Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Side 8

Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Side 8
Hafin er bygging norður - turnsins við Smáralind, beint út af A-inngangi verslunarmið- stöðvarinnar, en uppsteypu á að vera lokið sumarið 2008 og öllum framkvæmdum utanhúss í októbermánuði s.á. Stefnt er að því að taka húsið í notkun vorið 2009 en húsið verður 14 hæða verslunar- og skrifstofu- húsnæði ásamt kjallara, samtals um 18.000 fermetrar. Samhliða turninum verður byggt 750 bíla- stæða hús. Tveggja hæða tengibygging verður til verslunarmiðstöðina Smáralind. Glerlyftuhús mun tengja skrifstofuhúsnæðið á 3. hæð Smáralindar við bílastæða- húsið. Verið er að undirbúa bygg- ingu stórhýsins norðan Smára- lindar. Kópavogsdalurinn er orðinn öflugasta verslunarsvæði landsins en gert er ráð fyrir allt að 8 milljónum gestum á þessu ári, þar af 70% þess fjölda í Smára- lindina. Frekari uppbygging er fyrir- huguð við Dalveginn, m.a. fyrir bílaumboð, verið er að byggja verslunarhúsnæði neðan Núpa- lindar í Lindahverfi og í framtíð- inni mun m.a. rísa 34 hæða hús í Gustssvæðinu sem verður um 140 metra hátt, náist sátt um deiliskipulag á því svæði, en um það hefur staðið allmikill styr. Það verður langhæsta hús lands- ins. Til þess að hægt verði að reisa mörg háhýsi á Gustssvæð- inu verður að breyta umferðar- mannvirkjum í næsta nágrenni. Hæsta hús landsins, 20 hæða hús við Smáratorg 3 er komið í fulla hæð en það er nær 78 metr- ar að hæð, eða 4 metrum hærra en Hallgrímskirkja, og grunnflötur hverrar hæðar um 780 fermetrar og heildarflatamál um 14.000 fer- metrar. Flatamál tveggja neðstu hæðanna, sem eru verslunarhæð- ir, er um 6.000 fermetrar og auk bílageymslu er heildarflatamálið nær 20.000 fermetrar. Stefnt er að því að leigutakar komist í húsið til að innrétta í þessum mánuði en nefna má að á neðstu hæð verður Kaupþing með stórt útibú, þar rís leikfangaverslunin ToysaRus og verslun með húsmuni sem heitir Pier. Endurskoðunarskrifstofan Deloitte leigir sex hæðir í húsinu, Kaupþing eina hæð, Perla Invest- ment verður með tvær hæðir, fjárfestingafélagið Lagerinn með eina hæð en það er í eigu Jákups Jacobsen sem á húsið, og á 15. hæð verður líkamsræktarstöðin World Class. Nokkuð rými er enn óleigt. Á tveimur efstu hæðunum verður veitingarekstur, en efsta hæðin verður inndregin og hægt að setja þar úti við á góðum degi. Þar verður veitingastaður sem hefur verið kallaður Turninn. Verið er að reisa bílastæðabrú yfir Fífuhvammsveg, en hún er framhald bílastæðahúsins norð- an Smáralindar og tengist nýja 20 hæða húsinu. Með því fjölgar bílastæðum bæði við Smáralind og Smáratorg um 170 og hægt verður að keyra upp að henni af Reykjanesbrautinni þegar ekið er í suður og þannig léttist nokkuð af umferðinni um Fífuhvamms- veginn. 8 Kópavogsblaðið OKTÓBER 2007 Við bæjarstjórnarkosningarnar 2006 skipaði nýr oddviti forystu- sæti Samfylkingarinnar í Kópa- vogi, Guðríður Arnardóttir. Sam- fylkingin bætti við sig fylgi og hlaut 4 bæjarfulltrúa en skipar minnihluta bæjarstjórnar ásamt Vinstri grænum. Í ört vaxandi bæ eins og Kópavogi hafa skipu- lagsmál verið mjög í sviðsljósinu og því var Guðríður fyrst innt svara við því hvort hún væri sátt við vinnubrögð bæjaryfirvalda í skipulagsmálum. “Ó nei! Það hafa orðið miklar breytingar á fasteignamarkaði undanfarin ár eins og allir vita, nú er hægt að græða talsvert á lóða- og fasteignabraski. Í þeim tilfellum eru það lóðarhafar sem leggja fram skipulagstilög- ur til bæjarstjórnar og eðlilega vilja þeir byggja sem þéttast til að hámarka gróðann. Þá er það bæjaryfirvalda að standa á brems- unni og ganga úr skugga um að slíkar breytingar valdi ekki óásætt- anlegu raski fyrir íbúa bæjarins. Mér finnst Sjálfstæðisflokkur- inn, og þar með talinn framsóknar- maðurinn, hafa brugðist hlutverki sínu og setja þeir allt of oft hags- muni lóðarhafa og verktaka ofar hagsmunum bæjarbúa. Þá skortir alla framtíðarsýn fyrir bæinn og stendur ekki steinn yfir steini í aðalskipulagi bæjarins. Aðalskipulag á að enduspegla byggðarþróun til lengri tíma. Öll- um skipulagstillögum sem ekki rúmast innan aðalskipulags ætti því í rauninni að hafna og einung- is breyta aðalskipulagi í undan- tekningartilfellum, ef það varðar augljósa hagsmuni bæjarbúa. En hér er aðalskipulagi breytt nánast mánaðarlega og engin virðing bor- in fyrir þessu plaggi hér í Kópa- vogi. Gott dæmi þar um er Nónhæð- in. Samkvæmt aðalskipulagi á þar að vera tilbeiðsluhús Baháía og opið svæði. Núverandi lóðarhafar keyptu þessa 2,5 ha á tæpar 170 milljónir króna og bendir allt til að þeir hafi beinlínis gert ráð fyrir að þar mættu þeir byggja háhýsi. Í kjölfar harkalegra mótmæla íbúa á svæðinu var fyrirliggjandi skipu- lagstillögum hafnað og verður fróðlegt að sjá hvert framhaldið verður. Persónulega er ég að kom- ast á þá skoðun að það beri að varðveita þennan reit og byggja hann upp sem útivistarsvæði því það er ekki á okkar ábyrgð ef ein- hverjir verða af milljóna hagnaði, okkar er að hugsa um hagsmuni Kópavogsbúa,” segir Guðríður. - Finnst þér þá uppbyggingin vera of hröð hér í Kópavogi? “Já ég hef gagnrýnt mjög hrað- ann á öllu hérna í Kópavogi. Hér tíðkast t.d. að úthluta lóðum áður en samþykkt skipulag liggur fyr- ir og hefur það komið í bakið á okkur eins og t.d. í Rjúpnahæð- inni, þar sem lóðum var úthlutað í fyrra en ekki hefur verið hægt að afhenda lóðirnar þar sem ekki náðist samkomulag um að flytja möstrin sem þar eru fyrr en núna nýlega. Bæjarsjóður blæðir þar sem lóðarhöfum verður bættur skaðinn. Auðvitað hefur afkoma bæjar- sjóðs verið góð þessi síðustu ár því allar þessar lóðaúthlutanir hafa skilað okkur tekjum í kass- ann. Það er t.d. ekki að ástæðu- lausu sem það er verið að úthluta lóðum núna í Vatnsendhlíðinni þótt þær verði ekki byggingarhæf- ar fyrr en haustið 2008. Það er náttúrulega til að skreyta ársreikn- inga bæjarins fyrir árið 2007. Okk- ur liggur ekki svona mikið á og meira virði að vanda til verksins.” - Ertu þá ekki ánægð með stefnu- breytingu meirihlutans á Kársnesi? “Það er alveg ljóst að Samfylk- ingin hefur verið á móti stór- skipahöfn frá byrjun. Á meðan Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar- flokkur þögðu þunnu hljóði fyrir síðustu kosningar yfir áformum sínum á hafnarsvæðinu vorum við með mjög skýra stefnu hvað það varðar. Við töluðum gegn stórskipahöfn og landfyllingu en vildum sjá þarna smábátahöfn og skipulagt svæði fyrir létta atvinnu- starfsemi og þjónustu í bland við íbúabyggð. Eftir allt sem á undan er gengið á svo að slá höfnina af! Ég spyr mig hvort Ómar Stefáns- son hafi verið með í ráðum þeg- ar Gunnar ákvað að slá höfnina af, ákvörðunin virðist a.m.k. hafa verið tekin á flokksfundi Sjálfstæð- isflokksins, en kannski er Ómar bara genginn formlega í Sjálfstæð- isflokkinn! En þótt vissulega hafi unnist orusta á Kársnesinu er ekki þar með sagt að stríðið sé unnið. Áfangasigur náðist vegna sam- stöðu og styrks íbúa Kársness og þar vil ég sérstaklega hrósa stjórn íbúasamtakanna Betri byggð á Kársnesi.” - Hér er risið mikið háhýsi í við Smáratorgið og fleiri háhýsi munu rísa. Ertu hrifin af þeim? “Já, ég verð nú að viðurkenna að eftir því sem framkvæmdum við 20 hæða turninn í Smáranum miðar áfram verði ég alltaf meira og meira skotin í honum. Það er ekkert að því að byggja hátt ef umhverfið ber slíkar byggingar svo ég tali nú ekki um ef gatna- kerfið þolir aukna umferð sem fylgir auknu byggingarmagni. Mínar efasemdir á Smárasvæðinu eru fyrst og fremst vegna aukins álags á umferðaræðarnar en eins og staðan er núna er gatnakerf- ið sprungið. Það er í rauninni umhverfisvænt að byggja hátt og þétting byggðar markmið í sjálfu sér, því á meðan erum við ekki að ganga á óbyggð svæði umhverf- is höfuðborgarsvæðið. En það er ekki þar með sagt að menn þurfi að vaða áfram eins og jarðýta í blómabeði!” Nýju hverfin vel heppnuð - Hvernig lýst þér á nýju hverfin á Vatnsenda? “Mér lýst vel á þau og finnst þau almennt vel heppnuð. Þessi hverfi eru hönnuð á bæjarskipu- lagi Kópavogs og það vantar ekk- ert upp á það að þar kunna menn að teikna. Ég er t.d .mjög ánægð með göngustíganetið í gegnum nýju hverfin og mikið tillit þar tek- ið til gangandi umferðar og hljóð- manir háar.” - En ef þú mættir ráða, hverju myndirðu breyta í skipulagsmál- unum? “Ég fullyrði að ef Samfylking- in væri í meirihluta í Kópavogi myndi lýðræðið njóta sín. Við myndum sýna mun meiri stað- festu í skipulagsmálum og ekki láta hagsmuni einstakra lóðar- hafa og verktaka stýra ákvörðun- um okkar. Snemma á ákvörðun- arferlinu myndum við kalla eftir afstöðu íbúanna til að ekki komi til meiriháttar árekstra síðar meir þegar framkvæmdir standa fyrir dyrum. Við myndum byrja á að endur- skoða aðalskipulag Kópavogs með það að markmiði að við því yrði sem minnst hróflað. Uppbygging útivistarsvæða og gróðursetning trjáplantna meðfram umferðar- æðum yrði forgangsverkefni með það að markmiði að gera mýkja ásýnd Kópavogs,” segir Guðríður Arnardóttir bæjarfulltrúi og odd- viti Samfylkingarinnar. “Mundum ekki láta hagsmuni einstakra lóðarhafa og verktaka stýra ákvörðunum okkar” Guðríður Arnardóttir bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar. - segir Guðríður Arnardóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar Aðalskipulag á að enduspegla byggðarþró- un til lengri tíma. Öll- um skipulagstillögum sem ekki rúmast innan aðalskipulags ætti því í rauninni að hafna og einungis breyta aðalskipulagi í undan- tekningartilfellum, ef það varðar augljósa hagsmuni bæjarbúa. En hér er aðalskipulagi breytt nánast mánað- arlega og engin virðing borin fyrir þessu plaggi hér í Kópavogi. Hæsta hús landsins risið við Smáratorg Séð frá heilsugæslunni við Smáralind yfir grunn 14 hæða háhýsins sem er að rísa norðan Smáralindar, norðurturnsins, og að 20 hæða byggingu sem er risin við Smáratorg. BORG 6591159 FRÍTT VERÐMAT! TOPP ÞJÓNUSTA 6599606 www.remaxeignir.com ��� �� ������������ ���������� �� ������������� ���������������� HAFNARBRAUT 13-15 200 KÓPAVOGUR SÍMI: 891 9900

x

Kópavogsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.