Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2008, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2008, Qupperneq 21
DV Umræða MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 21 — Mjólkursamsalan færstóran mínus fyrir markaðssetningu á sykruðum mjólkurvörum sem morgunmat, þar á meðal Engjaþykkni sem er óhollari en ts eins og kom fram IDVI gær. „Ég er fyrst og fremt gífurlega þreyttur því ég hef varla getað sest niður vegna anna. Það hlýtur þó að vera góð þreyta þegar maðurervonandi aðfara að ná miklum árangri," segir Ólafur F. Magnússon. Miklar breytingar verða á högum Ólafs á morgun sem þá tekur við embætti borgarstjóra Reykjavíkur eftir miklar sviptingar í borgarmálum á stuttum tíma. DVFYRIR 25ÁRUM \Ill \rs«finl| NU VII.I.T UB TimiT LIK \ 11.1.1 Náttnr< una er torveit ad temja ir,/oK mnxn IVVtRtMtflH inWMXMU MIHVDIIV Tvaer jafnháar Litla telpan sem lagði leið sína niður á Reykjavíkurtjörn virtist ánægð að hitta stöllu sína álftina og hver veit nema hún hafi veitt því sérstaka athygli að þær eru jafnháar í loftinu. dv-myndstefAn Málefnin ráða för Reykvíkingar kjósa borgarstjórn á fjögurra ára fresti. Kjósendur móta skoðunsínaútfrámönnum,hugmynda- fræðilegri stefnu flokka og einstökum málefnum. 1 borgarstjórnarkosningum árið 2006 var ljóst að mMvægustu baráttumálin í Reykjavík væru sam- göngumál, umhverfismál og mál- efni eldri borgara. Flokkarnir sem buðu fram, alls 5 talsins, höfðu allir ákveðin einkenni og stóðu fyrir ákveðna hugmyndafræði, mismikla þó. Reykvíkingar kusu og höfnuðu þáverandi meirihlutasamstarfi vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknar. Skilaboð kjósenda voru að annað mynstur stjórnarsamstarfs tæki völdin í Reykjavíkurborg en R-listasamstarfið sem hafði ráðið ríkjum í 12 ár og lent í miklum skakkaföllum eftir fráhvarf Ingibjargar Sólrúnar. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hófú samstarf eftir kosningar á grundvelli málefna. Mörg mjög góð verk voru framkvæmd strax eða komin í farveg. Frístundakortið, lóðirákosmaðarverði, lækkun leikskólagjalda, frítt í strætó, græn skref í Reykjavík og sveigjanlegra skólastarf voru meðal þeirra verkefna sem fóru í framkvæmd. Gagnrýnin var helst sú frá flokksfólki að búið væri að uppfylla öll loforðin of hratt - svo mikill var hugurinn í borgarfulltrúum nýs meirihluta. En þá kom byltan. Bylta sem varð vegna ágreinings innan meirihlutans um hvernig staðið var að málum í svo kölluðu REI-máli. Meirihlutinn féll. „Frjálslyndi flokkurinn og Sjálfstxðisflokkurinn munu afstýra því að næstu '» mánuöir ogár verði það tímabil aðgerðaleysis sem einkenndu störfmeiri- hlutans sem nú er fallinn." ÞORBJÖRG HELGA VIGFÚSDÓTTIR borgarfulltrúi skrifar: Bjöm Ingi valdi að yfirgefa Sjálf- stæðisflokkinn þrátt fýrir afar farsælt samstarf og samveru og tók þátt í hreinu valdaráni með svikum sínum. REI-listinn, meirihluti fjögurra flokka, varð til um völd í borginni. Enginn málefnasamningur var gerður og engin sýn kynnt borgarbúum. Meiri- hlutinn var búinn til í kringum alls kyns klúður í kringum Orkuveitu Reykjavíkur en í 100 daga gerðist síðan ekkert í málefhum REI. Strax var ljóst að mikil mistök vom að gera ekki málefnasamning. „Pólitík hins dag- lega lífs," sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri um nýjan meirihluta. Lausnir í ágreiningsmálum vom að biðja menntamálaráðherra að skera sig úr snörunni í skipulagsmálum. Borgarbúar höfðu aldrei nema trú á að þessi fjögurra flokka meirihluti án málefnaskrár ætti sér mikla framtíð. Greinilegt var að Ólafur F. Magnússon var ósáttur við málefnaleysi REI- listans enda mjög trúr sínum hugmyndafræðilegu sjónarmiðum. Fulltrúar Samfylkingarinnar, vinstri grænna og Framsóknarflokksins segja nú að samstarfið hafi verið afar gott þrátt fyrir að Ólafur hafi á mörgum tímapunktumlátiðíljósóánægju, bæði opinberlega og við aðra borgaríuOtrúa. Samstarfsmenn Ólafs vanmám á sínum 100 dögum að ólíkt þeim gat Ólafur ekki sætt sig við valdabandalag í stað málefnabandalags. Nýr meirihluti varð til á mánudag. Hann vinnur út frá stefnu tveggja flokka sem eiga í raun meira sam- eiginlegt hugmyndafr æðilega en þeir flokkar sem myndað hafa meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur síðusm 14 árin. Frjálslyndi flokkurinn og Sjálf- stæðisflokkurinn munu afstýra því að næstu mánuðir og ár verði það tímabil aðgerðaleysis sem einkenndi störf meirihlutans sem nú er fallinn. Kristján Hrafn Guðmundsson spyr spurninga OFTSETURMANN hljóðanyfirpól- itíkinni og því sem gengur þar á dagsdaglega. En í fyrradag tók steininn úr þegar nýjasti meirihlut- inn var myndaður í borgarstjórn. SPURNINGARNAR sem fara á flug eru óteljandi. Hvers vegna sleit Ólafur F. Magnússon samstarfi sem hann áttí þátt í að koma á fýrir aðeins hundrað dög- um? Hvað hef- ur breyst? Eru ílugvallarmálið og húsavemd- unarsjónarmið það eina sem steytir á? Vissi hann ekki hvaða afstöðu hinir flokkamir í meirihlutasamstarfinu höfðu varðandi hvort Reykjavíkur- flugvöllurinn ætti að vera eða fara? Og ef hann vissi það ekki, hvers vegna fór hann þá í samstarfvið flokkana fyrst þetta tiltekna mái er honum svona hjartfólgið? SAMK0MULAG nýjasta meirihlutans um hvað skuli gera við flugvöllinn virðist svo ekki skýrara en það að á blaðamannafundinum á Kjarvals- stöðum, þar sem Ólafur og borgar- fuiitrúar Sjálfstæðisflokksins kunn- gjörðu um meirihlutamyndunina, var sagt að ekki yrði tekin ákvörðun um málið á þessu kjörtfmabiii. Með öðrum orðum: Ólafur og sjálfstæðismenn hafa ekki komist að samkomulagi um það mál sem Ólafur nefnir sem helsta ásteyting- arstein í samstarfi hans við borgar- fuiltrúa Samfýlkingar, Framsókn- ar og vinstri grænna! Hvert er þá límið? TRÚNAÐARBRESTURINN ámflli Ólafs og Margrétar Sverrisdóttur er svo kapítuli út af fyrir sig. Hvers konar vinnubrögð eru það að varamann- eskja Ólafs fái staðfestingu á því að hsti Frjálsiyndra og óháðra, sem Margrét er hluti af, hafi myndað stjórn með Sjálfstæðisflokknum, um leið og öíl þjóðin í beinni út- sendingu í sjónvarpinu? Og í ljósi þess að Margrét ætíar að mynda aftur „gamla nýja" meirihlutann ef hún tekur sæti hans í borgarstjóm af einhverjum orsökum þá má Ól- afur varla tefjast í innanlandsflugi án þess að enn og aftur verði skipt um meirihluta. Ein spurning að lokum: Er þetta borgarbúum bjóðandi? Nýbýlavegi 12. Kópavogi • s. 554 3533 • Opið virka daga frá 10-18 - laugardaga kl. 11-16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.