Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2008, Qupperneq 2
Fréttir DV
2 MÁNUDAGUR 10. MARS 2008
A .
DV
FRÉTTIR
Barinn og rændur
á heimleið
Maður sem var á leið heim úr
miðbænum í gærmorgun varð
fyrir heldur óskemmtilegri lífs-
reynslu. Á leið sinni um Hring-
braut um sexleytið veittust að
honum þrír menn sem börðu
hann og rændu. Hann slasað-
ist ekki alvarlega en mennirnir
höfðu af honum forláta iPod og
fimmtán þúsund krónur í reiðu-
fé. Þegar íögreglan kom á staðinn
höfðu ræningjarnir flúið af vett-
vangi en því miður fyrir mann-
inn voru engin vitni að árásinni.
Hann gat ekki gefið lýsingu á
árásarmönnunum og því hafa
þeir ekki fundist.
Vilja sækja um
ESB-aðild
Þingmennirnir Guðfinna
Baldursdóttir og Jón Magnús-
son tóku bæði undir með það
í Silfri Egils í gær að Islend-
ingar sæktu um aðild að Evr-
ópusambandinu til að kanna
hvaða kostir bjóðast.
„Ég er Evrópusinni. Ég
vil að Islendingar sæki um
aðild en á sama tíma hef ég
sagt að ég er ekki viss um
að ég myndi greiða með því
atkvæði," sagði Jón Magnús-
son, þingmaður Frjálslynda
floklcsins.
Guðfinna Bjarnadótt-
ir, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, sagði hugsanlegt að
Islendingar sæktu um aðild
að Evrópusambandinu. „Ég
er ein af þeim í Sjálfstæðis-
flokknum sem er frekar inn
á því að skoða möguleikana
sem felast í því og ég vil sjá
okkur gera það án þess að
vera fyrirfram búin að setja
okkur í einn hóp eða annan."
Lyftari skall
ájeppa
Smávægilegar skemmdir
urðu þegar lyftari rann til í hálku
við höfnina á Isafirði í gær. Ekki
fór betur en svo að hann rakst á
jeppa sem var við höfnina með
þeim afleiðingum að jeppinn
skemmdist lítiilega. Engin slys
urðu sem betur fer á fólki. Helg-
in var annars afar tíðindalítil á
Vestfjörðum enda veður gott og
akstursskilyrði víðast ágæt, ef frá
er talin höfnin í höfuðstað lands-
fjórðungsins.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamadur skrifar:
íslenskur huldumaður kom að föls-
un bókar hins látna skákmeistara
Bobbys Fischers, My 60 Memorable
Games, sem hann gaf út árið 1969. í
lok síðasta árs var boðin tíl sölu á E-
bay bókin My 61 Memörable Games
og var hún sögð vera eftir Fischer
enda var formáli bókarinnar í hans
nafni. Ekki leið langur tími þar til
bókinni var kippt út sölu á netinu og
fullyrðingar um fölsun fóru á stjá.
Fullyrt er að formálinn sé fals-
aður og að bóldn hafi verið gefin út
án samþykkis skákmeistarans sjálfs.
Þá var ljósmyndin á kápu bókar-
innar telcin af meðlimi í RJF-hópn-
um, stuðningshópi Fischers. Sam-
höfundur upprunalegu bókarinnar,
skákmeistarinn Larry Evans, hef-
ur reynt að rekja slóð falsaranna og
hefur komist að þeirri niðurstöðu
að einhver hér á landi íhlutaðist um
útgáfuna. Sá kallaði sig Helga í sam-
skiptum við þann sem kom bóldnni
í umferð og hefur Evans ýjað að því
að Helgi Olafsson, stórmeistari og
skólastjóri Skákskóla íslands, sé hinn
seki.
Gjörsamlega út í hött
Helgi hafnar því algjörlega að vera
á nokkurn hátt viðriðinn útgáfu bók-
arinnar. „Þetta mál er algjört rugl frá
upphafi til enda. Þarna eru á ferðinni
algjörar getgátur og verið að búa til
einhverjar samsæriskenningar. Mér
þótti vænt um Fischer og bar virð-
ingu fyrir hans verkum, ég myndi
aldrei láta mér detta í hug að reyna
að græða á honum peninga. Það er
gjörsamlega út í hött. Getgátur um
að ég tengist þessu eru eiginlega ekki
svaraverðar. Ég hef aldrei séð þessa
bók," segir Helgi.
Torfi Stefánsson skákáhuga-
maður hefur mikinn áhuga á því
að huldumaðurinn íslenski finnist.
Sjálfur hefur hann reynt að komast á
síóð falsarans. „Mér sýnist allt benda
til þess að Evans hafi rétt fyrir sér og
að umrædd persóna geti varla verið
önnur en Helgi Ólafsson, skólastjóri
Skákskóla íslands. Ef svo er þá er
þetta ffamferði Helga bæði siðlaust
og lögleysa, nema þá auðvitað að
Fischer hafi verið þessu samþykkur
allan tímann. Það síðasta getur varla
staðist ef samband Helga og Fischers
Helgl Ólafsson, stórmeistari í skák, er bendlaður við fölsun á bók skákmeistarans
Bobbys Fischers sem boðin var til sölu á E-bay í haust. Samhöfundur Fischers á hinni
upprunalegu bók, skákmeistarinn Larry Evans, er á slóð falsaranna og
hefur nefnt Helga sem hugsanlegan sökudólg. Helgi sver af sér alla
aðild að fölsuninni sem hann segir vera stóralvarlegt mál.
LEITA ÍSLENSk
HULDUMANNS
„Mér þótti vænt um Fischer og
bar virðingu fyrir hans verkum,
ég myndi aldrei láta mér
detta i hug að reyna að
græða á honum pen-
inga."
fyrir mig og fullyrði að ég
kom ekkert nálægt þessu,
það er algjört rugl," segir
Helgi.
My 61 Memorable Games Fölsuð bók
I nafni Bobbys Fischers birtist á E-bay
siðla árs f fyrra og var formáli hennar
merktur skáksnillingnum sjálfum.
hefur verið lítið sem ekkert síðastlið-
ið ár eins og fullyrt er. Þá er Helgi í
vondum málum," segir Torfi.
Nafninu stolið
„Ég vona svo sannarlega að þetta
sé allt ein stór vitleysa og að það
liggi allt öðruvísi í málinu en virð-
ist í fyrstu. En þá verða viðkomandi
menn að gera hreint fyrir sínum
dyrum. Ef vinir Fischers báru í raun
hag hans fyrir brjósti og bera ein-
hverja lágmarksvirðingu fyrir sjálf-
um sér, hljóta þeir að láta heyra ffá
sér og þvo hendur sínar af þessum
alvarlegu ásökunum. En eftir því
sem þögnin verður lengri því líklegra
er að tilgátur Larrys Evans, um hver
standi að baki fölsuninni, séu réttar,"
bætir Torfi við. Hann segir það einn-
ig athyglivert að félagi Helga úr RJF-
stuðningshópi Fischers, Einar S. Ein-
arsson, tók ljósmyndina sem prýðir
forsíðu hinnar fölsuðu bókar.
Aðspurður segir Helgi það liggja
ljóst fyrir að bókin sem kom fram á
sfðasta ári hafi verið fölsuð. Hann
segist ekld hafa hugmynd um hverj-
ir stóðu að baki útgáfunni en telur
líklegt að það verði rakið á endan-
um. „Það er ótrúlegt að mitt nafn sé
bendlað við þetta. Það er ekkert mál
að nota hvað nafn sem er í svona
slæmum tilgangi og þarna hefur mitt
nafn verið notað sem einkennisnafn.
Það er hægt að stela öllu í dag og það
hefur hugsanlega verið gert til að
koma sökinni á mig. Ég svara bara
Ritverk eru heilög
„Það er talað um að for-
málinn sé alls ekkert eftir
Fischer og bókin var gef-
in út í óþökk hans. Bók-
in var náttúrlega bara
mjög ómerkilegt svindl
og algjörlega ósiðlegt
að reyna koma svona-
löguðu á markað," segir
Helgi. „Eina tengingin
sem ég þekki í þessu
er að á bókarkápunni
er mynd sem Ein-
ar tók. Hvernig það
kom til hef ég ekki
hugmynd um og
hann sjálfur verður
að svara því. Ég hef
ákveðnar skoðan-
ir á því hver fals-
arinn er en það
er ekki mitt mál
að eiga við það.
Það er stóralvar-
legt mál að stela
ritverki með þess-
um hætti. Það
eru sumir hlutir
heilagir og mað-
ur ræðst ekld í það
að stela verkum
annarra. Ég myndi
aldrei leggjast svo
lágt. Ef það gengur eitt-
hvað lengra að ég sé tengd-
ur við þessa bók þá neyðist
ég til að skoða mína réttar-
stöðu," bætir Helgi við.
Bobby Fischer Skákmeist-
arinn skrifaði bók árið 1969
um eftirminnilegustu
viðureignirsínarog
samhöfundurhans,
skákmeistarinn Larry Evans,
erá höttunum eftirfölsurum
bókarinnar.
I U'
_ /
rinn
★ SuÓunveri* .
Alltar c\6o\/tr!
Fangelsismálastjóri útilokar að mistök tengist andláti fanga:
Við erum ekki í neinum feluleik
„Ég get ekki rætt þetta einstaka
mál," segir Páll Winkel fangelsismála-
stjóri. Faðir og tvíburabróður Sigurð-
ar Júlíusar Hálfdánarsonar, sem lést
af völdum meþadoneitrunar á Litla-
Hrauni 22. september síðastliðinn,
segja mistök starfsmanna fangelsis-
ins hafa leitt Sigurð til dauða. Báðir
eru þeir reiðir út í fangelsismálayfir-
völd fyrir aðskiptaleysi eftir atburð-
inn og saka þau vísvitandi um að
reyna að fela hvað raunverulega
gerðist. Feðgamir skilja ekkert í því
hvers vegna yfirvöld hafi ektó viður-
kennt mistök sín og hafa ráðið lög-
fræðing til að lögsækja íslenska ríldð
Aðspurður segist Páll ekki kann-
ast við að handvömm starfsfólks hafi
Lést í klefa sínum Sigurður Júlíus
fannst látinn I klefa sínum eftir að hafa
fengið stóran meþadonskammt.
kostað Sigurð lífið. Hann segir mál-
ið mannlegan harmleik. „Við vísum
því algjörlega á bug að við séum að
fela eitthvað. Ég veit ekld hvað þeir
em að vísa til þegar feðgarnir segja
okkur ekki koma hreint fram. Málið
er ekkert inni á okkar borði og emm
því ekld í neinum feluleik. Við höfum
ekkert yfir læknunum að segja þar
sem heilbrigðisþjónustan er á veg-
um heilbrigðisráðuneytis og sjúlcra-
stofnunarinnar," segir Páll.
„Það er svo langur vegur frá að
við hefðum átt að vera í sambandi
við fjölskylduna og viðurkenna ein-
hverja sök. Sjái þeir sig knúna til að
höfða mál þá er það þeirra leið, telji
menn á sér brotið þá er það rétta
leiðin."
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir feng-
ust ekki svör ffá Magnúsi Skúlasyni,
lækningaforstjóra Heilbrigðisstofn-
unnar Suðurlands, við vinnslu frétta-
rinnar. trausti@dv.is