við Árna
Mathiesen fjármálaráðherra fyrir
tæpu ári. Þar kennir margra grasa.
„Verksali (Þróunarfélagið) sér um
og ber ábyrgð á að auglýsa fyrirhug-
aða ráðstöfun eigna með opinberum
hætti," stendur þar. „Verksali (skal)
fylgja þeirri stefnumörkun sem rík-
ið hefur á hverjum tíma um opin-
ber innkaup og útvistun verkefna,"
stendur einnig í samningnum.
Stjórnmálamenn með hnút í
maga
Stjórn Þróunarfélagsins var vitan-
legavorkunn. Gammarniríviðskipta-
líflnu, verktakarnir, eignarhaldsfé-
lagarnir, bræðurnir, hálfbræðurnir,
vinirnir og kunningjarnir voru að-
eins 20 mínútur að reikna út verð-
mæti 1700 fbúða og annarra bygg-
inga. Þeir tóku strax til við að strjúka
stjórnarmönnum í Þróunarfélaginu
meðhárs. Skála við aðra áhrifamenn
í boðum og koma orðsendingum á
framfæri við ráðamenn. Slatti af fyr-
irtækjum undir hatti Base ehf fékk
í ágúst síðasdiðnum að kaupa um
20 byggingar á vellinum fyrir tæp-
an milljarð. Vildarfyrirtæki, flokks-
bræður, vandamenn og vinir fengu
að kaupa 1700 íbúðir fyrir 14 millj-
arða í októberbyrjun undir hattí Há-
skólavalla. Var þetta söluferli löglegt
og gegnsætt? Nei, sagði lögfræðing-
urinn á Alþingi.
Fyrir skemmstu hrökklaðist
meirihluti borgarstjórnar Reykjavík-
ur frá vegna slælegrar stjórnsýslu á
sviði orkumála og slakrar vörslu al-
mannahagsmuna. Kannski þrýtur
umburðarlyndi Samfylkingarinnar
innan ríkisstjórnarinnar þegar all-
ar upplýsingar um Háskólavelli og
einkavæðinguna á Keflavíkurflug-
velli liggja fyrir.
ÞAÐ HAFA ALLIR lent í því að vera
rölta á Laugaveginum og það keyr-
ir einn gaur fram
hjá á Nissan
Sunny GTI með
gluggann niðri
og Transmast-
er3000íbomi.
Þessartýpureru
og verða alltaf
tíl. Ég lentí hins
vegar í öllu súr-
reah'skara atviki á þriðjudaginn
þegar ég stoppaði stutt á Lauga-
veginum. Þá mættí ég manni á
miðjum aldri á nýjum og flottum
Benz með rúðuna niðri og græj-
umar í bomi. Hann var í fallegum
gráum ullarfrakka, í jakkafömm
og með hatt. Tónlistin sem glumdi
út um gluggann var eins konar
þjóðlagatónlist og brá fyrir þarna
bylmingsþéttu banjósólói ef gamla
eyrað sveik mig ekld. Það versta
við þetta allt var að maðurinn leit
út fyrir að vera bullandi stressaður.
ENN 06 AFTUR neyðist ég til að
„væla" út af RÚV og handboltan-
um. Það virðist allavega öllum
öðrum vera sama þannig að ein-
hver verður að gera það. Enn hefur
RÚVbarasýnt
einnleikþað
sem af er vetri í
Nl-deild karla
ogsvipaðíNl-
deild kvenna.
Enginn leikur
verður um
næsm helgi
og það eru að
fara koma jól. Alltaf er jafnmikið
kvartað innan raða handbolta-
manna yfir þessu sinnuleysi RÚV
en hverjum er það að kenna nema
okkur sjálfum? Það var nú einu
sinni handknattíeiksforystan sem
er kosin af félögunum sem samdi
við RÚV í stað Sýnar og þar liggur
vandinn. Ef handboltínn kemst
ekki frá RÚV deyr hann á endan-
um.
ANNARS FÉKK GREININ í gær f DV
um TanCrew mig til að hugsa að-
eins um þessa blogghópa. Svona
strákablogghópar skiptast yflrleitt
í tvennt. Önnur tegundin er sú þar
sem bloggsíðan er miðstöð vina-
hóps sem ræktar þar einkahúm-
or sinn og gemr virkað fullsúr út á
við. Hinn hópurinn er strákar sem
eru að reyna vera svalir á netínu og
halda að það að tala opinskátt um
kynlíf og ofbeldi sé töff. Því miður
er það feimr misskilningur sem
flestír átta sig á nema þeir. Greyin.
AFMÆLISBÖRN DAGSINS
FIMMTUDAGURINN 22. NÓVEMBER 2007
60ÁRA
Hólmfríður Valdimarsdóttir,
Þrastarási 53, Hafnarfjirði.
Hörður Davíðsson,
Efri-Vík, Kirkjubæjarklaustri.
Ingileif Ögmundsdóttir,
írabakka 34, Reykjavík.
Ágúst I. Ágústsson,
Sóleyjarima 9, Reykjavík.
Þröstur Eyjólfsson,
Fellsmúla 17, Reykjavík.
50ÁRA
Auður Kristrún Viðarsdóttir,
Hraunbæ24, Reykjavík.
Edda Guðmundsdóttir,
Dalalandi 14, Reykjavík.
Einar Hjálmar Jónsson,
Smárarima 32, Reykjavík.
Guðbjörg Eyrún Hermanns-
dóttir,
Núpasíðu 4e, Akureyri.
Guðrún Geirsdóttir,
Hjarðarhaga 54, Reykjavík.
Ingibjörg Sif Hákonardóttir,
Kerlingardal, Vík.
Martyn Richard Knipe,
Skúlaskeiði 10, Hafnarfirði.
María Hildur Maack,
Spítalastíg 3, Reykjavík.
María Ósk Óskarsdóttir,
Hiíðargötu 26, Fáskrúðsfírði.
Pétur Guðbjartsson,
Gautavík 11, Reykjavík.
S. António Simóes Coelho,
Laugarási, Egilsstöðum.
Sigríður Júlía Bjarnadóttir,
Vesturholti 8, Hafnarfirði.
Sigurður Stefánsson,
Goðheimum 18, Reykjavík.
Sverrir Valsson,
Gnoðarvogi 64, Reykjavík.
Árni Sigurðsson,
Grænumýri 5, Seltjarnarnesi.
Þóra Gígja Jóhannsdóttir,
Flatasíðu 8, Akureyri.
40ÁRA
Gunnar Óli Vignisson,
Heiðarlundi 7b, Akureyri.
Haukur Guðmundsson,
Bræðratungu 30, Kópavogi.
Ingibjörg Elfa L. Stefánsdóttir,
Seljavegi 2, Selfossi.
Kristinn Reykdal,
Löngubrekku 5, Kópavogi.
Ragnheiður M. Þorsteinsdóttir,
Syðri-Bægisá, Akureyri.
Esther Brune,
Akurgerði 5b, Akureyri.