Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2008, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2008, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 23.JANÚAR 2008 Sport DV ÍÞRÓTTAMOLAR formennAmóti Formenn liða íLandsbankadeildnni vilja ekki fara Grindvísku leiðina eins og rætt hefurveriðum. Grindvíkingar hafa gert gríðarlega vel við leikmenn sína sem meiðast og eru leikmenn þar vel tryggðir. Leikmenn sem koma frá liðinu ( önnurliðundrast vinnubrögðsinna nýju liða. Formenn félaganna hittust á fundi ekki alls fyrir löngu ásamt forsvarsmönnum leikmannasamtaka sem eru í burðarliðnum. Eftirviðtal við Sigurð Örn Jónsson á Sýn síðastliðinn fimmtudag hefur mikil umræða verið á milli leikmanna um hvernig tryggingarmálum þeirra er háttað. Flestir leikmenn vilja að farin verði Grindvíska leiðin en það vilja formennirnirekki.Vilja ekki missa krónur úr kassanum dýrmæta. VALSMENN BERA HÖFUÐIÐ HATT Valsmenn geta borið höfuðið hátt þessa dagana. Félagið er með 7 leikmenn í landsliðshópi Ólafs Jóhannessonar sem er á leið til Möltu á æfingarmót. Þá eru 13 Valskonur í landsliðshópnum sem Sigurður Ragnar Eyjólfsson stýrir. Valsmenn eiga því 20 leikmenn af 40 landsliðsmönnum og -konum eða helming leikmanna. Langt er síðanValsmenn hafa átt svo marga leikmenn í landsliðshópi karla en þeir voru fyrirferðarmiklir þegar Þorgrímur Þráinsson og félagar hans f Val voru við lýði. Síðan fór að halla undan fæti hjá félaginu. Draugar fortíðar svifu yfir vötnum þangað til fyrir nokkrum árum. Nú erfélagið fslandsmeistari bæði í karla- og kvennaflokki og státar af einni bestu aðstöðu sem (slenskt lið býður upp á. BRONSSKÓRINN SAMDIVIÐ BLIKA Magnús Páll Gunnarsson skrifaði í gær undirtveggja ára samning við Breiðablik. Magnús var markahæstur Blika síðasta sumar með átta mörk og fékk i bronsskóinn að I launum. Mikiðjapl, | jamlogfuðurvarí ] kringum i ákvörðunina að : veita Magnúsi bronsskóinn en FH- ingarvildu meina aðAuðun Helgason hefði ' skorað sjálfsmark og því hefði Tryggvi Guðmundsson átt að fá skóinn eftirsótta. Hann fór til reynslu hjá Haugasundi í Noregi, Bunkeflo í Svíþjóð og Schalke og Dortmund (Þýskalandi eftir tímabilið. Hann á að baki 85 leiki með Breiðabliki (deild og bikar og hefur í þeim skorað 12 mörk þar af 8 í sumar en mun væntanlega lenda í mikilli samkeppni í sumar þar sem Marel Baldvinsson gekk nýverið í raðir Blika. IIIéH GAMLA FRETTIN Mánudaginn 23. janúar 1984 birtist frétt í DV að Atli Eðvaldsson, leikmaður Fortuna Dússeldorf, hefði átt stórkostlegan leik gegn Borussia Mönchenglad- bach. Dússeldorf vann leikinn 4-1 og skoraði Atli eitt marka liðsins auk þess að leggja hin mörkin upp. 65 þúsund áhorfendur mættu á völlinn sem var það mesta sem hafði mætt á völlinn í borginni. ^ BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON blaðamaður skrifar: benni(u>d\ í greininni sem Hilmar Oddsson skrifaði segir að Dusseldorf-liðið hafi verið með mikla yfirburði í leiknum og að hann hafi sjaldan eða aldrei séð Ada svona góðan. Liðið hafi leikið skemmtilega sóknarknattspymu og hinir eldfljótu ffamherjar Diiss- eldorf-liðsins, þeir Atli, Thiele og Bommer, hafi leikið varnarmenn Mönchengladbach oft grátt. Atli fékk 2 í einkunn hjá Bild, sem þýddi að hann hefði verið í landsliðsklassa. Atli skoraði fyrsta markið á 16. mínútu eftir fyrirgjöf Thieles. Bock- enfeldt skoraði annað markið og Bommer það þriðja eftír undirbúning Atla. Fjórða markið kom skömmu fyr- ir leikhlé og var Atíi enn á ný arkitekt- inn að því. Thiele skoraði það mark. „Ég man þetta eins og þetta hafi gerst í gær. Þetta var einn af þessum leikjum þar sem dómarinn flautar leikinn á og svo af, það sem gerðist á milli var eins og í draumi. Það gengur allt upp, það voru 65 þúsund áhorfendur, grenjandi rign- ing og allt gekk upp. Það var alveg rosalegt fjörá vellinum. Viku seinna spiluðum við við Bay- ern Munchen og við unnum það einnig. Við vorum í öðru sæti í deild- innieftirþessaleiki. Menn minnast enn þessara leikja í Dusseldorf. Við spiluðum drauma- fótbolta og allt gekk upp. Svo gerist það að við erum í öðru sæti eftir tvo leiki og þá fórum við til Kóreu í hálf- an mánuð. Svo þegar heim var kom- ið voru menn með vírusa og meiddir. Við fengum 4 stig úr 15 leikjum og við sluppum á markatölu við fall. Þjáifar- inn gerði mistök og það gekk ekkert upp eftir þessa leiki." Með Atla í ffamlínu Fort- una-liðsins voru Thiele og Ruudi Bommer sem Atii ber vel söguna. „Bomm- er var margreyndur lands- liðsmaður. Hann var svona hlaupatýpa. Var 187 sentí- metrar á hæð og var eins og raketta. Hann var öskufljót- ur og spilaði hátt í 400 leiki í Bundesligunni. Hann er þjálfari núna hjá Duisburg. Gunter Thiele var mik- iil nagli og skemmtilegur karakter. Hann var með flott yfirskegg og flott hár. Hann sagði reynd- ar alltaf að hann liti út eins og hryðju- verkamaður. Alltaf þegar við fórum í gegnum passahliðið á flugvellinum löbbuðum ég og Pétur Ormslev alltaf í gegn. En svo þegar hann kom var hann alltaf stoppaður. Hann gat aldrei skil- ið ástæðuna. Islendingamir löbbuðu í gegn en Þjóðverjinn sjálfur var alltaf Atli var hreint f rábær - sjaldan leikið eins ve stoppaður. Þetta voru hörkustrákar og skemmtilegt lið sem við Pétur vorum í. Þetta var frábært umhverfi, og Dusseldorf er frábær borg. Það var ótrúlegur hópur sem var þarna samankominn sem gat spilað eins og meistarar og gat líka klúðrað eins og ég veit ekki hvað." 18:30 PREMIER LEAGUE WORLD Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum. Leikmenn heimsóttir, gömlu stjörnurnar leitaðar uppi og svipmyndirafæðinu fyrir enska boltanum um heim allan. Farið yfir öll mörkin og helstu atvikin í leikjum síðustu umferðar í Coca Cola deildinni. Ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla þætti þar sem öll mörkin og helstu atvik umferðarinnar eru sýnd frá öllum mögulegum sjónarhornum. Viðbrögð þjálfara, stuðningsmanna og sérfræðinga. Þáttur sem er ekkert minna en bylting í umfjöllun um enska boltann á fslandi. Fyrsti leikur Grétars Rafns Steinssonar í búningi Bolton. Tom Brady hefur verið myndaður í göngugifsi eftir leikinn gegn San Diego: Engin hætta á ferðum þrátt fyrir gifs Boston Herald-blaðið birti í gær myndir af Tom Brady, leikstjórnanda New England Patriots, þegar hann kom í íbúð kærustu sinnar, Gisele Bundchen. Á myndunum sést greini- lega að Brady er í göngugifsi á hægri fæti og haltrar greinilega. Þegar Brady kom í vikulegan þátt sinn á útvarpsstöð í Boston neitaði hann ekki að hann væri meiddur. San Diego Chargers, mótherjar New England-liðsins, tóku hressilega á Brady í leiknum á sunnudag og í eitt skiptið lenti Brady illa. Þegar hlustendur hringdu inn í útvarps- þáttinn til að spyrjast fýrir svaraði stórstjaman; „Það em alltaf marblettir og menn em vafðir eftir leiki. Það er ekkert óalgengt enda er þetta karlmannsíþrótt. Eg verð klár fýrir Superbowl. Það er leikur sem maður missir ekki af vegna smá meiðsla. Égyrði að vera á hækjum, liggjandi upp í rúmi ef menn ætíuðu að segja mér að ég gæti ekki tekið þátt. Ég verð í meðferð meira og minna þessa vikuna og í leikjum sem þessum er eðlilegt að menn fari út úr búningsklefanum svolítið meiddir." Eftir að fféttin birtist hrúguð- ust inn aðrar fréttir frá læknum og alls konar sérfræðingum. Nú þegar Superbowl nálgast er fréttaflutning- ur í Bandaríkjunum af leikmönnum gríðarlegur. Það er nánast einn ijós- myndari á hvern einasta leikmann New England og mótherja þess New York Giants. Fylgst er með hverri hreyfingu þeirra og það þótti með- al annars mikið tiltökumál að kona Paytons Manning hefði keypt sér nýj- an trefil. Brady átti slakan dag þegar New England vann San Diego Chargers. Hann kastaði þrisvar sinnum frá ein skærasta stjarna bandarísks sér, beint í hendur mótherjanna íþróttalífs mun án vafa koma til en þessi öruggi leikstjórnandi og baka í Superbowl eftir tvær vikur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.