Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Page 13

Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Page 13
Fulltrúi Samfylkingar í skóla- nefnd Kópavogs var vanhæf- ur til að taka þátt í afgreiðslu á ráðningu aðstoðarskólastjóra Smáraskóla. Að þessu kemst bæj- arlögmaður Kópavogs, en Páll Magnússon bæjarritari kynnti niðurstöðurnar á bæjarstjórnar- fundi 25. september sl. Gunnar Ingi Birgisson, bæjar- stjóri í Kópavogi, óskaði eftir því að bæjarlögmaðurinn úrskurð- aði hvort Þór Ásgeirsson skóla- nefndarmaður hefði verið vanhæf- ur til að sitja fund nefndarinnar þar sem ákvörðun var tekin um hver skyldi ráðinn skólastjóri og aðstoðarskólastjóri Smára- skóla. Einn umsækjanda í starfið, Sveinn Þór Elínbergsson, og Þór eru systkinabörn. Bæjarstjóri seg- ir að með því að óska eftir áliti bæjarlögmanns hefði hann viljað að það kæmi skýrt fram að eitt ætti yfir alla ganga. Þar vísar hann til þess að fyrr á árinu töldu bæj- arfulltrúar Samfylkingarinnar að Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Ómar Stefánsson formaður bæj- arráðs væru vanhæfir til að fjalla um deiliskipulagsmál í hesthúsa- hverfinu þar sem hestamannafé- lagið Gustur hefur verið þar sem eiginkona Gunnars og faðir Ómars ættu þar aðstöðu fyrir hesta. Fram kemur í áliti bæjar- lögmanns að Þór hafi vikið við afgreiðslu umsóknar um stöðu skólastjórans vegna þessa. Frændi Þórs var hins vegar ekki ráðinn í þá stöðu. Þegar kom að afgreiðslu umsókna í stöðu aðstoðarskóla- stjóra þá mælti nýráðinn skóla- stjóri,Sigurlín Sveinbjarnardótt- ir, með því að frændi Þórs yrði ráðinn í stöðuna en samkvæmt lögum á skólanefnd að ráða í þá stöðu að fenginni umsögn skóla- stjóra. Umsóknin var síðan tekin til formlegrar samþykktar á fundi skólanefndar og leit Þór svo á að ekki væri um eiginlega atkvæða- greiðslu að ræða. Þórður Þórðar- son bæjarlögmaður kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að Þór hafi verið vanhæfur til að vera við afgreiðslu málsins og hefði átt að víkja af fundi. Úrskurður bæjarlög- manns mun ekki hafa nein áhrif á ráðninguna enda Þór samfylking- armaður, en Samfylkingin er sem kunnugt er í minnihluta í bæjar- stjórn Kópavogs. Ágreiningur um bæjarmálasamþykkt Þessi bæjarstjórnarfundur var um margt merkilegur. Bæjarfulltrú- ar voru iðnir við að bera á hvern annan ýmsar sakir, og jafnoft komu bæjarfulltrúar í ræðustól til að bera þær sakir af sér. Í umræð- um um nýja bæjarmálasamþykkt Kópavogs sakaði Hafsteinn Karls- son, Samfylkingu, bæjarstjóra um að hafa ekki fylgst með mál- flutningi þeirra en gripi svo inn í umræðuna og sakaði bæjarfull- trúa Samfylkingarinnar um for- ræðishyggju. Endanleg afgreiðsla á nýrri bæjarmálasamþykkt fer fram á næsta bæjarstjórnarfundi 9. október nk., tillaga þess efnis var samþykkt með 7 atkvæðum, en 4 sátu hjá. “Að ósk bæjarfulltrúa Sam- fylkingarinnar í bæjarráði var umræðu um nýja bæjarmálasam- þykkt frestað hvað eftir annað. Hugmyndin var sú að fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna kæmu með tillögur. Það gerðu Vinstri grænir en engar breytingatillögur hafa sést frá Samfylkingunni. Það er þó ljóst að tillögur Vinstri grænna ganga það langt að ekki mun nást samkomu- lag um þær. Það munu heldur ekki nást samkomulag um tillögur odd- vita Samfylkingarinnar sem voru lesnar upp hér á fundinum svona hér og þar. Endanleg afgreiðsla um bæjarmálasamþykkt verður því afgreidd með atkvæðagreiðslu sem er sjálfsagt einstakt í bæjar- stjórn á Íslandi,” sagði Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri. “Það er umhugsunarefni að við skulum vera að fara yfir bæjar- málasamþykktina með það að markmiði að ná sátt um niðurstöð- una, en það skuli vera bara einn aðili sem má koma eins oft og hann vill upp í ræðustól og ræða hana, við hin erum bundin þeirri kvöð að mega aðeins koma upp tvisvar. Ef svo er getur umræð- an varla orðið gagnrýnin eða skil- virk,” sagði Guðríður Arnardóttir. “Ég sit ekki undir því endalaust að bæjarstjóri fullyrði að við vinn- um ekki vinnuna okkar. Það er bæjarstjórinn sem vill enga sátt í þessu máli, það er hann og for- maður bæjarráðs, Ómar Stefáns- son, sem hafa stýrt þessari vinnu og ákveðið hvernig þetta hefur verið unnið. Það hefur hins vegar enginn beðið um frestun, málinu hefur einfaldlega verið frestað í bæjarráði. Við skiluðum inn okk- ar tillögum og við héldum að ræða ætti málið á síðasta bæjar- ráðsfundi, en ákveðið var að fara í umræðuna hér. Það var gert, og þess vegna stöndum við í þessum sporum. Við óskum þess að þetta verði unnið í sátt en bæjarstjóri hefur hafnað því,” sagði Hafsteinn Karlsson. 13KópavogsblaðiðOKTÓBER 2007 Frá fundi bæjarstjórnar Kópavogs 25. september sl. Fjarverandi voru bæjarfulltrúarnir Flosi Eiríksson og Gunnar I. Birgisson en fundinn sátu í þeirra stað Ingibjörg Hinriksdóttir og Ragnheiður Guðmundsdóttir. Gunnar I. Birgisson mætti síðar. Bókasafn Kópavogs býður fjölbreytt lesefni til fróðleiks og skemmtunar. Einnig margmiðlunarefni, tónlist, bíómyndir, fræðsluefni og tölvuleiki. Netaðgangur er fyrir almenning og heitir reitir þar sem fólk getur notað sína eigin fartölvu. Í Djúpinu á 1. hæð er að fi nna allt um tækni og vísindi, íþróttir, landafræði, hannyrðir, föndur og matreiðslu. Þar er móðursafn rússneskra bókmennta á Íslandi. Hér er að fi nna fjölda tímarita um húshald, sport, tækni o.m.fl . Á 2. hæð eru skáldsögur fyrir fullorðna, á íslensku og öðrum tungumálum, ævisögur, sagnfræði, ljóð og leikrit, félagsfræði og trúmál. Hér eru bíómyndirnar á böndum og diskum. Í Heita pottinum ægir saman fornritum og nútíma vísindasögum auk myndasögubóka. Sannkölluð Forn- og dægurmenningardeild. Hér eru menning- artímarit af öllu tagi. Á 3. hæð er Barnadeildin þar sem öll börn eru velkomin, þau geta skoðað og lesið blöð og bækur, spilað og pússlað, hangið og spjallað. Þar er líka allt stafrænt efni fyrir börn. Sögustundir eru í hverri viku allan veturinn. Hér er einnig Listvangur þar sem er að fi nna allt tónlistar- og myndlistarefni og af nógu er að taka. Á 3. hæð er líka Kaffi krókur þar sem hægt er að kíkja í dagblöð og glanstímarit. Í öllum deildum er hægt að láta fara vel um sig og skoða safnefnið í ró og næði. Í Listvangi er einnig hægt að hlusta á tónlist. Á öllum hæðum eru vinnuborð fyrir námsfólk og aðra. Áhersla er lögð á rólegt og afslappað umhverfi . Alltaf er eitthvað um að vera á Bókasafninu. Á 1. hæð er fjölnotasalurinn Kórinn. Þar eru haldnar alls konar samkomur, erindaraðir, bókakynningar, sögustundir, safn- kynningar, sýningar o.fl . Hægt er að fá salinn leigðan til samkomuhalds. Taktu eftir tilkynningum frá Bókasafninu. Útibú Bókasafnsins, Lindasafn, er í Lindaskóla, Núpalind 7. Þar er til útláns margs konar efni fyrir börn og fullorðna. Ekki bara bækur Aðalsafn, Safnahúsi Hamraborg 6a Sími 570 0450 Mán.–fi m. . . . . . . . . . . . . . . . . . . 10-20 Föst.. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 11-17 Lau. og sun. . . . . . . . . . . . . . . . . 13-17 Lindasafn Núpalind 7 Sími 564 0621 1. jún–31. ágúst: Mán.-fi m. . . . . . . . . . . . . . . . . . .12–18 Föst.. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .12–16 Vetrartími Mán.–fi m. . . . . . . . . . . . . . . . . . 14–19 Föst.. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .14–17 Lau.(Lokað 01.05.–30.09.) . . . . .11–14www.bokasafnkopavogs.is Les- og vinnuaðstaða Netaðgangur Yfi r 100.000 titlar, bækur, DVD, tónlist o.fl . Leikaðstaða og reglulegar uppákomur fyrir börnin Skólanefndarmaður vanhæfur við ráðn- ingu aðstoðarskólastjóra Smáraskóla

x

Kópavogsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.