Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2008, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2008, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2008 ÆttfræOi DV TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ 75ARAIDAG 30 Ara afmæli ■ Madars Licis Þverbrekku4, Kópavogur ■ Arnar Gunnarsson Auðbrekku lAkureyri ■ Eva Björk Haraldsdóttir Keilusiðu 5d, Akureyri ■ Karlotta S Ásgeirsdóttir Flétturima23, Reykjavik ■ Alfa Rós Pétursdóttir Freyjugötu 25c, Reykjavík ■ Guðrún Hildur Jóhannsdóttir Smáratúni 48, Reykjanesbær ■ Sigrún Hanna Sigurðardóttir Litlakrika23, Mosfellsbær ■ Gyða Einarsdóttir Blönduhlíð 10, Reykjavlk ■ Salóme Sif Símonardóttir Strandgötu 17a, Patreksfjörður ■ Gunnar Örn Sigvaldason Reynimel82, Reykjavik 40 ÁRA AFMÆLI ■ Vigdis Furuseth Syðra-Langholti 3, Flúðir ■ Brooks Arther Hood Norðurtúni2,Álftanes ■ Þórunn Lára Þórarinsdóttir Stórateigi27, Mosfellsbær ■ Sigurður B Halldórsson Strandvegi 18, Garðabær ■ Ragnheiður Samúelsdóttir Klappakór 1b, Kópavogur ■ Sigrún Lilja Jónsdóttir Flétturima 32, Reykjavlk ■ Sigurbjörg G Friðriksdóttir Hraunhvammi 3, Hafnarfjörð- ur ■ Sigrún Kristjánsdóttir Þelamörk42, Hveragerði ■ Njáll Stefánsson Bröttuhlið2,Akureyri ■ Barbara Meyer Ásmúla, Hella 50 ÁRA AFMÆLI ■ Lin Kam Yu Sóltúni30, Reykjavík ■ Maria G Barros Ferreira Skipholti 19, Reykjavik ■ Hjalti Reynisson Fálkagötu28,Reykjavík ■ Sverrir Sigurjón Björnsson Ránargötu46, Reykjavik ■ Brynjólfur Grétarsson Rauðalæk38, Reykjavlk ■ Sigríður E Laxness SólvallagötuSO, Reykjavík ■ Ingólfur Hjörleifsson Borgarholtsbraut68, Kópavogur ■ Hulda Kobbelt Andrésbrunni 10, Reykjavlk ■ Þórhildur Þorsteinsdóttir Þorláksgeisla 6, Reykjavlk ■Theódóra K Frímann Tunguvegi 14,Reykjavlk ■ Elísabet Jóna Sólbergsdóttir Selbraut36, Seltjarnarnes ■ Sigurlaug Sigurpálsdóttir Stararima 49, Reykjavlk ■ Guðmundur Ingvason Ásvegi 9, Dalvlk ■ Gunnar Ágúst Pálsson Austurbrún 6, Reykjavlk 60 ÁRA AFMÆLI ■ Inga Rósa Guðjónsdóttir Trönuhjalla 5, Kópavogur ■ Júlíus Gunnar Óskarsson Granaskjóli 82, Reykjavik ■ Ragnheiður Jónsdóttir Gestsstöðum, Hólmavlk ■ Laufey J Kjartansdóttir Seftjörn 2, Selfoss ■ Sigurður Guðmundsson Möðruvöllum 1, Mosfellsbær ■ Margrét G Karlsdóttir Selvogsbraut29, Þorlákshöfn ■ Baldur Baldvinsson Reykjaheiðarvegi 3, Húsavík ■ Gísli Ragnarsson Aflagranda 27, Reykjavik ■ Höður Guðlaugsson Birkiási28, Garðabær 70 ÁRA AFMÆLI ■ Hafliði Jóhannesson Borgarbraut30,Stykkishólmur ■ Haukur Guðjónsson Illugagötu31, Vestmannaeyjar ■ Gunnar Þórólfsson Garðarsbraut32, Húsavík ■ Margrét Dannheim Brekkuseli 33, Reykjavik 75 ÁRA AFMÆLI ■ Jóhann Þór Sigurbergsson Fannafold71, Reykjavík ■ Magnús Finnbogason Gilsbakka 2, Hvolsvöllur ■ Vilhelm Ingólfsson Gullsmára 9, Kópavogur ■ Bolli Thoroddsen Sæbraut 6, Seltjarnarnes 80 ÁRA AFMÆLI ■ Björgheiður Eiríksdóttir Skúlagötu40, Reykjavik 85 ÁRA AFMÆLI ■ Sigrún Elíasdóttir Furugerði 1, Reykjavlk ERLINGURGISLASON LEIKARI OG LEIKSTJÓRI Erlingur Gísli Gíslason, leikari og leik- stjóri, er sjötíu og fimm ára í dag. STARFSFERILL Erlingur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1953, stund- aði nám í íslensku við Hl 1953-54, lauk prófi í forspjallsvísindum frá HÍ1954, prófi frá Leik- listarskóla Þjóðleikhússins 1956, stundaði nám við Tóniistarskólann í Reykjavík 1953- 54, nam leikhúsfræði við Háskólann í Vínar- borg og leiklist við Leiklistarskóla Helmuts Kraus í Vín 1956-57, fór kynnisför um Evrópu og á leiklistarnámskeið í London og Berlín 1965-66, sótti leikstjóranámskeið í Ósló 1966 og námskeið í gerð kvikmyndahandrita hjá Dramatiska Institutet í Svíþjóð 1985. Erlingur var leikari og leikstjóri hjá Þjóð- leikhúsinu, Grímu og Leikfélagi Reykjavíkur 1957-91, hefur farið með fjölda hlutverka í útvarpi og sjónvarpi og ýmis hlutverk í kvik- myndum, var kennari hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga, Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og ríkisins, við Gagnfræðaskóía Reykjavíkur og Gagnfræðaskóla Kópavogs. Erlingur var einn af stofnendum Leik- klúbbsins Grímu 1961. Hann var formað- ur Leikarafélags Þjóðleikhússins 1967-69 og Félags íslenskra leikstjóra 1975-77 og 1979- 81, fulltrúi Alþýðubandalagsins í Reykjavík á landsfundum Alþýðubandalagsins 1987 og 1989, fulltrúi Birtingar á landsfundunum 1995, 1997, og 1998 og sat í framkvæmda- stjórn Leiklistarráðs fýrir Félag leikstjóra á fs- landi 1990-91. Erlingur og Brynja, eiginkona hans, sömdu leikritið Flensað í Malakoff og Erlingur samdi, ásamt öðrum, leikritið Flugleik. Hann samdi handrit að stuttmyndinni Símon Pétur fullu nafni 1988 og Reykjavíkurstúlku. Erlingur hlaut verðlaun Listahátíðar í Reykjavík 1988 fyrir myndina Símon Pétur fullu nafni og handritastyrk úr Kvikmynda- sjóði.Hann var sæmdur riddarakrossi ís- lensku fálkaorðunnar fýrir framlag sitt til leik- listar 2008. FJÖLSKYLDA Eiginkona Erlings er Brynja Benedikts- dóttir, f. 20.2. 1938, leikstjóri, höfundur og leikari. Hún er dóttir Benedikts Guðjónsson- ar, f. 3.3.1909, d. 12.4.1982, kennara og skóla- stjóra í Mýrdal og síðar kennara í Reykjavík, og k.h., Róshildar Sveinsdóttur, f. 21.2. 1911, handavinnu- og yogakennara. Sonur Erlings og Brynju er Benedikt, f. 31.5. 1969, leikstjóri, leikari og leikskáld, en kona hans er Charlotta Böving leikkona og eiga þau eina dóttur. Fyrri kona Erlings var Katrín Guðjónsdótt- ir, f. 27.3.1935, nú látin, kennari. Synir Erlings og Katrínar eru Guðjón, f. 15.12. 1955, tölvuverkfræðingur í Svíþjóð en kona hans er Berta Ragnarsdóttir og eiga þau þrjá syni; Friðrik, f. 4.3. 1962, rithöfundur og tónlistarmaður og á hann einn son. Systkini Erlings eru Anna, f. 30.12. 1924, húsmæðrakennari í Reykjavík; Einar Ólafur, f. 6.4.1929, fýrrv. flugstjóri í Reykjavík. Foreldrar Erlings: Gísli Ólafsson, f. 21.11. 1898, d. 11.4. 1991, bakarameistari í Reykja- vík, og k.h., Kristín Einarsdóttir, f. 26.9.1899, d. 12.12.1992, húsmóðir. ÆTT Gísli var bróðir Sigurjóns myndhöggvara. Gísli var sonur Ólafs, verkam. á Eyrarbakka Arnasonar, b. í Þórðarkoti Eiríkssonar, b. á Mosastöðum Guðmundssonar. Móðir Árna var Sigríður, systir Halldóru, langömmu Svan- hildar, móður Sigurgeirs biskups, föður Péturs biskups. Móðir Ólafs á Eyrarbakka var Margrét Gísladóttir, b. í Hreiðuborg Halldórssonar. Móðir Gísla var Guðrún Gísladóttir, b. í Stokkseyrarseli Andréssonar, b. í Stóru-Sand- vík Gíslasonar, og Elísabetar Kristófersdóttur. Móðir Guðrúnar var Guðný, hálfsystir Krist- ínar, langömmu Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur utanríkisráðherra. Guðný var dóttir Hannesar, b. í Tungu í Flóa, bróður Þorkels, langafa Ragnars í Smára og Guðna Jónssonar prófessors og langalangafa Karls Guðmunds- sonar leikara. Hannes var sonur Einars, spít- alahaldara í Kaldaðarnesi Hannessonar, ætt- föður Kaldaðarnesættar Jónssonar. Móðir Guðnýjar var Guðný, systir Sigríðar, lang- ömmu Baldurs Möller. Kristín er dóttir Einars, verslunarmanns í Reykjavík Einarssonar, sjómanns á Melnum í Reykjavík Bjarnasonar, í Saltvík Ingimundar- sonar, bróður Ólafs, langafa Valgerðar, ömmu Einars Benediktssonar sendiherra. Syst- ir Bjama var Helga, langamma Jakobs Möll- ers ráðherra og Frans, föður Hans G. Ander- sen sendiherra. Móðir Einars á Melnum var Sigríður Einarsdóttir, b. í Stíflisdal Jónssonar. Móðir Einars var Ingveldur Jónsdóttir, syst- ir Guðna, ættföður Reykjakotsættar, langafa Halldórs, afa Halldórs Kiljans Laxness. Guðni var einnig langafi Guðna, langafa Vigdísar Finnbogadóttur, fýrrv. forseta. Móðir Einars verslunarmanns var Kristín Gísladóttir, b. í Grænuhlíð við Reykjavík Péturssonar. Móðir Kristínar var Anna Jónsdóttir, b. í Artúni Jónatanssonar. Móðir Jóns var Að- albjörg Jónsdóttir. Móðir Aðalbjargar var Rannveig Magnúsdóttir, pr. á Hrafiiagili, þess er „settist upp á Skjóna" Erlendssonar. Móð- ir Rannveigar var Ingibjörg Sveinsdóttir, lög- manns og skálds Sölvasonar, klausturhaldara á Munkaþverá Tómassonar, bróður Tómas- ar, ættföður Hvassafellsættar, langafa Jónasar Hallgrímssonar skálds. Valur Júlíusson FYRRV. YFIRLÆKNIR Valur fæddist við Laugaveginn í Reykja- vík og ólst þar upp og var sex sumur í sveit að Kambi í Holtum. Hann lauk stúdentsprófi frá VÍ1951, embættisprófi í læknisfræði frá HI 1961 og sótti ýmsar ráðstefn- ur um áfengis- ogvímu- efnaneyslu, í Banda- ríkjunum, Englandi og í Danmörku. Valur var aðstoðar- læknir héraðslæknis í Eskifjarðarumdæmi 1961, námskandídat við St. Jósepsspítala, Landspítalann og Slysavarðstofuna í Reykja- vík, var héraðslæknir í Seyð- isfjarðarhéraði 1962-68 og heimilislæknir í Reykjavík frá 1968. Hann var skólalækn- ir við Hagaskóla frá 1969, við Melaskóla 1970-77, var einn af stofnendum sAá, læknir við sjúkrastöð SÁÁ frá 1977 og fyrsti yfirlækn- ir samtakanna. FJÖLSKYLDA Eiginkona Vals er Ágústa Nellý Hafsteins- dóttir, f. 30.9.1934, hús- móðir. Börn Vals og Ág- ústu eru Hrefna Lilja, f. 1.4. 1956, læknaritari í Domus Medica; Haf- steinn, f. 2.12. 1957, starfsmaður hjá Sig- mundsson ehf; Hörður, f. 27.7. 1966, deildarstjóri hjá Visa Island. Foreldrar Vals voru Júlíus Magnússon, f. 12.7.1883, d. 4.1. 1931, verkamaður í Reykjavík, og Jónína Margrét Jónsdóttir, f. 17.1. 1891, d. 6.9. 1970, hús- móðir. Valur dvelur í Kaupmanna- höfn á afmælisdaginn. Þorvaldur Þorvaldsson SJÓMAÐUR í BORGARNESI Þorvaldur fæddist í Vestmannaeyjum, ólst þar upp og lauk þar grunnskólaprófi. Þorvaldur stundaði sjómennsku frá Vestmanneyjum frá því á unglingsárunum. Hann vann síðar við rörasteypu hjá Loftorku í Borgarnesi og stundaði eftir það ýmis almenn störf vfðs vegar um landið. Hann hefur nú um alllangt skeið verið sjómaður á togaranum Vestmannaey frá Vestmannaeyjum en er búsettur í Borgarnesi. Þorvaldur var félagi í Kiwanisklúbbnum Smyrli í nokkur ár. FJÖLSKYLDA Eiginkona Þorvalds er Sigrfður Björk Þórisdóttir, f. 12.7. 1951, húsmóðir. Börn Þorvalds og Sigríðar Bjarkar eru AnnaHeiðrúnÞorvalds- dóttir, f. 28.9.1980, leik- skólaleiðbeinandi, búsett í Borgamesi; Þorvaldur Ægir Þor- valdsson, f. 24.9. 1985, nemi í bakaraiðn í Vest- mannaeyjum. Stjúpbörn Þor- valds: Svanhildur M. Ólafsdóttir, f. 9.5. 1971, lyfjatæknir og leik- skólakennari, búsett í Borgarnesi; Þórir V. Indriðason, f. 8.3. 1974, húsasmiður, búsettur í Borgarnesi. Foreldrar Þorvalds voru Þorvaldur Sveinsson, f. 13.10. 1913, d. 23.7. 1947, sjómaður, og Sigríður Einarsdóttir, f. 5.2. 1922, d. 9.6.1989, húsmóðir. Stjúpfaðir Þorvalds var Sigurður Jóhannesson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.