Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2007, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007
Sport DV
ÚRSLITGÆRDAGSINS
N1-DEILD KARLA
AKUREYRI-HK 26-27
Staðan Lið L u J T M St
1. Haukar 10 7 2 1 287:241 16
2.HK 10 7 1 2 274:243 15
3. Fram 10 6 1 3 287:260 13
4. Stjarnan 9 6 1 2 274:237 13
5.Valur 8 3 2 3 197:188 8
6. UMFA 9 2 2 5 227:240 6
7. Akureyri 10 2 1 7 262:282 5
8. ÍBV 10 0 0 10 250:367 0
ICELAND EXPR. DEILD KVK
HAUKAR-HAMAR 77-66
GRINDAVlK-FJÖLNIR 84-75
KEFLAVlK-VALUR 71-66
Staðan
Liö L U
1. Keflavík 8 8
2. Haukar 8 6
3. KR 7 5
4. UMFG 8 5
5. Valur 7 1
6. Hamar 8 1
7. Fjölnir 8 1
T skor St
0 705:522 16
2 667:628 12
2 575:487 10
3 657:587 10
6 424:549 2
7 505:610 2
7 489:639 2
ÍÞRÓTTAMOLAR
BJARNÓLFUR A LEIÐINNIBURT
Bjarnólfur Lárusson hefur væntanlega
leikið sinn síðasta leikfyrir KR. Logi
Ólafsson þjálfari KR hefurtilkynnt
honum þetta.
Bjarnólfur gekk I
raðir KR frá IBV árið
2004 og á enn tvö ár
eftirafsamningi
sínum við KR. KR
keypti nýverið Jónas
Guðna Sævarsson
frá Keflavlk og hefur
Logi gefið það út í
nóvember að hann
ætli að spila 4-4-2. Ekki er enn vitað
hvort Bjarnólfur ætli að taka slaginn og
berjast fyrir sæti sínu I liðinu eða leita á
önnurmið. Hann þarfvæntanlega ekki
að örvænta um að komast í lið því (12
liða deild næsta sumar þurfa lið á
miklum og öflugum mannskap.
FREYR ÓSATTUR VIÐ HJÖRT
Freyr Brynjarsson leikmaður Hauka í
handboltanum skrifar á blogg
Haukamanna að
hann sé mjög
ósáttur við Hjört
Hinriksson
leikmann Fram.
Hjörtursló til Freys
þegarhann vará
leið út af þannig að
Freyrféll við.
„Hjörtur Hinriks
sýnir þarna sitt
rétta andlit þegar hann slær mig niður
að algjöru óþörfu.Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem hann hagar sér á þennan
hátt og hvet ég dómara til að fylgjast
betur með þessum einstaklingi í
framtíðinni,” segir meðal annars í
blogginu. Freyr og Hjörtur hafa löngum
eldað grátt silfur en forvitnilegt verður
að sjá hvort dómarar hlýði kalli Freys.
FRANKFURT (UNDANÚRSLIT
Þýska liðið Frankfurt, sem sló meðal
annars útVal, varð ígærfyrst liða til að
tryggja sérsæti í
Evrópubikar-
keppninni (
knattspyrnu
kvenna. Frankfurt
vann rússneska
liðið Rossiyanká2-
1 í slðari leiknum í
Frankfurt, en fyrri
leiknum (Moskvu
laukmeð
markalausu jafntefli. Þettar er (5. sinn
sem Frankfurt kemst (undanúrslit en
liðið hefur tvlvegis unnið Evrópubikar-
inn.
DUFF BYRJAÐUR AÐ ÆFA
Damien Dufffrá írlandi hóf loksins
æfingar hjá
Newcastle United
eftirað hafaverið
frá í sjö mánuði
vegna meiðsla sem
hann hlaut í leik
gegn Portsmouth í
ensku úrvalsdeild-
inni í aprij. Meiðslin
virtust ekki
alvarleg ífyrstu en
urðu þó svo slæm að um tíma var óttast
að hann myndi ekki spila fótbolta á ný.
Duff hefur aðeins leikið 20 leiki með
Newcastle.
Valur leikur síðasta leik sinn í Meistaradeildinni í handbolta þegar liðið fær ungverska
liðið Vezprem í heimsókn í Vodafone-höllina. Rúmlega 150 Ungverjar eru væntanlegir
til landsins vegna leiksins til að styðja við bakið á sínu liði og óttast Óskar Bjarni Ósk-
arsson að fjölmenni fólk ekki í höllina gæti Valur hreinlega verið eins og á útivelli:
Ætlar að sýna kjark og þor Óskar
Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, ætlar ekki
að láta kappið bera fegurðina ofurliði.
BENEDIKT BÓAS HINKRISSON
blaðamaður skrifar: bennhpdv.is
Valsmennleikaíkvöldsíðastaleiksinn
í Meistaradeildinni í handbolta. Liðið
lenti í ógnarsterkum riðli með Gum-
mersbach, Celje Lasko og Veszprem
frá Ungverjalandi. Fyrirfram var ekki
búist við miklu íf á íslandsmeisturun-
um í riðlinum en liðið landaði sínum
fyrsta sigri í Meistaradeildinni þegar
það vann Celje Lasko og sýndi að allt
er hægt.
Óskari Bjarna Óskarssyni, þjálfara
Vals, líst vel á leikinn í kvöld en seg-
ir að Vezprém-liðið sé það sterkasta
í riðlinum. Því verði Valur að eiga al-
gjöran toppleik til að eiga möguleika
á sigri. „Það er alveg ótrúlegt að þetta
lið sé jafnvel að lenda í þeirri stöðu að
enda í þriðja sæti. Þeir hafa verið að
yngja upp. Þeir misstu Lazarov, sem
var næstmarkahæsti leikmaðurinn í
Meistaradeildinni í fyrra, hann hafði
verið allt í öllu hjá þeim. Þeir eru með
tvo framtíðarleikmenn og mjög góða
leikmenn í hverri einustu stöðu. Þetta
er hávaxið lið, hávaxnari skyttur þótt
það séu nokkrar stórar í hinum lið-
unum, meiri og skemmtilegri breidd
finnst mér. Enda hafa þeir haft und-
irtökin í öllum leikjum í 45-50 mín-
útur. En þeir hafa klúðrað því ein-
hverra hluta vegna, kannski eitthvað
reynsluleysi eða úthald. Að mínu mati
áttu þeir að vinna Celje, gerðu jafn-
tefli, voru betri gegn Gummersbach
en töpuðu þeim leik. Sama gerðu þeir
svo í heimaleiknum gegn Gummers-
bach, þá voru þeir sjö mörkum yfir í
seinni hálfleik. Þegar þeir hafa leikið
vel eru þeir mjög góðir en eins og er
stundum með ung lið eru þeir kafla-
skiptir."
Vezprem ekki verra en
ungverska landsliðið
Vezprem-liðið er skipað mörgum
efnilegum leikmönnum en inn á milli
detta inn gamlir jálkar. Markmaður-
inn er 38 ára, Perez frá Kúbu er 37 ára
og Pastor er einnig 37 ára. Óskar seg-
ir að Vezprem-liðið spili skemmtileg-
an bolta. „Þeir eru með fimm stráka
sem komu hingað til lands með ung-
verska landsliðinu og þetta lið er ekk-
ert verra en ungverska landsliðið segi
ég. Af því að þeir eru með serbneskan
landsliðsmann og rússneskan línu-
mann verður gaman að mæta þeim."
Ungverjarnir hafa stutt vel við sitt lið
og fjölmennt með liðinu á útlleiki
í Meistaradeildinni. Valsmenn bú-
ast við 150 háværum Ungveijum til
landsins sem koma til með að syngja
og tralla allan tt'mann.
„Við óttumst að við verðum eins
og á útivelli því þeir verða að vinna og
treysta á Gummersbach. Það koma
einhverjir með þeim með trommur
og þokulúðra og það verður gríðar-
stemning meðal þeirra. Það má ekki
gerast."
Liðin í riðlinum á stalli fyrir ofan
13 af 15 leikmönnum Vezprem-
liðsins eru landsliðsmenn og því ljóst
að við ramman reip verður að draga
fyrir Valsmenn. Óskar segir að liðið
refsi fyrir öll mistök og því þurfa Vals-
menn að vera óhræddir í sínum leik.
„Við þurfum að vera óhræddir við að
láta vaða á þetta. Sendingar sem eru
ekki vel ígrundaðar og allt þannig,
þeir refsa rosalega fyrir það. Það er nú
reyndar þannig með öll þessi lið.
Vezprem spilar sterka 6-0 vöm og
5-1 vöm og er óhrætt við að skipta
um kerfi. Við þurfum að vera fljót-
ir að átta okkur á því þegar þeir em
að breyta. Svo þurfum við að halda
í við þá, ekki missa þá í of mikinn
mun. Athuga hvernig þeir em þegar
munurinn er ekki svo mikill, þegar
10-15 mínútur em eftir. Þá er komin
smá pressa á þá og þeir hafa verið að
klúðra leikjunum á þeim augnablik-
um. Ef þetta verður leikur í 40 mín-
útur verður gaman að sjá hvað ger-
ist. En svo er þetta gamla tuggan að
við þurfum að eiga algjöran toppleik
til að eiga séns. Þessi lið em staíli fyr-
ir ofan okkur sem er eðlilegt. En við
emm með góða breidd og efvið erum
ekki á tánum er það okkar á bekkn-
um að skipta inn. Svo þurfum við að
brydda upp á einhverju, síðasti leik-
urinn okkar og svona, reyna eitthvað
ferskt. Vera djarfir í sókn og vörn, gera
eitthvað nýtt," sagði Óskar Bjarni.
Gunnar Nelson mætir Hollendingnum Niek Tromp í blönduðum bardagalistum á laug-
ardaginn á Cage of Truth, Battle of the Bay-mótinu í Dublin:
BARDAGIGUNNARS
ERFIÐASTI
Gunnar Nelson, bardagakappi í
blönduðumbardagalistum, mætirHol-
lendingnum Niek Tromp á laugardag í
Cage of Tmth, Battle of the Bay-mót-
inu í Dublin. Þetta verður aðalbardagi
kvöldsins en Pólverji sem átti að mæta
Niek Tromp á við meiðsli að stríða og
var Gunnari boðinn bardaginn í hans
stað. Þetta er mikill heiður fyrir Gunn-
ar og sýnir að frábær frammistaða hans
í tveimur síðustu keppnum, þar sem
hann sigraði andstæðinga sína í 1. lotu,
hefur vakið verðskuldaða athygli.
Bardaginn við Niek Tromp verður
hins vegar vafalítið erfiðasti bardagi
Gunnars hingað til því Hollending-
urinn er enginn nýgræðingur í íþrótt-
inni. Tromp hefur barist í 17 MMA-
bardögum á ferlinum og hefur sigrað
í 15 þeirra.
Hann hefur ekki tapað í tvö og hálft
ár og unnið síðustu 12 bardaga í röð
og 8 þeirra í fyrstu lotu.Tromp er að
fara að berjast um Evrópumeistaratit-
il Shooto á móti í Belgíu 15. desember
næstkomandi.
Það eru sumir sem telja að Gunn-
ar eigi ekki mikla möguleika í Niek
Tromp, miðað við reynslu Tromps og
affekaskrá, auk þess sem Hollending-
urinn er nokkru þyngri en Gunnar.
Hins vegar er það, að Gunnari skuli
bjóðast þessi bardagi, virðingarvottur
út af fyrir sig og þetta verður án efa dýr-
mæt keppnisreynsla fyrir hann í þess-
ari harðgerðu íþrótt. Gunnar er aðeins
19 ára en hefur hægt og bítandi fikrað
sig upp metorðastigann í MMA.
Bardaginn við Niek Tromp verður
aðeins fjórði MMA-bardagi Gunnars
Nelson á ferlinum en Gunnar keppti
sinn fyrsta MMA-bardaga 1. maí síð-
astliðinn í Kaupmannahöfn gegn
einum besta MMA-keppanda Dana,
John Olesen. Sá bardagi var úrskurð-
aður jafiitefli af dönsku dómurunum
og mátti Olesen mjög vel una við þann
úrskurð. Gunnar sigraði síðan Frakk-
ann Driss E1 Bakara í 1. lotu á móti í
Dublin 29. september síðastliðinn
og síðan Pólverjann Adam Slawinski
einnig í fyrstu lotu á móti í Galway á
Norður-írlandi 6. október. Gunnar
hefur æft stíft í Manchester á Englandi
fyrir komandi átök.
Tilbúinn íslaginn
Gunnar Nelson mætir Hollendingi (
MMA, NiekTromp að nafni.