Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2008, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2008, Side 6
6 MÁNUDAGUR 10. MARS 2008 Fréttir DV Sex ár eru síðan Jón Kristjánsson, þáverandi heilbrigðisráðherra, sagði nauðsynlegt að grafast frekar fyrir um ófrjósemisaðgerðir á ís- landi. Ekkert var þó gert frekar í málinu. Árið 2002 var kynnt fyrir alþingismönnum að þroskaheftir og geðfatlaðir eintaklingar höfðu verið vanaðir án þeirra vitundar en fjöldi þeirra væri ekki ljós. Jón segir enga rannsóknarnefnd hafa verið skipaða í sinni ráðherratíð en hann lét af embætti fjórum árum síðar. Ekki var haft fyrir því að hafa uppi á þeim sem hefðu verið gerðir ófrjósamir líkt og síðar var gert þegar rannsóknarnefnd var skipuð vegna Breiðavíkurmálsins. ,1 „Eðli málsins samkvæmt tel ég nauðsynlegt að kafa frekar ofan í til- tekna þætti skýrslunnar," sagði Jón Kristjánsson, þáverandi heilbrigð- isráðherra, á Alþingi vorið 2002 í umræðum um skýrsluna sem Unn- ur Birna Karlsdóttir sagnffæðingur vann fyrir heilbrigðisráðuneytið og DV sagði ffá um helgina. Þar kom fram að gerðar voru óffjósemis- aðgerðir á 120 einstaklingum á ár- unum 1938 til 1975 af þeirri upp- gefnu ástæðu að viðkomandi væri þroskaheftur eða geðfatlaður. í dag, sex árum eftir að skýrslan var kynnt, hefur þó ekkert verið unnið frekar í málinu. Engin eftirfylgni ráðherra Þegar DV hafði samband við Jón Kristjánsson sagði hann að hug- myndir hafi verið um ffekari rann- sóknarvinnu innan ráðuneytisins á sfnum tíma. Aðspurður hvort kom- ið hefði til tals að ríldð hefði frum- kvæði að því að hafa uppi á þeim einstaklingum sem á voru gerð- ar ólögmætar ófrjósemisaðgerð- ir fram til ársins 1975 svarar hann: „Það var ekki niðurstaðan þá að minnsta kosti að skipa rannsóknar- nefnd líkt og skipuð var í Breiðavík- urmálinu. Það er ekki hægt að'úti- loka að það hafi verið þörf á því en það var allavega ekki gert á meðan ég var í ráðuneytinu." Jón lét af embætti heilbrigðis- ráðherra árið 2006. Hann segir að á sínum tíma hafi hann rætt við Unni Birnu um að grafa dýpra í söguna. Unnur Birna staðfestir þetta í samtali við DV en segir að ekkert hafi orðið úr þeim hugmyndum hjá ráðuneytinu og ekki hafi orðið ff amhald á samstarfi þeirra. SANNAR ÍSLENSKAR SÖGUR VILDI EKKIVÖNUN „Kona þjáð af geðrænum sjúkdómi fór fram á fóstureyðingu en var ekki tilbúin til að vera gerð ófrjó og neitaði „vönun". Geðlæknir hennar taldi slíka aðgerð nauðsynlega því hún gæti ekki annast sjálfa sig eða átt fleiri börn vegna geðsjúkdóms. Hann mat það svo að geðsjúkdómur konunnar væri á svo háu stigi að það væri ekki rétt að ráðgast við hana um vönun. Hann mælti því með„vönun án vitundar sjúklings". Læknirinn sótti um ófrjósemisaðgerð á konunni án hennar vitundar en með samþykki maka. Sá síðamefndi undirritaði beiðni um aðgerð." ERLA HLYNSDÓTTIR bladamadur skrifar: erla@dv.is „VONUNSKAL ÞVÍ AÐEINS LEYFA: a. að gild rök liggi til þess að viðkomandi beri í sér kynfylgju það, er mikil Itkindi séu til, að komi fram á afkvæmi hans sem alvarlegur vanskapnaður, hættulegur sjúkdómur, andlegur eða líkamleg- ur, fávitaháttur eða hneigð til glæpa, eða að afkvæmi hans sé í tilsvarandi hættu af öðrum ástæðum, enda verði þá ekki úr bætt á annan hátt. ÓHLÝÐIN OG VERGJÖRN „Sótt var um aðgerð á stúlku á sextánda ári. Ástæða umsóknar var sögð vera andlegur vanþroski, óhlýðni og„vergirni". Stúlkan var ekki upplýst um eðli og afleiðingar aðgerðar og tók læknir fram að hann teldi hana ekki mundu skilja málið þótt reynt yrði að útskýra það. í vottorði var stúlkan sögð seinþroska en á mörkum þess að vera greindar- skert. Beiðni um aðgerð var undirrituð af foreldri." 3 P* b. að viðkomandi sé fáviti eða varanlega geðveikur eða haldinn öðrum alvarlegum sjúkdómi og gild rök liggi til þess að hann geti ekki með eigin vinnu alið önn fyrir sjálfum sér og afkvæmi sínu." m 1 5 Íf SMÁ AÐGERÐ „Hlutaðeigandi vartjáð að gera þyrfti „smá aðgerð". Þessi skýring var rökstudd með því að viðkomandi gæti hvort eð er ekki skilið hvað fram átti að fara sökum andlegs vanþroska. Beiðni um aðgerð var undirrituð af framfæranda sem jafnframt var skipaður tilsjónarmaður." HEIMILD: SKÝRSLA UNNAR BIRNU KARLSDÓTTUR SEM HÚN VANN FYRIR HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ 2002.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.