Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2007, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007
Fréttir DV
Einn milljarður
í opin svæði
Frumvarp að fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 2008
var lagt fram og rætt í borgar-
stjórn í gær. Einn milljarður á að
fara í uppbyggingu opinna svæða
og útivistaraðstöðu í öllum hverf-
um borgarinnar og 700 miljónir í
að leysa manneklu.
Gert er ráð fyrir endurgerð
Lækjartorgs og Ingólfstorgs og
flutningi gamalla húsa í mið-
borginni. Álagningarprósenta
fasteignaskatts í Reykjavík verður
óbreytt á næsta ári. Það þýðir að
tekjur aukist um 270 milljónir
króna sem nota á til að bæta úr
húsnæðisþörf í borginni.
Bjarga fleiri tífum
Öll böm í fyrsta bekk fá
gefins reiðhjólahjálma en
Kiwanishreyfingin, Eimskip
og Safalinn hafa gert samn-
ing til næstu þriggja ára um
kaup og dreifingu á hjálm-
um til allra barna í fyrsta bekk
grunnskóla landsins líkt og
gert hefur verið undanfarin
ár. „Kiwanishjálmarnir hafa
vakið verðskuldaða athygli á
heimsvísu innan hreyfingar-
innar," segir Gylfi Ingvarsson,
umdæmisstjóri Kiwanis. Hátt
í 20 þúsund börn hafa notið
góðs af þessari gjöf Eimskips
og Kiwanis og hafa þeir nú
þegar bjargað lífi barna sem
hafa notað þá.
Spölur hagnast
Hagnaður Spalar, rekstrar-
aðila Hvalfjarðarganga, var 112
milljónir króna á þriðja ársfjórð-
ungi þessa árs. Á sama tímabili
í fyrra var hagnaður Spalar hins
vegar 153 milljónir króna. Þá seg-
ir í uppgjöri Spalar að hagnaður
félagsins á síðasta rekstrarári hafi
numið um 282 milljónum króna
sem var mikil hækkun frá árinu
á undan þegar hagnaðurinn
nam um átta milljónum króna.
Veggjöld á árinu námu rúmum
milljarði og voru lidu meiri en
árið á undan. Um tvær milljónir
ökutækja fóru í gegnum göngin á
síðasta ári.
Heiða Björk Ásbjörnsdóttir, móðir eins árs gamals
stráks, þurfti að borga dagmóður 95 þúsund krónur
fyrir fjóra daga. Sonur Heiðu veiktist eftir nokkra
daga og ákvað hún að færa hann til annarrar dagmóð-
ur i kjölfarið. Hún þurfti að skrifa undir samning
fyrsta daginn því annars fengi hún ekki plássið. Gunn-
hildur María Sæmundsdóttir, leikskólafulltrúi í Mos-
fellsbæ, segir að slík mál séu erfið viðureignar.
Barn að leik Heiða Björk þurfti
að borga 95 þúsund krónur vegna
fjögurra daga hjá dagforeldri.
EINAR ÞÓR SIGURÐSSON
blodamadur skrifar: einar^dv.is
j* — r'A
„Kostnaðurinn vegna þessara fjög-
urra daga var 95 þúsund krónur,"
segir Heiða Björk Ásbjörnsdóttir,
móðir eins árs gamals stráks. Heiða
Björk lenti í þeirri miður skemmti-
legu reynslu að vera rukkuð af dag-
mömmu um 95 þúsund krónur
vegna fjögurra daga. „Við byrjuð-
um hjá dagmömmunni 22. októb-
er síðastíiðinn. Við vorum búin að
semja um að borga henni 25 þús-
und krónur vegna þess að við byrj-
uðum svo seint í mánuðinum. Svo
veiktist hann eftir fjóra daga og það
var eitt af öðru sem leiddi til þess að
við kærðum okkur ekki um að hafa
hann hjá henni," segir Heiða.
Hótað lögfræðingi
unni upp tilkynnti dagmamman að
það verði að segja upp skriflega fyrir
fimmtánda hvers mánaðar því ann-
ars þyrfti að borga heilan mánuð á
eftir. „Þegar upp var staðið þurftum
við að borga henni 95 þúsund krón-
ur fyrir þessa fjóra daga. Við hefð-
um því að hennar áliti þurft að segja
henni upp heilli viku áður en við
byrjuðum. Mér fannst þetta hrika-
lega ósanngjarnt, ekki síst vegna
þess að ég fékk ekkert í hendurn-
ar eftir að ég borgaði henni," segir
Heiða.
„Þegar við komum með strák-
inn til hennar fengum við samning
í hendurnar. Hún sagði okkur að
við þyrftum að skrifa undir samn-
inginn á staðnum, öðruvísi fengj-
um við ekki pláss. Við vorum búin
að fá inni á leikskóla fyrir hann en
stuttu áður fengið tilkynningu um
að ekki væri hægt að taka á móti
honum vegna manneklu á leik-
skólum."
„Ég fékk ekkert í
hendurnar eftir að
ég borgaði henni."
Sjálfstæð stétt
Gunnhildur María Sæmunds-
dóttir, leikskólafulltrúi í Mosfellsbæ,
segist ekki geta tjáð sig um einstök
mál sem upp koma. Hún segir þó að
dagforeldrar séu í raun sjálfstæðir at-
vinnurekendur og því ekki á vegum
sveitarfélagsins. „Það eru til reglur
um starfsemi þeirra en þær reglur
lúta flestar að aðbúnaði barnanna
og hvernig samskiptum dagfor-
eldra og foreldra barnanna er hátt-
að." Heiða segist hafa haft samband
við Reykjavíkurborg og fengið þau
skilaboð að þetta væri ekki í fyrsta
skipti sem kvartað væri undan dag-
mæðrum. „Ég fékk þau skilaboð að
það væri ekkert hægt að gera vegna
þess að við búum í Mosfellsbæ. Ég
talaði við bæjaryfirvöld hér og þau
sögðust ekki heldur geta gert neitt.
Þetta er starfsstétt sem virðist geta
samið reglur eftir sínu eigin höfði.
Dagmömmur sem ég hef talað við
segja að það sé skrítið að láta mann
skrifa undir samning áður en aðlög-
unartíma er lokið. Við erum núna
hjá mjög góðri dagmömmu en þurf-
um að vísu að sækja hana alla leið til
Reykjavíkur."
Engar reglur til
Gunnhildur segir að samkvæmt
reglum eigi að gera vismnarsamning
þegar bam byrjar hjá nýju dagfor-
eldri. Aðspurð hvort ekki sé kveðið á
um aðlögunartíma segir hún að svo
sé, en ekki sé tíundað hversu lang-
ur sá samningur er. „Það er einungis
talað um að það eigi að vera aðlög-
unartími en ekkert talað um hversu
langur sá tími er. Þess vegna er þetta
samkomulagsatriði milli foreldra og
dagforeldra. Þar sem dagforeldrar
Eftir að Heiða sagði dagmömm-
160 m2 íbúð á tveimur hæðum (101 Reykjavlk til leigu.
Efri hæð. Eldhús og stofa er eitt opið rými, innrétting
er svart háglans sprautulökkuð og granit borðplata,
tæki með stáláferð, innbyggð uppþvottavél fylgir
með. Eikarparkett á gólfum. Salerni flísalagt í hólf
og gólf, handlaug og vegghengt klósett svört að lit,
stór spegill með flúorlýsingu. Neðri hæð: Hringstigi milli
hæða. Þrjú svefnherbergi annað með fataherbergi innaf.
Sjónvarpsými. Á gólfum er eikarparkett. Allar hurðar eru
háglans svart sprautulakkaðar. Stórt og rúmgott baðherbergi með Ijósum flfsum á
veggjum og gólfi, hornbaðkar og rúmgóður sérsmíðaður sturtuklefi, góð innrétting,
handlaug á borði og spegill, halógenlýsing ofan viö innréttingu, hiti i gólfi. Þvottahús
og geymsla með flisum á gólfi, hiti i gólfi. Húsgögn fylgja Útg. I sameiginlegan garö.
Athugið eingöngu leigttil fyrirtækja.
Upplýsingar e-mail agust.magnusson@gmail.com
Sjálfstæðismenn telja oddvita framsóknarmanna áhrifalítinn:
Vængstífður Björn Ingi
Bjöm Ingi Hrafiisson, formaður
borgarráðs og oddviti Framsóknar-
flokksins í borgarstjóm, á ekki í nein
hús að venda eftir að eigendafund-
ur Orkuveitunnar var nýlega dæmd-
ur ógildur og fallið frá sameiningu
Reykjavíkur Energy Invest, REI, og
Geysis Green Energy, GGE. Það er
skoðun Sigurðar Kára Kristjánssonar,
þingmanns Sjálfstæðisflokks. „í þessu
ljósi skil ég ekld hvers vegna Bjöm Ingi
sprengdi meirihlutann. I dag er hann
í sömu stöðu, ef ekki verri, en hann
var í áður en sprengingin varð. Þetta
er frekar slappur díll fyrir Bjöm Inga
og ég fæ ekki betur séð en hann standi
eftir vængstífður og áhrifalítill," segir
Sigurður Kári.
Þegar ýmis vafamál komu fram í
dagsljósið við fýrirhugaða sameiningu
REI og GGE mótmæltu borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins harðlega og gagn-
Björn Ingi og Svandís Sigurður Kárl
telur Björn Inga í vondri stöðu og bendir
á að Svandís hafi í raun verið að sættast
við sjáifa sig undanfarið.
rýndu slaka upplýsingagjöf. Fulltúam-
ir vildu losa sig út úr sameiningunni
með því að selja hlut Orkuveitunnar
hið fyrsta. I kjölfarið taldi Bjöm Ingi sig
ekki lengur geta starfað með flokknum
í meirihluta borgarstjómar og lýsti því
yfir að hann vildi halda áfram samein-
ingarferlinu.
Sigurður Kári skilur ekki hvemig
Bjöm Ingi getur sætt sig við þessa nið-
urstöðu og veltir fyrir sér hvort hann
muni sprengja núverandi meirihluta
í lqölfarið. Spurður um niðurstöðu
dómsmáls Svandísar Svavarsdóttur,
borgarfulltrúa vinstri grænna, er hann
í sjálfu sér ánægður með niðurstöð-
una. Hann bendir aftur á móti á fjár-
muni borgarbúa sem fóm í málskostn-
aðinn. „Mér finnst í raun merkilegt að
horfa upp á þetta. Hún höfðar mál í
minnihluta og eftir sviptingar er hún
komin í rannsóknarhlutverk á máls-
höfðun sjálfrar sín. Ég efast ekki um
að sáttaumleitanimar hafi verið gríð-
arlega strangar enda var þar Svandís
að semja við sjálfa sig," segir Sigurður
Kári. trausti@dv.is