Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Qupperneq 9
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 9
Öllum bellibrögðum beitt
Huckabee hefur í baráttu sinni
lagt áherslu á virðingu sína fyrir
kristnum gildum og mikilvægi fjöl-
skyldunnar með það fyrir augum
að ná til kristinna hægrimanna.
Romney er aftur á móti mormóni
og í Suður-Karólínu, þar sem einn-
ig verður háð lykilbarátta, var rep-
úblikönum sent kort og gefið í skyn
að það væri ffá Romney. Á kort-
inu var vitnað í umdeilda kafla úr
Mormónabókinni.
Talsmaður Romneys sagði að
það væri sorglegt þegar gripið væri
til slíkra örþrifaráða og sagði að það
væri ekki pláss fyrir slíkt í banda-
rískum stjórnmálum.
Lítið hefur borið á repúblikan-
anum og fyrrverandi borgarstjóra
New York Rudy Giuliani í forvalinu
í Iowa enda telur hann sjálfur að
hann, sem er þrískilinn, fylgjandi
fóstureyðingum og hjónabandi
samkynhneigðra, eigi ekki upp á
pallborðið hjá flokksfélögum sín-
um í Iowa sem flestir eru evangel-
ísk-kristnir. Hann hugsar sér aftur á
móti gott til glóðarinnar í Flórída.
Minni spámenn og mjúk
lending
Leikarinn og repúblikaninn Fred
Thompson er einn af minni spá-
mönnunum í baráttunni um for-
setastólinn. Samkvæmt könnun
Des Moines Register var hann með
níu prósenta fylgi og í fjórða sæti
í Iowa. Nú þegar virðist hann orð-
inn óþreyjufitllur að losna úr slagn-
um. „Ef fólk vill í alvöru sterkan A-
persónuleika sem forseta, einhvem
sem hefur til margra ára, vakinn og
softnn, hugsað hvemig hann gæti
komist í forsetastólinn, einhvem
sem getur horft beint í augun á þér
og sagst hafa notið hverrar mínútu
í kosningaslagnum - þá er ég ekki
sá maður" sagði Thompson á kosn-
ingafundi.
Flestra frambjóðenda bíður mjúk
lending þó þeir bíði ósigur í forval-
inu í Iowa. Þeir snúa þá aftur til starfa
sem öldungadeildarþingmenn eða
ríkisstjórar eða til þægilegra starfa
í einkageiranum. Aðra sögu er að
segja af kosningastjórum þeirra, því
þeir þurfa að fara á stúfana og leita
að nýju starfi til að framfleyta sér.
Benazir Bhutto ætlaöi aö færa sönnur á svikráð ríkisstjórnarinii
Morðið vekur upp
vangaveltur
Sama dag og Benazir Bhutto var
ráðin af dögum ætlaði hún að af-
henda bandarískri sendinefnd gögn
þar sem sönnur væm færðar á fyr-
irætlanir pakistönsku leyniþjón-
ustunnar um að hafa áhrif á vænt-
anlegar þingkosningar. Þetta sagði
heimildarmaður náinn Benazir við
CNN fyrr í vikunni.
Benazir var ráðin af dögum fyrir
viku síðan einungis örfáum klukku-
stundum áður en hún átti að eiga
fund með Robert Kennedy og öld-
ungadeildarþinginanninum Arlen
Specter. Háttsettur aðstoðarmað-
ur Benazir Bhutto, sem hafði hjálp-
að við gerð skýrslunnar, sýndi CNN
afrit af henni, þar er meðal annars
sagt: „Á því svæði sem andstæðing-
ur nýtur fylgis, ætla þeir (stuðnings-
menn Musharrafs forseta) að valda
usla á kosningastaðnum og jafnvel
drepa fólk, til að stöðva kosningar
í að minnsta kosti þrjár eða fjórar
klukkustundir."
Misnota tæki frá
Bandaríkjunum
I skýrslunni er einnig sagt að ríkis-
stjómin ætli að eiga við kjörseðlana og
kjörlistana og ógna ffambjóðendum
stjómarandstöðunnar og nýta banda-
ríska tækni til að hlera samskipti þeirra.
„Níutíu prósent þess tækjakosts sem
Bandarfldn gáfu Pakistan til að beijast
gegn hryðjuverkum em notuð til að
fylgjast með pólitískum andstæðingum
ifldsstjómarinnar" segir í skýrslunni.
Rfldsstjómin vísaði öllum þessum
ásökunum á bug sem bulli og vitleysu
og Rashid Qureshi talsmaður Pervez
Musharraf forseta sagði að væntanleg-
ar kosningar yrðu „fijálsar, sanngjamar
oggegnsæjar".
Heimildarmaður náinn Benazir
Bhutto heitinni sagði að upplýsingam-
ar í skýrslunni kæmu frá lögreglunni og
leyniþjónustunni.
Forsetakosningar í Kenía draga dilk á eftir sér:
Blóðbað í Kenía
Mikil óöld rfldr nú í Kenía í kjöl-
far umdeildra fosetakosninga þar í
landi. Óeirðalögregla, grá fyrir járn-
um, hefur komið fyrir umferðar-
hindmnum á helstu leiðum inn í
höfuðborgina Naíróbí og bannað
umferð bifreiða.
Um þrjú hundruð manns hafa
látið lífið í blóðbaðinu síðan úr-
slit kosninganna vom gerð heyr-
inkunn, þar á meðal létust þrjátíu
þegar kirkja sem þeir höfðu leit-
að skjóls í var brennd til grunna í
bænum Eldoret. Flestir þeirra vom
af Kikuyu-ættbálki, þeim sama og
Mwai Kibaki, endurkjörinn forseti,
tilheyrir.
Helsti andstæðingur forsetans,
Raila Odinga, hefur véfengt niður-
stöður talningar atkvæða og sagð-
ist hafa verið sviptur sigri með svik-
um. Odinga og Kibaki hafa skipst á
ásökunum jafnframt því sem þeir
hafa hvatt fólk til að halda stillingu
sinni. Talsmaður ríkisstjórnarinnar
sakaði stuðningsmenn Odinga um
þjóðernishreinsanir og Odinga sak-
aði fylgismenn Kibakis um þjóðar-
morð.
Tugir þúsunda á flótta
Samkvæmt keníska Rauða kross-
inum hafa um sjötíu þúsund manns
flosnað upp frá heimili sínu vegna
óróans í Rift-dalnum og embættis-
menn í Úganda segja að straumur
fólks af Kikuyu-ættbálkinum liggi
yfir landamæri landanna.
Eftirlitsmenn á vegum Evrópu-
sambandsins segja að kosningarn-
Ungur maður Fær aðstoð eftir að hafa
fengið að kenna á ofbeldinu í Kenía.
ar hafi ekki staðist alþjóðlega staðla,
en ríkisstjórnin hefur hafnað öllum
ásökunum um svindl. Utanríkis-
ráðherra Bretlands, David Milli-
band, og kollegi hans, Condoleezza
Rice, gáfu út sameiginlega yfirlýs-
ingu þar sem talað var um „alvar-
lega misbresti" í talningu atkvæða
og stjórnmálaleiðtogar Kenía voru
hvattir til að fá stuðningsmenn sína
til að láta af ofbeldinu sem skekið
hefurþjóðina.
Minnistöflur
www.birkiaska.is
Bíðaekkiboðanna
Öfgamenn í írak bíða ekki boðanna
á nýju ári. I gær sprengdi kona sig
í loft upp í bænum Baquba með
þeim afleiðingum að níu manns
auk hennar létu lífið. Átta manns
særðust í tilræðinu, margir hverjir
alvarlega. Konan var rétt nýkomin
að eftirlitsstöð þar sem fyrir voru
sjálfboðaliðar við eftirlitsstörf. Slík-
ar eftirlitsstöðvar eru fjármagnaðar
af Bandaríkjunum og er ætlað að
stemma stigu við súnní-múslímum
sem eru hliðhollir al-Kaída. Slíkar
stöðvar hafa í síauknum mæli orð-
ið skotmörk sjálfsmorðssprengju-
varga.
af lífi tíu manns sem hafa með einum eða öðr-
um hætti gerst brotlegir við lög landsins. Þeirra
á meðal er Raheleh Zamani, tuttugu og sjö ára
móðir tveggja ungra barna. Hún var dæmd til
dauða fyrir að myrða eiginmann sinn. Afbrot-
ið framdi hún fyrir tveimur árum, eftir að hafa
komið að eiginmanninum í rúminu með annarri
konu. Að eigin sögn sá Zamini rautt þegar mað-
urinn sagði að hún væri ónothæf því hún hefði
fætt honum tvö börn og gekk í skrokk á honum
með vatnsröri.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
FOSFOSER
MEMORY
Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi