Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Síða 7
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 7
FÓLKÁRSINS
Fjölmiölar voru margir hverjir
duglegir að útnefna fólk ársins
um áramótin. Nokkuðfleiri
karlmenn en konur urðu fyrir
valinu hjá hinum ýmsu miðlum
sem völdu mann ársins.
SVANDfS A RÁS 2
Svandís Svavarsdóttir var valin
maður ársins á Rás 2. Hún var
áhrifamikil IREI-
málinu sem og
atburðarásinni
sem leiddi til falls
meirihluta
Sjálfstæðisflokks
og Framsóknar-
flokks í Reykjavík
á síðasta ári.
Svandís varð I huga fólks
leiðtoginn sem vann gegn hinu
óheiðarlega sem fylgdi þvi máli.
BJÖRGÓLFUR
Á VIÐSKIPTABLAÐINU
BjörgólfurThor Björgólfsson er
einn helsti kaupsýslumaður
landsins. Að mati
blaðsins á hann
einnig ein bestu
viðskipti ársins.
Það ersala
fjárfestingafélags
hans á búlgarska
símanum BTC,
velgengni
lcesave, innlánsreiknings
Landsbankans í Bretlandi og
hlutafjáraukning Baugs í FL
Group.
JÓN ÁSGEIR A MARKAÐNUM
Markaðurinn valdi Jón Ásgeir
Jóhannessonmann ársins.
Honum var talið
til tekna að hafa á
síðasta ári tekið
frumkvæði að því
að stýra
fyrirtækjum á
góðan hátt í
ölduróti
viðskiptalffsins.
Hann segir sjálfur að ágætt
jafnvægi hafi verið í rekstri Baugs
á árinu.
JÓHANNES
A ÚTVARPI SÖGU
Útvarp Saga segir Jóhannes
Jónsson, kenndan við Bónus,
eiga þennan titil
skilið vegna þess
hve góðum
árangri hann
hefur náð á sviði
viðskipta án þess
að þurfa njóta
aðstoðar
opinbera
kerfisins. Hann hefur f gegnum
tíðina lagt frekar áherslu á
samskipti sín við viðskiptamenn
en að treysta á ríkisvaldið. Að
þeirra mati mikill frumkvöðull.
FfKNIEFNAGÆSLA
VERÐLAUNUÐ
Fikniefnagæsla landsins þótti
bera af á síðasta ári að mati
fréttastofu
Stöðvar 2 og var
valin maður
ársins. Hún hefur
sýnt framúrskar-
andi vinnubrögð
i að uppljóstra
um hinýmsu mál.
Má þar á meðal
nefna smyglmáliö á Fáskrúðsfirðl
og öflugar varnir í Leifsstöð. Fyrir
jólin náði hún einu mesta magni
E-taflna sem fundist hefur á
fslandi eða 23 þúsund töflum.
NÝTT LÍF FREYJU
Freyja Haraldsdóttir var kona
ársins að mati Nýs Lifs. Hún sendi
frá sér bókina
Postulín ásamt
Ölmu Guð-
mundsdóttur. I
henni lýsir hún
lífi sínu og
hvernig það er að
lifa með fötlun.
Árið 2007 fór hún
á milli skóla og flutti fyrirlesturinn
„Það eru forréttindi að lifa með
fötlun". Með honum reynir hún
að opna augu fólks fyrir því að
hægt sé að lifa góðu lifi þrátt fyrir
fötlun.
vn
tM
Brotamönnum yngri en 15 ára
hefur fjölgað um 670 prósent
síðustu 4 ár. Af kærum til lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu má sjá að ungum brota-
mönnum fjölgar hratt á meðan
eldri brotamönnum fækkar. Geir
Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn
höfuðborgarlögreglunnar, vonar
að ungum brotamönnum haldi
ekki áfram að fjölga.
Sífellt yngri Kærurtil lögreglunn-
ar a höfuðborgarsvæðinu hafa
síðustu ar beinst í auknum mæli að
ungum brotamönnum.
wv
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Nærri 500 ungir afbrotamenn voru
kærðir í umdæmi lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári.
Af þessum íjölda var fimmtungur
brotamannanna undir 15 ára aldri
og teljast því ósakhæfir samkvæmt
hegningarlögum.
92 ungmenni undir 15 ára aldri
voru kærð til lögreglunnar á ár-
inu 2007 vegna hegningarlagabrota
og eru það færri tilvik en árið 2006
þegar 106 ungir afbrotamenn voru
kærðir. Engu að síður hefur brotum
ungmenna fjölgað gífurlega á síð-
ustu árum og gera má ráð fyrir því að
brotamenn úr yngsta aldurshópnum
séu jafnvel enn fleiri því að ósakhæf
börn sem brjóta af sér eru ekki alltaf
kærð fyrir brot sín.
Yfir jólahátíðina sat einn ungur
afbrotamaður í fangelsi og annar var
vistaður á stofnun bamaverndaryfir-
valda án þess að fá tækifæri til þess
að eyða jólunum í faðmi fjölskyldu
sinnar.
Ungum fjölgar og eldri fækkar
Ef horft er til síðustu ára kemur í
ljós gríðarleg aukning afbrota ósak-
hæfra ungmenna. Börn yngri en 15
ára frömdu 670 prósentum fleiri
brot í fyrra í samanburði við árið
2003. Á síðasta ári vom 92 ósakhæf
ungmenni kærð til lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu á meðan að-
eins 12 ósakhæfir einstaklingar voru
kærðir fyrir fimm árum.
Þá hefur einnig fjölgað í aldurs-
hópi 15 til 24 ára brotamanna því
þeim hefur fjölgað um 25 prósent
frá árinu 2003. Þá voru ríflega 1.300
eintaklingar kærðir á meðan ríflega
1.700 vom kærðir í fyrra.
Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu-
þjónn lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu, hefur óneitanlega áhyggj-
ur af tölfræði síðustu ára sem sýni
töluverða fjölgun yngstu afbrota-
mannanna. Sjálfur segist hann eng-
ar skýringar hafa á þeirri þróun. „Við
sjáum alltaf yngra og yngra fólk í
flestum brotaflokkum. Það er engin
einföld skýring á þessu en það hef-
ur verið ákveðinn faraldur í brotum
ungra krakka. Það er spurning hvort
þetta sé tengt árgöngum, við höfum
Geir Jón Þórisson Yfirlögregluþjónn-
inn hefuráhyggjuraffjölgun ungra
brotamanna og vonar að þetta sé
bundið við árganga.
áður séð þannig mynstur," segir Geir
Jón.
Árásir og innbrot
Ungir afbrotamenn em langsam-
lega-oftast kærðir fyrir ýmist líkams-
árásir, innbrot eða eignaspjöll. Ef
„Við sjáum alltafyngra
og yngra fólk í flestum
brotaflokkum."
horft er til heildarfjölda siíkra brota á
árinu kemur í ljós að ungmenni und-
ir 18 ára aldri frömdu að meðaltali
ríflega fjórðung brotanna, eða tæp
27 prósent.
Athygli vekur að yngstu aldurs-
hópar brotamanna em þeir einu
sem fjölgar hlutfallslega því ef horft
er til kærufjölda eldri aldurshópa má
sjá fækkun í þeim öllum. Á meðan 15
til 24 ára brotamönnum hefur fjölgað
um 25 prósent milli ára hefur fækkað
um 15 prósent í næsta aldursflokki
þar fýrir ofan, 25 til 34 ára.
Aðspurður hefur Geir Jón veruleg-
ar áhyggjur af þróuninni. „Við höfum
mjög svo miklar áhyggjur af þessu.
Ég heyri það á mínu fólki og verkefni
hverfislögreglumanna eru sífellt að
aukast þegar kemur að brotamönn-
um undir sakhæfisaldri. Þetta hefur
töluvert aukist hjá okkur og vonandi
megum við ekki búast við þessari
þróun áfram," segir Geir Jón.
Brynjólfi Árnasyni sagt upp störfum sem sveitarstjóra:
Mætti ekki á fundinn
Brynjólfi Árnasyni, sveitar-
stjóra Grímseyjarhrepps, hefur
verið sagt upp störfum. Uppsögn-
in kemur í kjölfar rannsóknar
annarra sveitarstjómarmanna og
sérfræðinga á meintum bókhalds-
svikum og skjalafalsi Brynjólfs.
Sveitarstjórnarmenn í Grímsey
höfðu reynt að boða hann á fund
milli jóla og nýárs til að ræða þá
stöðu sem upp var komin. Brynj-
ólfur sá sér hins vegar ekki fært að
mæta og boðaði forföll í tvígang.
Því fór lögmaður sveitarstjóm-
armannanna með bréf til Brynj-
ólfs en í því stóð meðal annars að
búið væri að vísa honum frá.
Upp komst um mál Brynj-
ólfs þegar DV fjallaði um þjófn-
að hans á 12.900 lítrum af olíu.
Olíuna notaði hann meðal ann-
ars til að hita upp heimili sitt og
verslunina Grímskjör sem hann
rak áður. Brynjólfur var dæmd-
ur í þriggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir ijárdráttinn.
Aðrir sveitarstjórnarmenn vissu
ekki af þjófnaðinum en í kjölfar-
ið vöknuðu grunsemdir um að
ekki væri allt með felldu í fjármál-
um hreppsins. Þær grunsemd-
ir reyndust á rökum reistar en
Brynjólfur er gmnaður um bók-
haldssvik og fjárdrátt. Hann er
meðal annars sagður hafa keypt
hæðarmæli sem kostaði 290 þús-
und krónur og skrifað á nótuna að
hreppstjórinn ætti að njóta góðs
af honum. Grunur leikur á að
kunningjar Brynjólfs í Reykjavík
hafi notið góðs af mælinum.
Ingvar Þóroddsson, lögmað-
ur sveitarstjómarmannanna, fer
á næstunni með öll gögn málsins
til lögreglu og leggur fram kæru á
hendur Brynjólfi. Málið er mjög
umfangsmikið og kæmrnar í
nokkrum liðum. Gunnar Hannes
Hannesson hefur tekið við starfi
Brynjólfs og hefur Garðar Ólason,
einn sveitarstjórnarmanna, tekið
við sem varaoddviti. einar@dv.is
Sagt upp Brynjólfi Árnasyni,
sveitarstjóra Grímseyjarhrepps,
hefur verið sagt upp störfum.