Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2007, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2007, Blaðsíða 32
 Litlar santlokur 399 kr. + lítið gosglas 100 kr. = 499 kr. FRÉTTASKOT 5 1 2 70 70 DV borgar 2.500 krónurfyrirfréttaskot sem leiðirtil frétta. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. MANUDAGUR 3. DESEMBER 2007 ■ DAGBLAÐIÐ VlSIR STOFNAO 1910 *• > Castro í framboð Fidel Castro, forseti Kúbu, býður sig ffam í þingkosningunum sem fara fram í landinu í janúar. Að mati stjórnmálaskýrenda bendir fram- boð Castros til þess að hann ætli að sitja áfram sem forseti, þrátt fyrir að hafa verið lengi frá vegna veikinda. Castro er 81 árs, en Raul bróðir hans hefur stýrt landinu síðustu sextán mánuði. Til þess að halda völdum formlega á Kúbu verður Castro að eiga sæti á þinginu. Skrifstofan innsigluð Skrifstofa Brynjólfs Árnasonar, sveitarstjóra í Grímyjy, hefur verið innsigluð að kröfu »nna tveggja sveitarstjórnarmannanna í hreppn- um. Alfreð Garð- arsson sveitar- stjórnarmaður vildi ekkert tjá sig um málið þegar DV náði tali af honum en staðfesti þó að skrifstofa Brynj- ólfs hefði verið innsigluð. Brynjólfur var í síðustu viku dæmdur í þriggja mánaða skil- orðsbundið fangelsi fýrir fjárdrátt. Hann dró að sér 12.900 lítra af olíu frá því í janúar árið 2003 og fram í ágúst 2007. Þá starfaði hann sem umboðsmaður Olíudreifingar ehf. Olíuna notaði Brynjólfur til að hita upp heimili sitt og verslun sem hann rak á þeim tíma. Fjögur umferðaróhöpp Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um fjögur umferð- aróhöpp aðfaranótt sunnudags. Á Þingvallavegi sofnaði ökumaður undir stýri og keyrði út af. Bíllinn valt á hliðina en maðurinn slapp með skrámur. Sautján ára piltur misstí sjórn á bfl sínum í beygju við Grjótháls og keyrði á tvo kyrrstæða vörubfla. Orsökin er hraðakstur og er bfllinn mikið skemmdur. Þá fór bfll út af í beygju við Höfðabakka, en engan sakaði. Klukkan sjö í gær- morgun valt bfll við Straumsvík og endaði á toppnum úti í hrauni. Ökumaður var fluttur á slysadeild en meiðsl voru minniháttar. Fóru þeir kannski á trúnaðarstigið? Stjórnendur Strætós áminna trúnaöarmenn og stjórnarmenn vagnstjóra vegna ölvunar: TRÚNAÐARMENN STRÆTÓS ÆFIR VEGNA ÁMINNINGA TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti&dv.is Trúnaðarmenn vagnstjóra Strætós bs. og stjórnarmenn starfsmanna- félags vagnstjóra hafa verið víttir í starfi af yfirstjórn fyrirtækisins. Það var gert eftir kokkteilsamkomu fýr- irtækisins í síðustu viku þar sem frá- farandi trúnaðarmenn voru kvaddir. Á samkomunni var boðið upp á léttvín, um fimmleytið síðdegis héldu starfsmennirnir á biðstöð vagns- tjóra við Hlemm til að heilsa upp á starfsfélaga sína og tóku síðan strætó heim. Daginn eftir fengu þeir allir bréf frá stjórnendum Strætós bs. þar sem varað er við áminningu í starfi vegna ölvunar. Trúnaðarmennirnir sögðu allir af sér í gær og hafa leitað til lögfræðings stéttarfélagsins. Köld kveðja Jóhannes Gunnarsson, fýrstí trúnaðarmaður Strætós bs., undr- ast vinnubrögð stjórnendanna og er æfur yfir áminningunni. Hann stað- festir að trúnaðarménnirnir hafi sagt af sér og íhugi jafnvel kæru. „Glæpur okkar er enginn og aðför fyrirtækis- ins að okkur er þvættingur. Við kíkt- um á vinnufélagana eftir móttökuna og stjómendurnir túlkuðu okkur sem ofurölvuð. Það var hins vegar ekki þannig. Vinnubrögð stjórnenda em alveg með ólfldndum og leitað hefur verið til lögreglu," segir Jóhannes. Á föstudag voru þeir kallaðir inn til stjórnenda fýrirtækisins og gafst þeim kostur á að svara ásökununum fyrir miðvikudag. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætós bs., stað- festír ágreininginn sem upp er kom- inn. „Okkur barst tilkynning vegna gmnsemda um ölvaða vagnstjóra á „Þetta var í raun fyrsti dagurinn okkarí emb- ætti og á þeim degi fengum við heldur bet- ur kaldar kveðjur frá fyrirtækinu" Hlemmi og að okkar mati væri það ekki ásættanlegt. Starfsmennirnir fengu frí frá vinnu vegna félagsstarfa og okkur stjórnendunum finnst ekki í lagi að þeir skili sér ölvaðir. Við telj- um slíkt ámælisvert," segir Reynir. Hóta sniðgöngu Samkvæmt heimildum DV var lögregla látin elta uppi Friðrik Ró- bertsson, vagnstjóra og einn sam- komugestanna, morguninn eftir og Óslóartréð Ljósin voru kveikt á jólatrénu við Austurvöll í gær, en (rúma hálfa höld hefur Óslóarborg gefið Reykjavlkurborg tré. ( ár var tréð höggvið við Sognsvann og er rúmlega 12 metra hátt. Það var hinn 10 ára gamli norsk-íslenski Árni Óttar Halldórsson sem fékk þann heiður að kveikja Ijósin á trénu. dvmynd-ásgeir Neytendastofa úrskurðar gegn Kristal Plus: Of margar hitaeiningar Neytendastofa hefur úrskurðað að Ölgerðin Egill Skallagrímsson hafi gerst brotleg gegn lögum með því að auglýsa Kristal Plús sem hitaeininga- og kolvemasnauðan drykk. Vífilfell kærði ölgerðina á síðasta ári til Neyt- endastofu vegna villandi orðanotkun- ar þar sem, að þeirra matí, hafi orðið ljóst að drykkurinn innihéldi hitaein- ingar. Neytendastofa hefur nú fallist á að banna Ölgerðinni að kynna Krist- al Plús sem hitaeininga- og kolvema- snauðan drykk. I kæru tfl Neytendastofu er kvartað yfir því að þegar drykkurinn er borinn saman við aðra kolsýrða, bragðbætta drykki kemur í ljós að hann er ekki hitaeiningasnauðari en þeir. Þvert á mótí innihaldi hann fleiri hitaeiningar. I hann er bætt vítamínum, ávaxtasafa sem inniheldur ávaxtasykur og bragð- efnum en venjulegur Kristall inniheld- ur ekki neitt af því. Ölgerðin heldur því fram að bera verði drykkinn saman við gosdrykki. Miðað við þá inniheldur Kristall Plús mun færri hitaeiningar en þeir. Auk þess bendir Ölgerðin á að drykkurinn sé fullur af hollum næringarefnum og vítamínum. Hörður Harðarson, framkvæmda- stjóri markaðssviðs Ölgerðarinnar, segir að þessi niðurstaða hafi eng- in áhrif á fýrirtækið. „Úrskurður- inn einn og sér skiptír engu máli fyr- ir okkar markaðsstarf. Við stöndum eftír með sama góða drykkinn." Hann bendir einnig á að þeir hafi bor- ið drykldnn saman við alla kolsýrða drykki á markaðnum en mat Neyt- endastofu er miðað við vatn. „Þetta snérist um orðalag," bætir hann við. Stoppuðu á Hlemmi Að loknu kokkteilboði komu trúnaðarmennirnir við á Hlemmi og tóku síðan strætó heim. Þeir eiga von á áminningu vegna ölvunar. þurftí hann að blása í áfengismæli. Hann er verulega ósáttur og íhugar bæði uppsögn og málsókn. Jóhannes segir að yfirmennirn- ir vilji ekki halda í trúnaðarmenn- ina. „Við skiljum ekki hvað er í gangi. Þetta var dagurinn okkar í embættí og á þeim degi fengum við kaldar kveðjur." Samkvæmt bókinni Valgerður Sverrisdóttir, al- þingismaður Framsóknarflokks- ins, var stödd í Rostov í Rússlandi um helgina til að fylgjast með framkvæmd þingkosninganna. Hún er þar á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Að hennar sögn var ekki annað að sjá en allt færi þar ffarn sam- kvæmt bókinni og það ríkti há- tíðarstemning meðal íbúanna. Valgerður sagði að það væri gam- an að upplifa þennan dag með rússneskri alþýðu og að allt virt- ist vera vel sldpulagt. Valgerður sagðist ekki geta svarað tíl um hvernig ástandið væri annars staðarílandinu. Slagsmál á Stokkseyri Tveir karlmenn gism fanga- geymslur lögreglunnar á Selfossi aðfaranótt sunnudags. Annar mannanna var handtekinn eftír slagsmál sem brumst út á Stokkseyri á balli sem var haldið þar á laug- ardagskvöld. Að sögn lögreglunn- ar myndaðist mikil stemning fýrir utan skemmtistaðinn sem endaði í slagsmálum. Hinn var handtekinn í gleðskap sem var haldinn á Hótel Selfossi en sá hafði ráðist á annan mann. Mennirnir voru báðir færðir í fangageymslu þar sem þeir voru látnir sofa úr sér áfengisvímu og var sleppt í gær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.