Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2008, Page 4
4 MÁNUDAGUR 10. MARS 2008
Fréttir DV
Ökumenn undir
áhrifum
Afar rólegt var víðast hvar
á landsbyggðinni um helgina.
Tveir voru teknir fyrir ölvun-
arakstur á Akureyri aðfarar-
nótt sunnudags auk þess sem
fáeinir næturgestir á Hótel Seli
í Mývatnssveit stóðu í stappi
þegar leið á nóttina. Þeir voru
þar vegna snjósleðakeppni sem
fram fór í grennd en hún fór afar
vel fram að sögn lögreglunnar á
Húsavík. Á Selfossi keyrðu tveir
ökumenn ölvaðir í fyrrinótt og
aðrir tveir í gærmorgun. Þá var
einn ökumaður, talinn undir
áhrifum fíkniefna, einnig stöðv-
aður á Selfossi í gær.
Methagnaður
Landsvirkjunar
„Hagnaðurinn hefði orðið
mun minni ef hann hefði verið
reiknaður út með gömlu að-
ferðinni. Þar var ekki tekið tillit
til þeirrar eignar og eignaauka
sem eru í stóriðjusamningum,"
segir Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, en hagnaður
Landsvirkjunar var 28 milljarðar
króna árið 2007. „f upphafi árs-
ins í fyrra tóku nýjar reglur um
reikningsskil gildi. Þær kveða á
um að taka þurfi inn í reiknings-
skilin virði orkusamninga við
stóriðjur. Flestir þeirra eru til fjöl-
margra ára en virði þeirra ræðst
hvoru tveggja af álverði hvers
tíma og gengi íslensku krónunn-
ar. Þetta er engu að síður óinn-
leystur hagnaður" segir Friðrik.
Tannbrotinn á
ballinu á NASA
Hann þarf óvænt til tann-
læknis maðurinn sem ráðist
var á inni á skemmtistaðnum
NASA aðfaranótt sunnudags.
Tennur brotnuðu í mannin-
um sem átti sér einskis ills
von þegar hann varð fyrir lík-
amsárás.
Þess utan bókaði lögreglan
þrjár minniháttar líkamsárás-
ir aðfaranótt sunnudags.
Verktakafyrirtækiö Fjalir hefur stefnt husfelagmu að
Miðvangi 2 til 8 í Hafnarfirði vegna ógreidds reikn-
ings. íbúarnir vilja ekki greiða reikninginn
vegna þess að þeir telja ekki hafa j j 1 %
verið gengið nægilega vel '
ísM^
■
1
Verktakafynrtækið Fjalar hefur stefnt
íbúum að Miðvangi 2 til 8 í Hafnar-
firði fyrir dómstóla vegna vangoldins
reiknings við viðhaldsffamkvæmdir.
Fjalir krefja íbúana um 11 milljónir
króna. Húsfélagið hefur þegar greitt
um 2 til 3 milljónir króna vegna
verksins, en telur sig ekki þurfa að
greiða meira.
fbúar hafa ekki viljað greiða
reikninginn að fullu þar sem þeir
telja verktakann ekki hafa gengið
nægilega ffá framkvæmdinni. Fja-
lir voru fengnar til að taka að sér
viðhaldsframkvæmdir á húsnæð-
inu árið 2006, en fjölbýlið var byggt
í byrjun áttunda áratugs síðustu ald-
ar. Verktakinn átti að sjá um viðhald
á klæðningu á hússins.
Ástmar Örn Arnarsson, fyrrver-
andi eigandi Fjala og stofnandi, lést
skömmu eftir að málið var höfðað
í árslok 2006. Árið 2007 var svo fyr-
irtækið selt og er það nú í eigu fé-
lagsins Fjalir ehf. undir stjórn Kjart-
ans Kópssonar. Þegar Ástmar féll frá
RÓBERT HLYNUR BALDURSSON
bladcimadur skrifar; roberthb@dv.is
hafði ekki náðst samkomulag við
húsfélagið um verklok og uppgjör.
Kjartan segir að málareksturinn nú
sé ekki á forræði núverandi eigenda
þó málið sé rekið í nafni fyrirtækis-
ins. Þá var á honum að skilja að féð
renni í dánarbú Ástmars ef það inn-
heimtist.
Leki í vissum vindáttum
Gallarnir á viðhaldsffam-
kvæmdinni eru taldir vera
margþættir, en í matsgerð
sem dómskvaddur mats-
maður gerði vegna fram-
kvæmdanna kemur fram
að húsnæðið leki í vissum
vindáttum. Þá hafi ekki
verið gengið ffá flísa
lögnum á svöl-
um á vissum
stöðum, svo
eitthvað sé
neftit. Því
gæti svo
farið að
íbúarn-
irtækinu en ekki öfugt. Sigmundur
Hannesson, lögmaður húsfélagsins,
vonast til þess að sættir náist í mál-
inu, en málið var tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjaness í síðustu viku.
Málið verður tekið aftur fyrir í þess-
ariviku.
Lögum verði breytt
Sigurður H. Guðjónsson, formað-
ur Húseigendafélagsins, segir ljóst
að um einstakt mál sé að ræða.
Hann segir ávallt slæmt þeg-
ar mál sem þessi koma upp
milli íbúa og verktaka og
bendir á að gallar í nýffam-
kvæmdum séu algengir á
fslandi. Þá bendir hann á
að því meira sem sé að
gera í nýbygg-
ingariðnað-
inum verði
færri eft-
ir til að
ír eigi
kröfu á
hend-
ur fyr-
Skelfilegt fyrir eigendurna
Sigurður H. Guðjónsson segir
mál sem þetta oft geta verið
kostnaðarsöm fyrir eigendur.
sinna
við-
halds-
fram-
LATINNVERKTAKI
KREFST MILLJÓNA
„Efeinhver tekur að sér
verk á hann ekki rétt á
fullri greiðslu fyrr en því
hefur verið lokið."
kvæmdunum. „Ef einhver tekur
að sér verk á hann ekki rétt á fullri
greiðslu fyrr en því hefur verið lok-
ið. Ég mæli með að allir sem eru að
huga að viðhaldsframkvæmdum
velji sér hagstæðan tíma til samn-
inga. Ef möguleiki er á fólk að fá sér
eftirlitsmann sem hefur augu og
éyru með gangi framkvæmdanna.
Þetta getur verið skelfilegt fyrir eig-
endurna að eiga við þar sem þessi
mál geta oft verið kostnaðarsöm,"
segir Sigurður.
Sigurður bendir á að í Danmörku
verði lögum sem þetta varða breytt
þann 1. apríl. Eftir breytingarnar
munu húseigendur geta snúið sér
að tryggingafélagi og fengið úrlausn
fljótt ef ágreiningur um framkvæmd-
ir kemur upp. „Það er spennandi að
kanna hvort þessi kostur sé fær á fs-
landi og heftir viðskiptaráðuneytínu
verið kynntar hugmyndimar" segir
Sigurður.
Birkiaska
www.birkiaska.is
BETUSAN
Umboðs- og söLuaöili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
Minnistöflur
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
FOSFOSER
MEMOR.Y Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Borgaryfirvöld ætla að stofna Skákakademíu Reykjavíkur:
Skákhöfuðborg heimsins 2010
„Markmiðið er meðal annars
það að gera Reykjavík að skák-
höfuðborg heimsins árið 2010,"
segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Skákakademía Reykjavíkur verð-
ur formlega stofnuð síðar í þessum
mánuði. Greint var frá fyrirhugaðri
stofnun hennar á minningarsam-
komu um Bobby Fischer, fyrrver-
andi heimsmeistara, í gær.
Vilhjálmur hafði í febrúar í fyrra
frumkvæði að stofnun nefndar sem
átti að hyggja að eflingu skáklistar-
innar.
Nefndin, sem var undir forystu
Júlíusar Vífils Ingvarssonar, var
skipuð mörgum af helstu skákspek-
ingum þjóðarinnar. Þeirra á með-
al var Guðfríður Lilja Grétarsdótt-
ir, forseti Skáksambands íslands,
og stórmeistarinn Friðrik Ólafsson
auk þess sem Hrafn Jökulsson var
verkefnisstjóri. Nefndin skilaði af
sér í oktbóber og niðurstaðan var
sú að stofna skákakademíu.
„Við fslendingar eigum okk-
ur mikla skákhefð sem við viljum
halda í hávegum. Akademían mun
í samstarfi við Skáksamband fs-
lands vinna náið með grunnskóla-
börnum og öðrum ungmennum að
því að efla skákáhuga á landinu,"
segir Vilhjálmur sem segist tefla af
og til sjálfur. „Pabbi minn kenndi
mér mannganginn og tefldi við mig
þangað til ég fór að vinna hann. Þá
minnkaði áhugi hjá honum en ég
hef teflt nolckuð reglulega síðan,
þótt árangurinn sé æði misjafn,"
segir Vilhjálmur léttur í bragði.
baldur@dv.is
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar-
fulltrúi Segirakademíuna stefna að því
að Reykjavík verði skákhöfuðborg
heimsins árið 2010.