Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2008, Blaðsíða 15
DV Sport
FIMMTUDAGUR 13. MARS 2008 15
Fimmtudagur 13. mars 2C
Rakel Dögg Bragadóttir gæti veriö á leiöinni til Danmerkur eftir tímabilið.
RAKEL STEFNIR Á ATVINNUMENNSKU
„Það er ekki neitt öruggt, það er
búið að vera draumur minn frá því
ég var pínulítil að fara út og spila og
mér finnst ég vera tilbúin núna. Ég
er bara að skoða málin," sagði Rakel
Dögg Bragadóttir, leikmaður Stjörn-
unnar og fyrirliði kvennalandsliðs-
ins. Rakel er ein allra besta hand-
knattleikskona landsins og hún
hefur lengi gengið með atvinnu-
mannadrauminn í maganum.
Rakel horfir til Danmerkur en
hún er fædd í Árósum. „Ég horfi
helst til Danmerkur. í fyrsta lagi er
besti handboltinn spilaður þar og ég
kann vel við mig í Danmörku. Ég hef
búið þar áður. Líka upp á skólann,"
sagði Rakel en hún er á þriðja ári í
hagfræði í Háskóla íslands. Rakel er
með umboðsmann sem er að vinna
í hennar málum og það ætti að skýr-
ast fyrr en síðar hvort hún haldi á vit
ævintýranna.
„Ég á hálft ár eftir í hagfræðinni
og út af því að þetta er ekkert komið
á hreint hvort ég fari eða ekki þá veit
maður lítið. Hvort ég taki fjarnám
eða einhverskonar skiptinám."
Rakel hefur glímt við axlarmeiðsli
í vetur og er orðin langþreytt á sög-
unni endalausu um meiðslin. „Það
gengur ógeðslega hægt en það eru
batamerki á öxlinni. En þetta lag-
ast allt með tímanum." Stjarnan yrði
fyrir gríðarlegri blóðtöku ef Rakel
myndi halda á vit ævintýranna og
skarð hennar vandfyllt. Hún hefur
leikið gríðarlega vel á þessu tíma-
bili og stýrt leik Stjörnunnar eins og
herforingi. benni@dv.is
Horfir til Danmerkur Rakel Dögg
hefur áhuga á því að spila í dönsku
deildinni.