Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 Sport PV KAUPA (VÖRNINA Eftir slæma frammistöðu varnarmann- anna umjólin hyggst Juande Ramos kaupa leikmenn í stað þeirra gömlu til þess að stoppa upp í götinívörninni. Tottenham er það lið sem hefur skorað mest í deildinni ásamt Arsenal en að sama skapi hafa einungis þrjú lið fengið á sig fleiri mörk en Tottenham, en það eru Derby, Reading og Sunderland. Ramos segist vera búinn að fá nóg.„Við verðum að bæta okkur í vörninni. Ef það tekst ekki sem allra fyrst mun ég leita annað eftir leikmönnum. Á undanförnum vikum höfum við gert það að venju okkar að fá á okkur mörk úr föstum leikatriðum og ef það gerist í sífellu vinnurðu ekki leiki. Það er svo einfalt," segir Ramos. ERIKSSON VILL CROUCH Sven Göran Eriksson er búinn að vera aðdáandi Peter Crouch sfðan hann stýrði enska landsliðinu og nýjustu fregnir herma aö Eriksson ætli að tryggja sér kappann nú þegar félagaskiptaglugginn opnast að nýju. Á sama tíma er talið að Rafa Benitez hafi áhuga á því að bæta leikmönnum við sinn leikmannahóp. Hins vegar hafa hinirbandarísku eigendurfélagsins tilkynnt honum að ekki séu til peningar til leikmannakaupa. Fyrirvikið ertalið líklegt að Benitez sé tilbúinnað f ~ t skipta á leik- mönnum viö önnur félög. Micah Richards hefur verið nefndurf því samhengi í skiptum fyrir Crouch en hann á enn eftir að skrifa undirSOþúsund punda samnings- tilboð sem ManchesterCity er búið að bjóða kappanum. lAtið glazier- FJÖLSKYLDUNA VERA Stuðningsmenn Manchester United hafa verið mjög tortryggnir gagnvart Glazier- ~ flölskyldunni eftir að hún stóð fýriryfirtöku ( -- V ***v • félaginu fyrir árið 2005. Raunarvar það svo á tímabili að þrír af Glazier- bræðrunum, Joel, Avram og Bryan, þurftu að laumast inn og út af OldTrafford í lögreglufylgd. Margiraf aðdáendum liðsins eru enn gagnrýnir á eigendurna en Alex Ferguson hefur komið fjölskydunni til varnar og sagt að öll gagnrýni á hana sé ósanngjörn.„í mörgum félögum hefur komið til átaka á mllli eigenda og stjórnenda liðsins. Samstarfið okkar (milli hefur hins vegar alltaf verið gott. Þeir sem mótmæltu á slnum tíma höföu óþarfa áhyggjur og það gleður mig að segja að samstarfið er gott," segir Ferguson. FLAMINIORÐAÐUR VIÐJUVENTUSANÝ Mathieu Flamlni, leikmaður Arsenal, er orðaður við Juventus enn á ný en Frakkinn hafnaði nýlega samningstilboði frá Lundúnafé- laginu.Juventus leitar nú logandi Ijósi að miðjumanni og þykir Flamini vera tilvalinn til þess að hjálpa félaginu á sinn stall sem eitt af bestu liðum ItaKu. Flamini verðursamnings- laus (loktlmabilsins en hann hefur staðið sig mjög vel það sem af er leiktlðar og hefur til að mynda haldið BrasiKumanninum Gilberto Silva á bekknum. Flamini er23 ára en Arsene Wenger hefur mikinn hug á því að halda kappanum sem gæti farið fr(tt ( lok leiktfðar. Hafðu þig hægan MarkViduka komst ekki lönd né strönd gegn vörn Manchester City. ichester City uöu á liöiö efl 7 v jyn r^ir' » m ljí/m 1 Jyf Hl /M \ ' 4 i 1U VIÐAR GUÐJÓNSSON blaðamadur skrifar: vidaricvdv.is Manchester City lagði Newcastle að velli 2-0 á St. James' Park. Stuðn- ingsmenn Newcastle bauluðu á sína menn og Sam Allardyce sem fékk stuðningsyfirlýsingu frá stjórninni fyrir leikinn, er í slæmum málum. Leikurinn byrjaði íjörlega og strax á fyrstu mínútu fékk Newcastle ágætt færi þegar Cacapa skallaði að marki en Joe Hart varði með tilþrif- um í tvígang. Michael Owen var á varamannabekknum en hann hefur glímt við meiðsli að undanförnu. Vaskleg framganga heimamanna í upphafi var síður en svo til marks um það sem koma skyldi. Manchest- er City komst vel inn í leikinn. Elano, Petrov og Bianchi voru þyrnir í síðu varnarmanna Newcastle. Margsinn- is komst liðið í góða stöðu án þess að refsa Newcasde. Þó kom að því undir lok fyrri hálfleiks. City komst yfir Manchester City náði forystunni á 38. mínútu eftir laglega sókn. Ir- eland, Vassel og Petrov spiluðu sig laglega í gegnum vörnina áður en sá síðastnefndi skoraði laglegt mark með hnitmiðuðu vinstri fótar skoti. Markið var sem blaut tuska í andlit heimamanna sem skömmu áður höfðu skorað mark sem dæmt var af vegna vafasamrar rangstöðu. Þegar flautað var til hálfleiks baul- uðu stuðningsmenn á sína menn en Sven-Göran Eriksson var á góðri ieið með að verða fyrsti þjálfarinn til þess að stýra City til tveggja sigra gegn Newcastle á sama tímabilinu. Sam Allardyce framkvæmdastjóri Newcastle var ekkert að bíða með breytingarnar og setti Michael Owen inn á völlinn strax í upphafi síðari háifleiks fyrir Martins sem var sem skugginn af sjálfum sér í fyrri hálf- leik. Owen var ekki búinn að vera inni á vellinum nema í nokkrar sek- úndur þegar hann fékk besta færi heimamanna. Glæsileg stungusend- ing frá N'Zogbia endaði með því að Owen skaut knettinum nánast í Joe Hart markvörð sem kom út á móti. Fernandez kláraði leikinn Næstu mínútur var drifkraftur í liði Newcastíe sem sýndi vilja til þess að bæta sig frá fyrri hálfleikn- um. Þrátt fyrir að reyna mikið mættu sóknarmenn liðsins nær ókleifum Kínamúr í formi varnar Manchester Fernandez skorar Leikmenn Manchester City fagna sfðara marki sínu gegn Newcastle. City. Þar fór Richard Dunne fremst- ur í flokki en hann átti enn eina stjörnuframmistöðuna og er nær óþekkjanlegur frá fyrri árum. Manchester City gerði nánast úti um leikinn með öðru marki sínu á 77. mínútu. Vassel hélt boltanum inni í teig og lagði hann út á Fern- andes Gelson sem skaut boltanum efst í markhornið frá vítapunkti. Eftir þetta áfall datt botninn úr leik Newcastle og leikmenn liðsins virtust missa trúna á að þeir gætu náð stigi úr leiknum. Leikurinn fjaraði út og leikmenn Svens-Görans Eriksson halda áfram góðri byrjun á leiktíðinni. Þeir eru nú í 5. sæti en Newcastle situr í 11. sæti. Bolton vann nauman 1-0 sigur á Derby á lokamínútunni: Stelios skoraði íblálokin Stelios Giannakopulous skor- aði sigurmark Bolton gegn Derby á lokamínútunni og leikar enduðu 1-0. Derby-menn geta nagað sig í handarbökin þvf iiðið var betra stóran hluta úr leiknum en fékk á sig klaufamark í lokin. Framan af leik var ekki líkt og Derby sæti sem fastast í neðsta sæti úrvalsdeildarinnar og öll þau færi sem litu dagsins ljós í fyrri hálfleik voru þeirra. Besta fær- ið átti Johnson þegar hann skaut föstu skoti í þverslána. Stuðnings- menn Bolton bauluðu á sína menn þegar flautað var til hálfleiks enda fátt um fína drætti í leik liðsins. Síðari hálfleikur var eilítið betri hjá Bolton þó lítið hafi verið um færi. Derby missti frumkvæðið en vörn liðsins stóð þó fyrir sínu. Mik- ið var um baráttu á miðju vallarins en fátt var um spil manna á milli. Svo virtist sem leikurinn ætí- aði að fjara út með markalausu jafntefli en Gary Megson fram- kvæmdastjóri gerði sitt besta til þess að reyna að fá líf í sína menn með því setja Stelios Gianna- kopoluos inn á þegar átta mínút- ur lifðu leiks. Grikkinn hefur lítið fengið að spreyta sig á leiktíðinni en hann var ekki búinn að vera lengi inni á vellinum þegar hann skoraði sigurmarkið. Davis varnarmaður Derby sendi furðulegan bolta á Price markvörð sem kom út af línunni til að hreinsa frá. Giannakopoluos komst hins vegar inn í sendinguna og átti í litlum erfiðleikum með að senda boltann í tómt marki. Þessi kjánalegu varnarmistök sem leiddu að markinu sýna betur en margt annað hvers vegna Derby situr á botni ensku úrvalsdeildar- innar. Bolton er hins vegar hægt og sígandi að rífa sig frá mestu botn- baráttunni og stigin þrjú eru liðinu afar mikilvæg. vidar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.