Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Side 15
DV Sport FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 15 Formaöur handknattleiksdeildar Fram telur ekki gerlegt aö breyta úrslitum í leik Fram og Hauka: GÆTUM EINS FENGIÐ TITILINN FRÁ1998 Jón Eggert Hallsson, formaður handknattleiksdeildar Fram, telur lít- ið hægt að gera í kæru Hauka á fram- kvæmd leiks liðanna í deildarbikam- uffi fyrir skömmu. Hann segir skorta lagaákvæði auk þess sem hann segir að ef eitthvað verði aðhafst í málinu sé allt eins hægt að veita Frömurum titil- inn frá árinu 1998 þegar félagið kærði framkvæmd bikarúrslitaleiksins við Val. „Það er mjög leiðinlegt að til þessa atviks haíi komið, en ef menn ætla að taka þessa kæru til greina geta menn alveg eins afhent okkur bikarmeistara- titilinn árið 1998," segir Jón Eggert. Hann efast um að gerlegt sé að spila leikinn að nýju. „Má Haildór Ingólfs- son spila með, en hann var meiddur? MáBudayveraábekknum? MáNonni (Jón Þorbjöm Jóhannsson) spila með okkur þá? Það er svo mörgum spum- ingum ósvarað. Ég skil Haukana vel og ef ég væri formaður HSÍ væri ég þegar búinn að bjóða þeim sambærileg peningaverð- laun og vom fyrir 1. sæti. Það sem skiptir meginmáli er að við slátruðum þeim í þessum leik og öll umræða um það að þeir hefðu ekki hleypt okkur í gegn í síðasta markinu er kjánaleg. Það er svo margt sem er búið að gerast fram að því atviki og í sjálfu sér er það óskylt þessari um- ræðu. Mér finnst við hafa verið betri allan leikinn," segir Jón Eggert. Hann er ekki viss um að Fram- arar aðhafist nokkuð ef HSÍ ákveð- ur að leikurinn verði spilaður aftur. „Ég treysti HSl fúllkomlega til þess að dæma í þessu máli. En ég persónulega sé ekki hvemig á að spila leikinn aftur. Það er svo margt sem þarf að útfæra og ég veit ekki til þess að það sé nokkuð í lögum HSÍ eða ÍSf sem tekur á slík- um atvikum," segir Jón Eggert Halls- son, formaður handknattleiksdeildar Fram. — vidar@dv.i$ a* iQt Engin ástæða til að breyta úrslitum Formaður handknattleiksdeildar Fram, Jón Eggert Flallsson, telur enga ástæðu til þess að aðhafast vegna ákæru Hauka á framkvæmd úrslitaleiks deildarbikarsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.