Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2008, Blaðsíða 21
DV Sport
MÁNUDAGUR 10.MARS2008 21
Guðmundur Eggert Stephensen og Lilja Rós Jóhannesdóttir, Víkingi, urðu í gær ís-
landsmeistarar í einliðaleik í borðtennis. Guðmundur vann sinn fimmtánda titil en Lilja
hafði ekki keppt í fjögur ár.
Óstöðvandi
Guðmundur Stephensen vann sinn
fimmtánda Islandsmeistaratitil í einiiðaieik
borðtennis í röð.
k' l.
Guðmundur Stephensen varð þre-
faldur fslandsmeistari í borðtennis
um helgina. Auk þess að verða meist-
ari í einliðaleik varð hann íslands-
meistari í tvíliðaleik ásamt Magnúsi
K. Magnússyni og tvenndarleik ásamt
Magneu J. Ólafsdóttur. Mótið fór fram
í KR-heimilinu við Frostaskjól.
Guðmundur var ánægðastur með
að vinna aftur íslandsmeistaratitílinn
í tvíliðaleik. „Þettavarmjögskemmtí-
legt mót og gaman að fara í nýja höll.
Ég vann aftur meistaraititilinn í tví-
liðaleik sem ég tapaði í fyrra. Þetta
er kannski ekki eins gaman og þegar
ég rétt marði úrslitaleikina. Það var
gaman að vinna tvíliða- og tvennd-
arleik. Það er ekki eins öruggt. Það
skiptir mestu máli að vinna fyrir fé-
lagið mitt, Víking."
í úrslitum í einliðaleik vann hann
Kjartan Briem, KR. „Úrslitaleikurinn
gekk eins og í sögu. Gamli karlinn gat
ekki neitt."
Flakkar milli íslands og Svíþjóðar
Guðmundur hefur í vetur búið og
æft á fslandi og stundað flugnám, en
spilað með sænska félaginu Eslövs í
deildarkeppninni þar og Meistarara-
deildinni.
„Þetta gengur einn vetur en tæp-
lega tvo í röð. Þetta hefur samt verið
mjög gaman og fínt fyrir hina strák-
ana. Ég hef æft með þeim, þeir hafa
æft oftar en undanfarin ár og farið
ffam.
Úrslitakeppnin í Svíþjóð er að
byrja. Ég fer út í næstu viku og verð
í mánuð. Ég mun æfa og spila á fullu
tíl að gera liðið mitt að meistur-
um, eins og í fyrra. Það er aðalatrið-
ið. Okkur hefur gengið mjög vel og
komust í fjórðungsúrslit Meistara-
deildarinnar.
Tímabilinu í Svíþjóð lýkur um
miðjan apríl. Þá þarf ég að ákveða
hvað ég geri fyrir næsta ár, hvort ég
sem við nýtt lið eða það sama aftur.
Það er ekkert borðleggjandi í þeim
efnum.
Ég var eiginlega búinn að ákveða
að fara til Þýskalands í fyrra en hætti
við og ákvað frekar að fljúga á milli."
Lokatilraun við Ólympíuleika
Guðmundur keppir líka að því að
komast á Ólympíuleikana í Kína. Það
er honum ertíðra því hann hefur ekki
tekið þátt í einstaklingskeppninni
sem vegur þungt á heimslistanum.
„Það er undankeppni fyrir Ól-
ympíuleikana 10. apríl og þar eru tvö
sæti laus. Ég tek þátt í mótinu til að
reyna að komast áfram. Það er erf-
itt fyrir mig að komast á leikana því
ég spila ekki mikið á einstaklings-
mótunum. Það er dýrt, maður býr á
hóteli og flakkar á milli landa. Mér
finnst það ekki voðalega spennandi.
Ég hef oft íhugað það tíl að ná í stíg
fyrir heimslistann sem menn horfa á
hér heima."
Meistari eftir fjögurra ára
fjarveru
I kvennaflokki varð Lilja Rós Jó-
hannesdóttir íslandsmeistari eftir
að hafa unnið Guðrúnu G. Björns-
dóttur, KR, meistara seinustu
þriggja ára. Lilja Rós keppti sein-
ast á fslandsmótinu árið 2004. Síð-
an lagði hún spaðann á hilluna en
tók hann fram aftur fyrir íslands-
mótið.
„Þetta var voðalega gaman eins
og alltaf. Það var hringt í mig og ég
beðin um að koma. Eg sló til fyrir
ánægjuna. Ég bjóst ekki við neinu
og það var engin pressa á mér."
Lilja hafði yfirburði í úrslita-
leiknum. „Það hentaði mér mjög
vel hvernig hún spilaði. Það gekk
allt upp. Reynslan segir oft mikið
og ég hef hana. Þetta var gríðarlega
erfitt, ég er alveg búin."
í tvíliðaleik varð Guðrún fs-
landsmeistari ásamt Ragnhildi Sig-
urðardóttur, Víkingi.
GUNNAR GUNNARSSON
bladamadur skrifar: sport&dv.is
Haukar eru með íjögurra stiga forystu í Nl-deild karla:
HUGSA UM MÖGULEIKA EKKITAKMARKANIR
„Þetta var virkilega góður og sæt-
ur sigur" sagði Aron Kristjánsson,
þjálfari Hauka, við DV um 32-28 sig-
ur þeirra á Stjörnunni á laugardaginn.
Haukar hafa nú fjögurra stíga forskot
á Fram þegar níu umferðir eru eftír.
„Ég gerði ráð fyrir mjög erfiðum leik
en við komum virkilega ákveðnir inn í
síðari hálfleikinn. Þar náum við góðu
forskotí og klárum leikinn," bættí
Aron við.
Haukar fóm hægt af stað og skor-
uðu ekki fyrstu fimm mínútur leiksins.
Aron sagðist ekki hafa verið smeykur
við slaka byrjun sinna manna. „Það
var góður andi í liðinu þannig þetta
var aldrei neitt vandamál. Varnarleik-
urinn var góður og markvarslan líka.
Fyrstu skotín vom einfaldlega ekki
að detta inn og við áttum þrjár léleg-
ar sóknir. Eftír það fómm við svona
að spila það sem við höfðum lagt upp
með."
Haukar hafa verið án vinstrihand- Halldór Ingólfsson og Arnar Jón Agn-
arskyttu mestmegnis undanfarið. arsson em báðir frá og hefur Gunnar
Berg Viktorsson verið að sveifla hægri
hendinni í vinstri skyttustöðunni. „Við
höfum verið í gífurlegum vandræð-
um með vinstrihandarskyttu stöðuna
vegna meiðsla en Gunnar Berg hefur
verið að leysa hana mjög vel. Gunn-
ar er heldur ekkert óvanur því að spila
þarna og ég hef verið mjög ánægður
með hann.
Þegar svona gerist að maður miss-
ir út eina stöðu þarf maður að leggja
öðruvísi áheyrslur á sóknarleikinn.
Það hefur líka gengið því við emm að
skora yfir þrjátíu mörk gegn sterkum
liðum. Þar hefur vörnin hjálpað okk-
ur mikið og við erum effir út af góð-
um varnarleik. Gunnar Berg og Arnar
Pétursson hafa verið að leika ffábær-
lega í miðju varnarinnar. Þetta er
svona með mig að ég vil frekar hugsa
um möguleika í stöðunni heldur ein-
hvervandamál," segir Aron.
tomas@dv.is
ÍÞRÓTTAMOLAR.
HÖRÐUR ENDURKJÖRINN
Hörður Oddfríðarson var endurkjörinn
formaður Sundsambands (slands án
mótframboðs á nýafstöðnu Sund-
þingi. Miklar breytingar urðu á stjórn
sambandsins, fjórir gáfu ekki kost á
sér áfram og nýir einstaklingar voru
kosnir í þeirra stað. Stjórnin hefur
ráðið Hildi Karen Aðalsteinsdóttur
sem framkvæmdastjórafrá f.júní
2008. Jana Sturlaugsdóttir lét af
starfinu í lok janúar og hinn
framvæmdastjórinn, Brian Marshall
sem fór (barneignarleyfi um áramót,
hefur óskað eftir starfslokum.
GRINDAVfK f ANNAÐ SÆTIÐ
Bikarmeistarar Grindavíkur náðu öðru
sæti lceland Express deildar kvenna í
körfuknattleik í
lokaumferðinni
þegarliðið vann
KR 80-68. Tiffany
Roberson skoraði
fjörtíu stig fyrir
Grindavík og
Joanna Skiba 24
en Candace
Futrell var
stigahæstKR-inga
með 33 stig. Sigurinn tryggir
Grindavik heimaleikjarétt í úrslita-
keppninni.
Keflavík varð deildarmeistari en liðið
vann Hamar í 97-74. TaKesha Watson
skoraði 42 stig fyrir Keflavfk. Fjölnir féll
úr deildinni með tvö stig. Liðið tapaði
í lokaumferðinni fyrirVal, 81-59. Molly
Petermanskoraði37stigfyrirVal. *
TILEINKUÐU JAKOB ERNISIGURINN
Kvennalið Gerplu, sem um helgina
varð (slandsmeist-
ari í hópfimleik-
um, tileinkaði
sigurinn Jakob
Erni Sigurðssyni.
Jakob, 11 ára,
veiktist alvarlega
á æfingu hjá
félaginu í
seinustu viku og
liggurá
gjörgæsludeild Landspítalans.
Ármann vann í karlaflokki í flokki «
blandaðra liða Grámann, sameiginlegt
lið Ármanns og Stjörnunnar. Á
laugardag vartekin fyrst skóflustung-
an að nýju fimleikahúsi sem rísa á í
Garðabæ og áætlað er að taka í
notkun haustið 2009
ÞRJAR f KAUPMANNAHAFNARBIK-
ARNUM
Þrír íslenskir skautarar tóku þátt í
Kaupmannahafnarbikarnum [
listdansi á skautum sem fram fór í
Óðinsvéum um
helgina. íris Klara
Heiðarsdóttir
keppti í
ungmennaflokki
og Dana Rut
Gunnarsdóttirog
Helga Jóhanns-
dóttir í byrjenda-
flokki. Guðbjört
Erlendsdóttir var
meðal dómara á mótinu en þetta var í
annað sinn sem hún dæmir á
alþjóðlegu móti.
Arni brunaði í brekkunum
Árni Þorvaldsson, Ármanni, náði
góðum árangri á alþjóðlegum
skíðamótum sem fram fóri í
Innerkrems í Austurríki um helgina. Á
sínu fyrsta alþjóðlega brunmóti varð
hann í 21. sæti. Árni varð fimmtándi
þegar aftur var keppt I bruni í gær.
Stefán Jón
Sigurgeirsson, *
Skíðafélagi
Akureyrar, náði
einnig góðum
árangri í bruninu
og varð átjándi.
Árnivarð
sautjándi í
risasvigi. Gísli
Rafn Guðmunds-
son, Ármanni, og Sigurgeir Halldórs-
son, Skíðafélagi Akureyrar, tóku einnig
þátt f mótunum í Innerkrems og stóðu
sig vel.
VALURTAPAÐI
Kvennalið Vals tapaði 36-30 fyrir
Merignac í Áskorendakeppni Evrópu í
handknattleik f gær. Góður kafli
Frakkanna í lok fyrri hálfleiks lagði
grunninnaðsigrinum, enþærleiddu „
21-141 hálfleik. Eva Barna skoraði níu
mörkfyrirfram og Kristín Guðmunds-
dóttir sex. Berglind Hansdóttir varði
ellefu skot. Seinni leikurinn ferfram að
Hllðarenda um næstu helgi.