Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 Fréttir DV f A HART SLEGIST Forval vegna forsetakosninganna í Bandaríkjunum hefst í dag í Iowa og óhætt að segja að nú tíðkist hin breiðu spjót. Loforð sem gefin voru í upphafi kosningabaráttu um drengi legan og ærlegan slag eru fyrir löngu fokin út í veður og vind og svífast stuðningsmenn einskis i aðgerðum sínum. Mitt Romney Hefur varið fleiri tuguin milljóna i ófrægingarherferð gegn andstæðingum sínum. John Edwards Kemur fast á hæla Hillary og Baracks. Barack Obama Varð skotspónn stuðningsmanna Hillary Clinton. Forval í forsetakosningunum í Bandaríkjunum hefst í dag í Iowa. Valið stendur á milli átta frambjóð- enda hjá demókrötum og sjö ffam- bjóðenda hjá repúblikönum, en það er nokkuð ljóst að sumir ífam- bjóðenda áttu strangt til tekið aldrei nokkra möguleika. Mest hefur borið á brölti Baracks Obama og Hillary Clinton í kosn- ingabaráttunni en þau berjast um tilnefningu demókrataflokksins og fast á hæla þeim kemur John Ed- wards, en síðustu könnunum ber ekki saman um fylgi þeirra og skeik- ar þó nokkru. Samkvæmt könnun Des Moines Register, sem hefur orð á sér fyrir nákvæmni, var fylgi Obama í fyrradag þrjátíu og tvö prósent, fylgi Hillary mttugu og fimm og fylgi Ed- wards tuttugu ogfjögur prósenL Nið- urstöður könnunar CNN eru með allt öðrum hætti, þar er fylgi Hillary þrjátíu og þrjú prósent, fylgi Obama þrjátíu og eitt og fylgi Edwards tut- tugu og tvö prósent. Skekkjumörk þeirrar könnunar eru fjögur og hálft prósent og forskot Hillary þar af leið- andi ekki marktækt. Slagur ffambjóðenda snýst nú að miklu leytí um atkvæði þeirra sem enn eru óráðnir og að verða annar valkostur þegar útséð er um að fyrsti kosturinn eigi möguleika á sigri. Slagur repúblikana Þeir sem slást um hituna á vegum rebúblikana í forvalinu í Iowa eru Mike Huckabee og Mitt Romney. Samkvæmt könnun Des Moines Register hefur Huckabee sex prósenta forskot á Romney, með þrjátíu og tvö prósent gegn tuttugu og sex prósentum. Huckabee kom blaðamönnum í opna skjöldu þegar hann á gaml- árskvöld boðaði til blaðamanna- fundar þar sem hann hugðist frumsýna neikvæða auglýsingu til höfuðs andstæðingi sínum. Hann tilkynnti síðan að hann hefði skipt um skoðun og myndi ekki birta auglýsinguna, en blaðamönnum til mikillar furðu sýndi hann aug- lýsinguna. öldungadeildarþingmaðurinn John McCain nýtur þrettán pró- senta fylgis í Iowa, en hann hefur ekki haft sig mikið í frammi vegna forvalsins þar. Hann nýtur ekki mikilla vinsælda þar eftir að hann lagðist gegn opinberum styrkjum til etanólframleiðslu fylkisins. Þess í stað hefur McCain lagt áherslu á baráttu sína í New Hampshire, en forkosningar fara fram þar þann 8. janúar. Harkan eykst Öllum meðölum er beitt í kosn- ingabaráttunni og stuðningsmenn Obama gengu hús úr húsi í gær þar sem grunur lék á að byggi fólk sem væri hlutlaust eða hallaðist frekar til Obama og hamrað á stuðningi við hann. Ófrægingarherferðir, sem einkennt hafa pólitfkina í Banda- ríkjunum hin síðari ár, verða sífellt fyrirferðarmeiri. Ræður frambjóð- enda einkennast af meiri hörku og stuðningsmenn beita óvandaðri meðulum í baráttu sinni. Ræð- Ræður Baracks eru orðnarmun bein- skeyttari eftir að skeyti þar sem gefið var í skyn að hann hefði stundað eitur- lyfjasölu og væri jafn- vel stækur múslími, voru rakin tilstuðn- ingsmanna Hillary. ur Baracks eru orðnar mun bein- skeyttari eftir að skeyti þar sem gef- ið var í skyn að hann hefði stundað eiturlyfjasölu og væri jafnvel stæk- ur múslími voru rakin til stuðn- ingsmanna HQlary. í Iowa hefur Huckabee verið skotspónn ráðgjafa Romneys sem eru ósparir á neikvæðar fréttir sem tengjast ferli Huckabees í embætti ríkisstjóra Arkansas, þar sem hann er meðal annars sakaður um að hafa verið helst til óspar á náðanir. Loforðin farin lönd og leið Þrátt fyrir háleit loforð fram- bjóðenda í upphafi kosningabar- áttunnar um að forðast persónu- legt skítkast og ófrægingarherferðir hefur raunin orðið önnur. Enginn frambjóðenda er ónæmur fyrir nei- kvæðu umtali og Barack Obama viðurkenndi að hann hefði jafnvel glatað stuðningi eftir að John Ed- wards ýjaði að því að hann skortí reynslu. Huckabee hefur gagnrýnt árás- ir Romneys á sig og sagt þær vera óheiðarlegar, bæði gagnvart sér og John McCain. „Það er eitt að gagn- rýna verk okkar. Það er annað að skálda þau upp," sagði Huckabee í viðtali á sjónvarpsstöðinni NBC. Mitt Romney hefur varið mörgum tugum milljóna króna í neikvæðar auglýs- ingar um Huckabee og McCain og Huckabee sagði að ef hann sjálfur tryði helmingnum af öllu sem kem- ur fram í auglýsingunum myndi hann ekki lq'ósa sig sjálfur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.