Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2008, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2008
Bllar DV
Öruggastur - og fallegastur? Framleiöendur
Volvo eru afar stoltir af nýja fjölskyldumeðliminum;
Volvo XC60. Þeir segja hann öruggastan af
forverunum og ýja að því að hann sé sá fallegasti.
Glæsilegur Þessi nýji Jagúar mun vera sá hraöskreiðasti síöan ofur
Jaginn XJ220 var framleiddur.
iF
Alls svöruðu 1.004 spurningu á
heimasíðu FÍB um reykingar. Spurn-
ingin var þessi: Má reykja í bflnum
þínum? Fjórtán prósent svöruðu
spurningunni játandi en áttatíu og
sexprósent svöruðu neitandi.
Af þessum svörum má draga þá
ályktun að langsamlega fæstir kjósa
að reykt sé í bflum og að stór hluti
reykingafólks sé samhuga þeim
reyklausu og vilji ekki að reykt sé í
bflum þess.
Á heimasíðunni fib.is er nú spurt
hvort banna eigi negld vetrardekk.
Svarmöguleikar eru þrír: A) Já. B) Já,
á höfuðborgarsvæðinu og Suður-
landi. C) Nei.
bKKpin?
Bflaleigan ALP á Islandi hefur
gengið frá samningum við bflaum-
boðin B&L og Ingvar Helgason um
kaup á níu hundruð nýjum bifreið-
um. Verðmæti bflanna nemur tæp-
lega tveimur milljörðum króna. Talið
er að um stærstu bflakaup sem einn
aðili hefur ráðist í á íslandi sé að
ræða. Þær tegundir sem keyptar eru
af B&L eru af gerðunum Hyundai,
Renault og Land Rover. Tegundirnar
sem keyptar eru af Ingvari Helgasyni
eru Nissan, Subaru og Opel. Kemur
það fram á heimasíðu B&L að um
þokkalegan magnafslátt hafi verið
að ræða.
Him
Fyrirtækið Bflar-USA býður upp
á mjög svo þægilega þjónustu. Fyr-
irtækið sérhæfir sig í innflutningi á
farartækjum frá Bandaríkjunum. Öll
pappírsvinna og samskipti við bfla-
umboð í Bandaríkjunum eru í hönd-
um íyrirtækisins svo að allt lítur út
fyrir að eina sem viðskiptavinurinn
þurfi að gera er að velja sér bfl við
hæfi. Þetta er kjörið fyrir aila þá sem
vilja finna sér bfla sem eru óalgengir
vegum landsins. Nánari upplýsingar
eru að finna á bilarusa.is. Hví ekki að
skera sig aðeins úr?
1 Stórafmæli á árinu FordT
frá 1908 og enn vel ern.
Ymsar útgáfur Gamli Ford var afhentur
kaupendum ýmist sem pallbíll, fólksbíll
eins og þessi á myndinni eða sem tveggja
sæta skemmtiblll eða sportblll. En allt var
þetta þó sami bíllinn I grunninn með
sömu vél og sömu skiptingu.
mSTjt
-* •. v.
Ford T - fyrsti færibanda-
framleiddi bíll sögunnar
á afmæli á árinu.
Á þessu ári verður öld liðin frá því að
framleiðsla á Ford T, fyrsta færibanda-
ffamleidda bfl bílasögunnar hófst. Það
var í september 1908. Hætt var að fram-
leiða Ford T árið 1927 en þá höfðu rúm-
lega 15 milljón eintök verið smíðuð. Af-
mælinu verður fagnað það sem eftir er
ársins en hátíðarhöldin hófust um síð-
ustu helgi í Flórída.
Hátíðahöldin hófust á eynni Am-
elia Island um síðustu helgi og þar gaf
að líta mikinn fjölda Ford T-bfla og fleiri
gerðum gamalla Ford-bfla. Næsta há-
tíðarlota verður svo í Kalifomíu á mik-
illi Ford-samkomu sem nefriist The
Fabulous Fords Forever. Hin þriðja og
stærsta verður síðan í borginni Rich-
mond í Indiana. Sú hátíð nefnist T Party
2008 og þar verða fleiri T-Fordar saman
komnir á einum stað en nokkru sinni
áður í bílasögunni. Búist er við um eða
yfir þúsund T-Fordum til hátíðarinnar
hvaðanæva úr heiminum en þegar hafa
eigendur 700 slflera eðalvagna boðað
komu sína.
Sala á T-Fordinum hófst síðla árs
1908 og vegna hagkvæmni fjöldafram-
leiðslunnar var verðið allt annað og
lægra en áður hafði þekkst. Aðrir bfla-
ffamleiðendur neyddust fljótlega til
að endurskipuleggja framleiðslu sína
í framhaldinu til að mæta samkeppn-
inni við Henry Ford og T-Fordinn hans.
Sú endurskipulagning leiddi tíl þess að
færibandaffamleiðsla varð almenn í
bandarískum bflaiðnaði upp úr 1914.
T-Fordinn erþannigfyrsti bfllinn sem
venjulegt alþýðufólk réði við að eignast
og almenningur tók bílnum fagnandi.
Ford T var einfaldur bíll miðað við aðra
bfla þess tírna. Hann var léttbyggður og
auðveldur í akstri og viðhaldi. Þyngd
bflsins var einungis 550 kíló, vélin var
fjögurra strokka, 20 hestafla og gírkass-
inn eins konar fótvirk sjálfsldpting með
tveimur hraðastigum áffam (High og
Low) og afturábakgír. Hámarkshraðinn
var rúmlega 70 km á klst. Þegar fram-
leiðslan loks hættí 19 árum síðar höfðu
15 milljón T-Fordar verið byggðir.
IGENF
Bílasýningin í Genf stendur nú sem hæst en
henni lýkur þann 16. mars næstkomandi. Margir
hafa tekið andköf yfir nýju kerrunum og lýsing-
arorð á borð við flottastur, öruggastur, hrað-
skreiðastur og frumlegastur óma um sýningar-
sali. Hér eru sýnishorn af þremur slíkum.
Bentley GTZ ftalski bílaframleiðandinn Zagoto þykir
sýna með þessum nýja Bentley að fjöldaframleiðsla er
ekki málið þegar kemur að ekta klassa.
SMS
Bílasprautun og réttingar
• Réttum og málum allar tegundir bíla
• Við vinnum fyrir öll vátryggingarfélögin
• Fjót og góð þjónusta
• Útvegum bllaleigublla
• Yfir 20 ára reynsla
SmlBshöfB112-110 Rtykjavlk - bllasprautunsms»slmntt.ls - Slml 5671101- CSM 860 8317 Fax5671182
CABAS
Tjónamat