Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2007, Side 11
tóá
PREMIER
LEAGUE
Arsenal lenti í vandræðum með Aston Villa en náði þó að knýja
fram 2-1 sigur. Arsenal er með fimm stiga forskot á toppi
deildarinnar eftir leiki helgarinnarog er enn taplaust.
Þrír nýir stjórar við
strjórnvöíinn um
helgina:
MISJAFNT
GENGINÝJU
STJÓRANNA
Þrír knattspyrnustjórar stýrðu
liðum sínum í fyrsta sinn í ensku
úrvalsdeildinni um helgina. Um er
að ræða Paul Jewell, stjóra Derby,
Steve Bruce, stjóra Wigan, og Alex
McLeish, stjóra Birmingham.
Paul Jewell tók við starfi knatt-
spyrnustjóra hjá Derby eftir að Billy
Davies var rekinn. Viss batamerki
voru á leik Derby um helgina, en
liðið varð þó að sætta sig við 0-1 tap
gegn Sunderland. Blikur eru á lofti
um að Jewell eigi eftir að fylla upp í
hripleka vörn Derby-liðsins.
Steve Bruce sagði starfl sínu
lausu hjá Birmingham á dögunum
og tók við Wigan. Liðið fékk spútnik-
lið Man. City í heimsókn á laugardag
og gerði 1-1 jafntefli. Bruce hlýtur
þó að hugsa sig tvisvar um áður en
hann velur Titus Bramble í liðið aft-
ur því Bramble gerði herfileg mistök
á fýrstu mínútu og færði Man. City
mark á silfurfati.
Það var hins vegar Skotinn Alex
McLeish sem byrjaði best af nýju
stjórunum því lið hans Birming-
ham sigraði Tottenham 3-2 í leik
helgarinnar.
vördur
lceland Express
vodafone
BOLTINN
VEXTIR FRA
AÐEINS
3,2%
Miðað við myntkörfu 4,
Libor-vextir 24.7.2007.
Þannig er má
með vexti ...
... að það er
hægt að létta
greiðslubyrðina
FRJÁLSI