Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2007, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2007, Blaðsíða 9
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 9 NÚAHEIM ...fyrir ekki svo löngu lýsti írakskur blaða- maður ástandinu á eftirfarandi hátt:„Þeir írakarsem geta ekki flúið land bíða nú í röð eftirþví að deyja." i • /. á flóttamannastraumi yflr landa- mæri íraks og hefur flóttamanna- hjálpin ekki notið mikils stuðnings frá öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna, sem hafa verið frekar tregar til að viðurkenna umfang vandamálsins. Dregur úr ofbeldi í kjölfar átaks Bandaríkjahers sem hófst fyrr á þessu ári hefur dreg- ið verulega úr ofbeldi í Bagdad, höf- uðborg íraks. Þó enn berist fregnir af sprengjutilræðum og mannfalli er það ekkert í líkingu við það sem áður þekktist. En hver sem ástæðan er, er flóttafólk farið að snúa heim. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna áætlar að um fjörutíu og fimm þúsund manns hafi snúið heim frá Sýrlandi í október, en það var fyrsti skólamánuðurinn í frak. Talið er að betra ástand og meira ör- yggi í höfuðborginni spili þar stórt hlutverk. Flóttafólk í Jórdaníu Hátt f milljón Iraka flúði til Jórdaníu. Flestir frakar flúðu til Sýrlands og var þar í flestum tilfellum um að ræða efnaminna fólk og þaðan snýr flest fólk heim á leið. Skýringuna gæti verið að finna í þeirri staðreynd að í flestum tilfellum var um efna- minna fólk að ræða og spariféð ef- laust uppurið og fátt annað til ráða en að láta skeika að sköpuðu. Stjómvöld í frak hafa hlaupið undir bagga með þeim sem kjósa að snúa heim og meðal annars boðið upp á ókeypis bílfar fr á Sýrlandi. Auk þess hafa þau reynt að hvetja íraka sem flosnað hafa upp frá heimilum sínum, en eru enn innan íraks, til að snúa til síns heima. Talið er að sá hópur telji um tvær milljónir. Stjóm- völd í Bagdad bjóða hverri fjölskyldu sem snúa vill heim áttahundmð dollara styrk til þess. Nú þegar hafa fjögurþúsund og sjöhundruð fjöl- skyldur þekkst boðið og aðrar átta- þúsund og fimmhundmð fjölskyld- ur hafa staðfest vilja sinn til þess. Námaiðnaður í Simbabve er í rústum vegna stjórnarafskipta: Mugabe heggur í sama knérunn Robert Mugabe, forseti Simb- abve, reiddi enn og aftur til höggs gegn efnahag landsins, sem er í mol- um fyrir. Á þriðjudaginn tóku gifdi í Simbabve ný lög sem gefa ríkinu meirihlutaeign í námum sem starf- ræktar eru landinu. í skjóli nýju lag- anna getur hið opinbera tekið yfir fimmtíu og eitt prósent í námafélög- um. Þar af tuttugu og fimm prósent án þess að greiða fyrir. Samkvæmt lög- unum verða eftirliggjandi tuttugu og sex prósent greidd af hagnaði þeirra tuttugu og fimm prósenta sem tek- in eru eignarnámi og verða greidd á sjö ára tímabili. Nýju lögin eru rétt- lætt með því að vísa í upprunalegan eignarrétt þjóðarinnar á öllum „nýt- anlegum málmum í jörðu". Innfædd- ir Simbavemenn munu taka yfir öll önnur námafélög og er ekki tilgreint með hvaða hætti verður greitt fyrir þau. Stór hluti námaiðnaðar lands- ins er í rústum vegna opinberra af- skipta, en þó stendur platínumiðn- aðurinn styrkum fótum, en þar er Zimplats stærsta fýrirtækið. Grunnhyggin og eyðileggjandi Efnahagssérfræðingar segja að með nýju lögunum sé komið rök- rænt framhald á eignarnámi á bú- jörðum hvítra bænda, sem hófst árið 2000 og markaði hnignun eins auð- ugasta ríkis Afríku. „Stjórnvöld herja nú á eignarrétt námafélaga. Þetta er pólitísk hyglun. Gróðanum verð- Forseti Simbabve Robert Mugabe leggur hald á námafélög landsins. ur skipt á milli fárra útvalinna, sem umbun fyrir þjónustu við stjórnvöld. Þetta er grunnhyggið og eyðileggj- andi," sagði efnahagssérfræðingur- inn John Roberts. Nýju lögin kveða á um að ef fyr- irtæki láti ekki af eignarhaldi sínu án mótþróa, þá verði leyfi þeirra til námavinnslu afturkallað. Allar fjár- festingar í framtíðinni verða háðar því að stjórnvöld fái ráðandi meiri- hlutaeign. f síðasta mánuði var fyr- irtækjum í eigu útlendinga gert, með lögum, að selja fimmtíu og eitt pró- sent hlutabréfa til þeldökkra Simb- abvemanna. Áður en Zimplats ákvað að fjárfesta í platínumvinnslu í Simb- abve skrifuðu stjórnvöld um skuld- bindingu þess eðlis að fyrirtækið yrði aldrei þjóðnýtt. Tvær stulkur ætluðu að smygla kókaíni frá Gana til Bretlands: Bíðurfanqelsisvist í Gana Tvær breskar táningsstúlkur voru fundnar sekar um tilraun til eitur- lyfjasmygls frá Affíkuríkinu Gana til Bretlands. Um var að ræða kókaín að andvirði þrjátíu og sex milljónir íslenskra króna. Stúlkumar, Yasem- in Vatansever og Yatunde Diya sem báðar eru sextán ára, eiga yfir höfði sér allt að þriggja ára vist í unglinga- fangelsi í Gana. Þær vom fundnar sekar um hvort tveggja eign og sölu fíkniefna og verður dómurinn kveð- inn upp þann 5. desember. Réttar- höldin yfir þeim stóðu í fjóra mánuði, en þær voru handteknar á alþjóða- flugvellinum Kotoka í Accra þann 2. júlí og fannst kókaínið falið í tölvu- töskum. Tíu dögum síðar var þeim birt kæra um tilraun til smygls. Stúlk- urnar héldu því ffarn að þær hefðu ekki vitað um eiturlyfin í farangri sínum og að þær væru fórnarlömb óprúttinna náunga. Átak í Gana Það var unglingadómstóll Gana sem fór með málið og ef réttað hefði verið yfir stúlkunum sem fullorðn- um hefði beðið þeirra allt að tuttugu ára fangelsisvist. Undanfarin þrjú ár hefur stjómvöldum í Gana orðið vel ágengt í baráttunni við eiturlyfla- smyglara og hafa þau sett nýtt met í Afríku í magni sem þau hafa komið höndum yfir. Vestur-Afríka er talin vera lendingarstaður fyrir eiturlyf frá Suður-Ameríku til Evrópu. Talið er líklegt að stúlkurnar hafi verið ráðnar í London og verið ætlað að koma efn- inu frá Gana til Bretlands, en um sex- Yasemin Vatansever og Yatunde Diya Eiga yfir höfði sér þriggja ára dóm (Afríkuríkinu Ghana. tíu slík burðardýr koma til Bretlands ffá Vestur-Afríku í hverri viku, að því er talið er. Sarkozy gefur ekki eftir Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti hefur lýst því yfir að hann muni keyra í gegn þær umbætur sem hann hefúr ætlað sér, án tillits til andspymunn- ar og verkfallanna sem lamað hafa franskt samfélag. Á sjöunda degi verkfallsins lýsti um milljón manns úr kennarastétt, heflbrigðisgeiranum og starfsmenn pósthúsa yfir stuðningi við járnbrautarstarfsmenn, sem mót- mæla eftirlaunaáætlunum Sarkozys. Til að bæta gráu ofan á svart vom unnin skemmdarverk á jarnbrautar- teinum og búnaði lestarfélagsins. Nicolas Sarkozy er einarður í afstöðu sinni og sagði: „Við munum ekki gef- ast upp og við munum ekki hörfa." Treystir ekki á endurholdgun Dalai Lama, útlægur leiðtogi Tíbet, segir að hugsanlega muni hann tilnefna arftaka sinn eða kafla til kosninga áður en hann hverfúr yfir móðuna mikfu í stað þess að treysta á endurholdgun. Þetta segir hann að sé vegna nýlegra skipana ffá Kína sem kveða á um að nýr andlegur leiðtogi Tíbet verði að njóta sam- þykkis þarlendra stjórnvalda. Dalai Lama hefur verið í Japan, en ekki fengið hlýlegar móttökur embættis- manna sem reyna nú að bæta sam- skiptin við Kína. Hinn útlægi leiðtogi sakaði einmitt kínversk stjórnvöld um að herða ofsóknir gegn tíbetsk- um munkum og almenningi. Persónuupplýsingar glötuðust Bresk stjórnvöld liggja undir miklu ámæli eftir að upp komst að tveir tölvudiskar sem innahalda upplýs- ingar um tuttugu og fimm milljónir barnabótaþega eru týndir. Diskarnir geyma upplýsingar um nafn, fæðing- ardag og heimilisfang auk reiknings- númera í bönkum viðkomandi. David Cameron, leiðtogi íhaldsmanna, sagði að stjómvöldum hefði mistekist að uppfylla grundvaflarskyldu sína gagn- vart almenningi og hafa íhaldsmenn krafist afsagnar Alistairs Darling fjár- málaráðherra vegna málsins. Gordon Brown baðst afsökunar og sagði unnið að því að koma í veg fyrir að upplýs- ingamar á diskunum yrðu misnotaðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.