Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2008, Blaðsíða 15
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 15
ISLENSKA LANDSLIÐIÐ I HANDBOLTA TAPAÐI STORT FYRIR ÞJOÐVERJUM
í GÆR. ÍSLENSKA LIÐIÐ VAR ANDLAUST, SÓKNARLEIKURINN SLAKUR SEM
FYRR OG LYKILMENN LIÐSINS BRUGÐUST. BLS 16-17.
ísland tapaði með
átta mörkum fyrir
Þýskalandi í gær:
ÞETTAVAR
EINSOG
MENNVÆRU
LAMAÐIR
Alfreð Gíslason, þjálfari fslands,
sagði byrjun leiksins gegn Þýskalandi
hafa lagt grunninn að tapinu. „Byrj-
unin fór algjörlega með okkur. Menn
voru eins og þeir væru lamaðir. Það
var engin hreyfmg á mannskapnum
hvorki í vörn né sókn og við skutum
úr kyrrstöðu eins og svo oft áður. Eftir
tíu mínútur byijuðu menn að hreyfa
sig eðlilega og þá var eins og menn
væru mættir til leiks. Þá vorum við
samt orðnir sex mörkum undir.
Við komum þessu niður í tveggja
marka mun en þá fórum við að gera
klaufamistök aftur. í stöðunni 23-
21 gerðum við mistök sem kostuðu
það að við misstum Þjóðverjana frá
okkur aftur og það fór alveg með
okkur. Það fór gífurleg orka í að vinna
upp muninn með Óla og Guðjón
Val á fullu í skyttunum. Við gátum
minnkað muninn í eitt mark en í
staðinn misstum við þá í fjögur og
svo fimm. Þegar þetta var komið í sex
marka mun sá ég að vindurinn var úr
mönnum og fór að skipta mönnum
út af," sagði Alfreð sem gat lítið gott
sagt um dómara leiksins.
„Dómararnir voru ekki beinlínis
að hjálpa okkur. Það var ósamræmi
í dómgæslunni og þetta líktist Pól-
verjaleiknum frá síðasta heimsmeist-
aramóti. Það virðist vera svo að til að
öðlast virðingu frá dómurum þannig
að þeir gefi ekki betra liðinu eins og
í dag allan andskotann verðum við
hreinlega að spila betur. Heins lá
alltaf í gólfinu og stöðvaði hjá okkur
hraðaupphlaupin. Hann spilar alltaf
svona og við þurftum að benda dóm-
urunum á það."
Þýsku skytturnar skoruðu mik-
ið af auðveldum mörkum í leiknum.
„Skytturnar þeirra hafa verið und-
ir mikilli pressu en þegar þeir skora
fýrstu fimm til sex mörk leiksins utan
af velli léttu þeir pressunni af sér. Við
verðum náttúrulega að gera okkar
besta til að vinna þessa leiki sem eft-
ir eru og þá sérstaklega Ungverjana.
Það er þó þannig að ef menn ætla að
koma eins og kanínur inn í hina leik-
ina eins og þeir gerðu í dag vinnum
við ekki fleiri leiki." tomas@dv.is