Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2007, Page 15
DV Sport
FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 15
Englendingar verða ekki á EM 2008 eftir sigur Króata á Wembley:
Englendingar eru fallnir úr
keppni í Evrópukeppni landsliða eft-
ir að Króatar unnu leik þjóðanna 2-3
á Wembley. Rússar sigruðu Andorra
á sama tíma og skutust upp fyrir Eng-
lendinga í E-riðli
Leikurinn var ekki nema 14 mín-
útna gamall þegar Króatar höfðu náð
tveggja marka forystu. Fyrra markið
gerði Nico Krancjar með skoti af 35
metra færi sem Scott Carson mark-
vörður Englendinga missti í netið á
klaufalegan hátt. Margir hafa eflaust
hugsað með sér að það væri sama
hver stæði í markinu hjá Englandi,
markverðirnir eru alltaf slakir.
Eftir markið var eins og leikmenn
og áhorfendur Englands væru í losti.
Leikmenn misstu boltann í tíma og
ótíma, burðarrásar í liðinu virtust
fjarri sínu besta. Króatarnir virtust
hins vegar frískir og tilbúnir að bæta
við mörkum.
Ensku leikmennirnir tóku sig taki
í upphafi síðari hálfleiks. Á 55. mín-
úm var dæmd vítaspyrna á Króata.
Simunic togaði í Defoe og vítaspyrna
réttilega dæmd. Lampart skoraði ör-
ugglega úr henni.
Peter Crouch jafnaði leikinn fyrir
England á 66. mínútu. David Beck-
ham sem kom inn á sem varamaður
átti íyrirgjöf á Crouch sem var einn
og óvaldaður og skoraði gott mark.
Króatar voru staðráðnir í að kom-
ast aftur yfir í leiknum og samstundis
virtist koma mikið óöryggi í Englend-
inga. Á 74. mínútu skoraði Mladen
Petric með góðu skoti úr teignum og
Englendingar voru á leið úr keppn-
inni. Þrátt fyrir örvæntingafúllar til-
raunir Englendinga tókst þeim ekki
að setja nægilega mikinn sóknar-
þunga að marki Króata til að skora í
lokin og niðurstaðan 2-3 útisigur.
Steve McLaren var vonsvikinn
eftir leik en hann ætlar ekki að segja
af sér. „Ég tek fulla ábyrgð á þessu. Eg
Gleði og sorg Englendingar sitja eftir með sárt ennið og leika ekki á EM 2008.
vel liðið og ég sagði að það væri hægt
að dæma mig eftir tólf leiki og svo
mun verða á næstu dögum.
Ég ætla ekki að segja af mér en
ég hef engan áhuga á því að tala
um framtíð mína," sagði sársvekktur
McLaren eftir leikinn.
vidar@dv.is
ENGLANDSLAUSTEM