Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2008, Qupperneq 27
DV Bíó FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2008 27 Stórsveit Nix Noltes ætlar að fagna útgáfu plötunnar Royal Family Divorce á Organ í kvöld. Kristín Anna, harmonikkuleikari sveitarinnar, mælir með því að þeir sem ekki náðu að dansa á gamlárskvöld mæti í dansskónum í kvöld. Kristín Anna Valtýsdóttir Spilar á harmonikku með stórsveit Nix Noltes. Ikvöld ætlar stórsveit Nix Noltes að halda tónleika á Organ tíl að fagna útgáfu annarrar breið- skífu sveitarinnar, Royal Family Divorce. „Við erum allt í allt tólf manns í hljómsveitínni en búum í átta mismunandi borgum. Við tók- um upp þessa plötu fyrir einu og hálfu ári en gáfúm hana ekki út fyrr en núna fyrir jólin og okkur langar svo að halda smá útgáfufögnuð í tíl- efni plötunnar á Organ í kvöld," seg- ir Kristín Anna Valtýsdóttír, harmon- ikkuleikari sveitarinnar. Starfsemi í hæðum og lægðum Kristín Anna spilaði og söng með hljómsveitinni múm tíl ársins 2005 en er nú búsett í New York þar sem hún vinnur meðal annars að eigin tónlist undir nafninu Kríubrekka. „Ég spila bara stundum með Nix Noltes. Ég tek oft harmonikkuna með mér til landsins og þá reynum við að spila eitthvað saman. Ég byrjaði í hljóm- sveitinni árið 2002 en starfsemi sveit- arinnar er mjög mikið svona af og á alltaf. Það gengur svona í hæðum og lægðum hjá okkur. Stundum eru allir alveg fullir af orku en svo kem- ur tímabil þar sem h'tíð er að gerast. Sveitín heftir til dæmis ekkert spil- að síðan á menningarnótt en þá var ég reyndar ekki með. Ég spilaði síð- ast með sveitinni í maí í fýrra," segir Kristín. Hressandi danstónlist Stórsveit Nbc Noltes spilar aðal- lega búlgarska þjóðlagatónlist sem meðlimir útsetja þó á sinn hátt. „Þetta eru aðallega búlgörsk þjóðlög og lög frá löndunum þar í kring. Vtð útsetjum þetta svo á okkar hátt og það má eiginlega segja að útsetning- arnar okkar séu örlítið pönkaðari en hefðin er fyrir. Svo erum við líka með öðruvísi hljóðfæraskipan en gengur og gerist í þjóðlögunum," segir Krist- ín. Að sögn hennar er tónlist sveit- arinnar mjög hressandi danstónlist. „Ég mæli allavega með því við alla sem náðu ekki að dansa á gamlárs að þeir mætí á tónleikana í kvöld. Við ætlum að byrja á því að skála í kampavíni klukkan níu og það eru allir velkomnir í það. Svo verður haldin einhver smávegis flugeldá- sýning og við ætlum svo að byrja að spila klukkan tíu. Á eftir okkur spila svo bæði erlendur plötusnúður og DJ Ottermin." Gaf út sjö tommu í Japan Eins og áður sagði hefur Kristín verið að búa tíl tónlist undir nafn- inu Kríubrekka en nýverið gaf hún út sjö tommu plötu í Japan. „A plötunni eru mestmegnis tveggja ára kass- ettusullupptökur sem-ég hef gert og svo eitt nýrra lag sem ég er búin að gera aðeins meira úr hljóðhimnun- um á," segir tónlistarkonan. „Ég þekki hjón sem eru með litla útgáfu í Japan og gefa út tímarit sem heitír After Hour. Eg er búin að þekkja þau og vera í miklu sambandi við þau síðan múm spilaði í Japan. Svo fór ég þangað um daginn að spila með am- erískri vinkonu minni og við héldum eina tónleika í Kýótó og aðra í Tókýó. Þá vaknaði bara hugmynd hjá þeim hjónum að gefa út sjö tommu plötu með lögunum mínum. Annars hef- ur Kríubrekkuefnið enn ekkert verið gefið út. Það fóru hins vegar sex ein- tök af plötunni í Tólf tóna fyrir jólin," segir Kristín kát að lokum. krista@dv.ls Spider-Man 3 var tekjuhæsta mynd síðasta árs en rétt á eftir kom Shrek the Third: TEKJUHÆST 2007 Kvikmyndin Spider-Man 3 var tekjuhæst allra mynda á árinu sem leið. Hún haiaði inn hvorki meira né minna en 336 milljónir dala á heimsvísu en í öðru sætí var Shrek the Third með 321 milljón. Á eftír þeim kom svo Transformers í því þriðja með 319 milljónir og Pirates of the Caribbean: At World’s End með 309 milljónir. f fimmta sætí var svo Harry Potter með 292. Heildartekjur kvikmyndaiðnað- arins í Hollywood þetta árið voru 9,7 milljarðar dala sem er 4% aukn- ing frá árinu áður. f Bandaríkjunum voru seldir 1,42 milljarðar bíómiða Spider-Man 3 Þénaði mest allra mynda í fyrra. sem er það sama og í fyrra. 2002 er enn tekjuhæsta árið hingað tíl en þá voru tekjurnar rúmlega 10 milljarðar dala. r MYND TEKJUR 1 Spider-Man 3 $336,5m 2 ShrektheThird $321,0m 3 Transformers $319,Im 4 Pirates of the Caribbean: At World's End $309,4m 5 Harry Potter and the Order of the Phoenix $292, Om 6 The Bourne Ultimatum $227,5m 7 300 $210,6m 8 Ratatouille $206,4m 9 1 Am Legend $205,1 m 10 The Simpsons Movie * $183,1m Sýnlr íBerlín Leikstjórnarfrumraun Madonnu verður sýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín sem fer fram í febrúar. Myndin heitir Filth and Wisdom og er sýnd í flokki panorama-mynda. Filtli and Wisdom er stuttmynd eða um 48 mínútur á lengd og segir sögu rússnesks innflytjanda. Myndin var tilbúin í maí á síðasta ári og því hefur verið beðið eftir henni í þó nokkurn tíma. Það er Dan nokkur Cadan sem skrifaði handrit myndarinnar en hann hefur unnið mikið með Guy Ritchie, eiginmanni Madonnu, í gegnum tíðina. Villleika í Grease Leikkonan Michelle Pfeiffer vill nú ólm leika í endurgerð á Grease- söngleiknum sem var með vinsælli kvikmyndum áttunda áratugarins. Ekki nóg með það að hún vilji sjálf fara með hlutverk heldur vill hún að Jessica Simpson leiki sjálfa Sandy. Pfeiffer lék í kvikmyndinni Grease 2 en fékk arfaslaka dóma fyrir frammistöðu sína. „Ég hata Grease 2 og trúi varla hversu léleg hún var. Ég var ung og vidaus en ég hef heyrt að hún sé orðin svokölluð cuit-mynd í dag," segir leikkonan. Stíörnustælar við tökur Samkvæmt heimildum tímaritsins Star Magazine var leikkonan Kim Cattrall svo erfið og með svo mikla dívu-stæla við tökur á Sex and the City-kvikmyndinni að meðleikarar hennar fá greiddan sérstakan bónus fyrir það eitt að höndla stjömustæl- ana í henni. Heimildarmaður Star Magazine segir í viðtali við blaðið: „Kristin Davis og Cynthia Nixon fá dágóðan bónus fyrir að vera lausar við alla stæla við tökur og einnig sem þakklætisvott fyrir að hafa þolað samstarfið við Cattrall." Áttundabókin hugsanleg J.K. Rowling hefur geflð það í skyn að áttunda bókin um Harry Potter og félaga gæti komið út einn daginn. Þetta kom ffam í viðtali hennar við Time á dögunum. „Síðan ég kláraði sjöundu bókina hef ég stundum hugsað með mér að skrifa þá áttundu. En þetta eru bara vangaveltur. Ég efast þó um að Harry yrði aðalpersóna þeirrar bókar. Mér finnst eins og ég sé búin að segja hans sögu. en eins og ég segi em þetta miklar vangaveltur. Gefum þessu tíu át."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.