Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2008, Blaðsíða 5
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 5
KISTU FISCHER
LAUMAÐTIL
UTFARARI
„Sumir okkar eru
sáriryfírþví að
hafa ekki fengið
að vera viðstaddir
útförina."
SKJOLINÆTUR
RJF-hópurinn, sem barðist fyrir komu Bobby Fischers hingað til le
klofinn og óánægja ríkir innan hópsins eftir útför Fischers. Hópuri:
barðist fyrir hálfopinberri útför hans með tilheyrandi sjónarspili. Á
meðan hópurinn fundaði um lagalegan rétt yfir líki Fischers og hvernig
staðið yrði að útförinni undirbjó Garðar Sverrisson, einn meðlima
hópsins, útför í kyrrþey framhjá félögum sínum.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaöamaöur skrifar:
Garðar Sverrisson, einn af meðlimum
RJF-hópsins, sem barðist fyrir komu
Bobby Fischers til Islands, undirbjó
útför skákmeistarans framhjá félög-
um sínum í hópnum. Á meðan Garð-
ar var að ganga frá öllu funduðu
aðrir meðlimir hópsins, án Garðars,
og veltu fyrir sér lagalegum rétti
fyrir útfararleyfi. Þeir höfðu þá enga
hugmynd um aðgerðir Garðars.
Robert James Fischer, fyrrverandi
heimsmeistari í skák, lést fimmtudag-
inn 17. janúar eftír alvarleg veikindi.
Hann var 65 ára og talið er að dán-
arorsök hans hafi verið nýrnabilun.
Stuðningshópur Fischers, RJF, lýsti
fljótlega eftir andlátið vilja sínum að
útförin yrði hálfopinber og að jarðn-
eskar leifar Fischers yrðu varðveitt-
ar á Þingvölium. Á sunnudagskvöld
funduðu félagar í RJF lduldcustundum
saman vegna málsins í þeirri von að
niðurstaða fengist í útfærslu útfarar-
innar. Það sem þeir ekki vissu var að á
meðan fundurinn stóð yfir var undir-
búningur að útför Fischers langt á veg
kominn.
Kom aldrei til samráðsfundar
Skömmu eftir andlátið var beðið
komu Miyoko Watai, japanskrar eig-
inkonu Fischers, til landsins. Á tíma-
bili veltu meðlimir RJF fyrir sér að fá
aðstoð dómstóla við að kveða úr um
hver hefði lagalegan rétt til útfarar-
leyfis. Það var rætt á sunnudagsfundi
hópsins. Samkvæmt heimildum DV
gekk það fram af Garðari er hann
frétti að félagar hans hefðu sett sig í
samband við löglærða menn í þeirri
von að vefengja rétt Miyoko til útfar-
arleyfis.
Einar S. Einarsson, formaður RJF-
hópsins, staðfestir að meðlimirnir
hafi viljað komast að samkomulagi
við eiginkonuna um hvernig stað-
ið yrði að útförinni og hvar Fischer
fengi að hvíla. Hann segir að hópur-
inn hafi verið búinn að mæla sér mót
við hana á mánudeginum. „Við stóð-
um í þeirri trú að Miyoko væri ekki
eiginkona hans og vildum einfald-
lega ganga úr skugga um hver hefði
rétt til útfararleyfis. Við vildum fá úr
því skorið hver gæti tekið ákvörðun
um útförina. Ákveðinn hafði verið
...i
fundur með henni til að ræða útför-
ina og tryggja að hann fengi að hvíla
í íslenskri mold. Á þeim fundi vild-
um við komast til botns í málinu en
sá fundur var aldrei haldinn," segir
Einar.
Mágur stígur fram
í skjóli nætur sótti Garðar ekkjuna
Miyoko á Keflavíkurflugvöll aðfara-
nótt mánudagsins 21. janúar. Strax
um morguninn var Fischer jarðsett-
ur í Laugardælakirkjugarði, rétt íyrir
utan Selfoss. Útförin fór fram í kyrr-
þey og án vitneskju flestra vina Fis-
chers hér á landi. Það var kaþólski
presturinn Jakob Rolland sem jarð-
söng. Ekki einu sinni sóknarprestur-
inn, séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson,
vissi af útförinni. Staðarvalið réðst af
því að tengdaforeldrar Garðars hafa
búið á jörðinni og þar hafði Fischer
komið nokkrum sinnum og heillast af
staðnum.
í gær kom í ljós að mágur Fischers,
Russel Targ, sem var giftur eldri systur
Fischers, er staddur hér á landi til að
skoða lagalegan rétt bandarískra ætt-
ingja Fischers. Hann ætíaði sjálfur að
vera viðstaddur útförina en það mis-
fórst þar sem hann hélt að hún færi
ffam síðar. Fischer lét eftír sig tölu-
verða íjármuni, ef marka má vísi.is
var um að ræða 140 milljónir króna
sem Miyoko erfir. Mágurinn skoðar
nú hvort ættingjar hans í Bandaríkj-
unum eiga tílkall til fjármunanna.
Vildu vera viðstaddir
Aðspurður segist Einar hafa orðið
var við óánægju innan hópsins. Sjálf-
ur segist hann ekki ósáttur hafi útför-
in verið skipulögð eftir fyrirmælum
Fischers sjálfs. „Hinn látni meistari
lét Garðari eftir trúnaðarfyrirmæli
varðandi útförina um algjöra leynd.
Einhverjir okkar kunna ekki að vera
sáttir og ég hef vissulega heyrt af
óánægju. Óánægja hópsins er
ekki vegna þess hvernig útför-
in fór fram, hins vegar fengum
við ekki að vita hvenær hún fór
fram. Á fundinum í fyrradag átti
að ræða tilhögunina og hafa
samráð um þetta," segir Einar.
„Sumir eru sárir yfir því að
hafa ekki fengið að vera við-
staddir útförina. Samráðið var
nú eins og það var. Við vildum
heldur sjá hálfopinbera útför,
ekki í kyrrþey, með aðkomu
íslensku ríkisstjórnarinnar og
þjóðarinnar þannig að hon-
um yrði veitt fyllsta virðing. Ég
get hins vegar ekki gert athuga-
semdir við þessa meistaralegu
leikfléttu ef hún fór fram sam-
kvæmt fyrirmælum hins látna."
Ekki á forræði hópsins
Garðar segir útförina alfarið
hafa verið á forræði eiginkonu
Fischers en ekki á forræði RJF-
hópsins. Hann segir félögum sínum
hafa verið kunnugt um afstöðu sína til
málsins. „Á fslandi er löng og rík hefð
fyrir því að gefa syrgjendum frið til að
taka sínar ákvarðanir hér um og sýna
í þeim efnum nærgætni. Bobby var Is-
lendingur og mikilvægt að um hann,
lífs sem liðinn, gildi sama ffiðhelgi
og við viljum að um okkur sjálf gildi.
Félögum mínum var fullkunnugt
um þessa afstöðu mína og fjölskyldu
minnar. Einnig þá skoðun að málið
væri á forræði Miyoko Watai en ekki
okkar. Að Bobby gengnum væri það
hennar að mæla fyrir um hvernig að
málum yrði staðið, sem hún og gerði,"
segir Garðar.
RIMCr ;.r
Bobby og Miyoko Eiginkona
Fischers erfir töluverða
fjármuni en mágur hans er hér
á landi að kanna rétt
bandarískra ættingia til arfsins
i
V