Peningamál - 01.08.2010, Qupperneq 13
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
0
•
3
13
tækja 3% verðbólgu á næstu tólf mánuðum ef miðað er við mið-
gildi eða um einni prósentu minni verðbólgu en í síðustu könnun
í mars. Í könnun Capacent Gallup á verðbólguvæntingum heimila
frá því í júní reyndust þær óbreyttar frá síðustu könnun í apríl eða
8% ef miðað er við miðgildi. Hins vegar höfðu væntingar heim-
ila um tólf mánaða verðbólgu eftir tvö ár hækkað og námu 7% í
júní samanborið við 6,5% í síðustu könnun. Verðbólguvæntingar
heimila eru því enn afar miklar þrátt fyrir að verðbólguhorfur hafi
batnað. Þær virðast þó hafa tilhneigingu til að endurspegla liðna
verðbólgu í meira mæli en aðrir mælikvarðar á verðbólguvænt-
ingum.
• Horfur eru á að verðbólgan hjaðni heldur hraðar á þessu ári
en gert var ráð fyrir í síðustu Peningamálum. Kemur þar m.a.
til töluvert sterkara gengi og minni verðbólguvæntingar. Einnig
höfðu sumarútsölur meiri áhrif til lækkunar verðlags en á undan-
förnum árum og óvíst hvort áhrifin gangi að fullu til baka nú
þegar nýjar vörur eru keyptar inn á hagstæðara gengi. Spáð er
að verðbólga verði við verðbólgumarkmið Seðlabankans á öðrum
fjórðungi næsta árs en að verðbólga án áhrifa breytinga óbeinna
skatta verði við markmið í lok þessa árs sem er heldur fyrr en spáð
var í maí. Meðalverðbólga á árinu 2010 verður 5,7% ef þessi spá
gengur eftir, samanborið við 12% meðalverðbólgu á síðasta ári.
Þetta er um hálfri prósentu minni verðbólga en gert var ráð fyrir í
maí.
• Nokkur óvissa er um skammtímaverðbólguhorfur, ekki síst vegna
mikilla hækkana undanfarið á heimsmarkaðsverði olíu- og hrá-
vöru, einkum verði á hveiti. Útlit er fyrir að matvælaverð hækki
talsvert á komandi mánuðum. Töluverð óvissa er um hversu mikil
verðlagsáhrifin verða og hversu hratt þau koma fram. Á móti
kemur að gengi krónunnar gæti hækkað meira en gert er ráð fyrir
í spánni.
Nýjast 10. ágúst
Verðbólguvæntingar almennings
Verðbólguvæntingar fyrirtækja
Verðbólguálag1
Verðbólguálag2
Verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands
1. Reiknað út frá RIKB 13 0517 og HFF 150914 2. Reiknað út frá
RIKB 25 0612 og HFF 150434.
Heimildir: Capacent Gallup, Seðlabanki Íslands.
Mynd 22
Verðbólguvæntingar
Verðbólguálag á skuldabréfamarkaði í lok hvers mánaðar
og verðbólguvæntingar til eins árs samkvæmt könnunum
%
0
2
4
6
8
10
12
14
16
2010200920082007200620052004