Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Side 16

Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Side 16
16 Kópavogsblaðið OKTÓBER 2007 Í ágústmánuði sl. fengu um 4.200 sex ára börn bæklinginn “Á leið í skólann” en hann hefur að geyma haldgóðar leiðbeining- ar til foreldra þeirra barna sem eru að hefja skólagöngu. Anna Elísabet Ólafsdóttir hverf- islögreglumaður í Kópavogi segir að í bæklingnum sé réttilega bent á að barn sem er að byrja í skóla hafi ekki þroska eða reynslu til að átta sig á því sem skiptir máli að gefa gaum í umferðinni. Það sé því mikilvægt að á fyrstu árum ævinnar sé barnið frætt um rétta hegðun í umferðinni. Með því aukast líkur á að því farnist vel. Fullorðnir eru fyrirmyndirnar og barnið lærir meira af því sem þeir gera en því sem þeir segja. Anna Elísabet bendir á að stysta leiðin í skólann sé ekki all- taf sú öruggasta. Því sé nauðsyn- legt að fylgja barninu í skólann fyrstu dagana og fara vel yfir allar umferðarreglur. Velja beri örugg- ustu leiðina, s.s. um göngustíga, undirgöng og gangbrautir. Víða eru aðstæður þannig að aka verð- ur barninu í skólann, en það skap- ar mikla umferð á skömmum tíma við skólann. Reyna ætti að fylgja barninu fótgangandi sé þess ein- hver kostur. Á leið í og úr skólanum ISLANDZKI DLA POLAKÓW Islandzki dla Polaków Nowocześnie skonstruowany kurs, specjalnie przeznaczony dla Polaków oraz osób władających językiem polskim. Główny nacisk na język mówiony i porozumiewanie się w języku islandzkim. Ćwiczenia praktyczne prowadzone będą przez nauczyciela islandzkiego, natomiast zagadnienia gramatyczne oraz słownictwo wyjaśnione i omówione po polsku. Nauczyciele prowadzący: Jóhanna Gunnarsdóttir i Stanisław J. Bartoszek Zajęcia w poniedziałki i czwartki, od 5 do 29 listopada, godz. 19:30-21:00. Miejsce: ODDI (Uniwersytet Islandzki, Sturlugata, 101 Reykjavík) Íslenska fyrir Pólverja (og pólskumælandi) Íslenskt talmál kennt með nýstárlegum og skemmtilegum aðferðum. Aðal áhersla á að tjá sig á íslensku. Talæfingar verða gerðar á íslensku af móðurmálskennara en pól- skur kennari útskýrir málfræðiatriði á móðurmáli nemenda. Kennarar: Stanislaw Bartoszek og Jóhanna Gunnarsdóttir Kennt mánudaga og fimmtudaga 5 - 29. nóv. kl. 19:30-21:00 ODDA, Háskóla Íslands. Þær vinkonurnar Íris Lára Lorange og Kristín Björnsdóttir í 2. bekk í Kópavogsskóla fylgdu umferðarreglunum og gengu yfir Digranesveg- inn á gangbraut eftir að umferðin hafði stoppað fyrir þær. Þær segj- ast hafa lært mikið þegar Umferðarskólinn kom í heimsókn til þeirra. Ný netsíða Menntaskólans í Kópavogi, www.mk.is, var formlega tekin í notkun 24. september sl. í matsal skólans að viðstöddum kennurum og nemendum. Hönnuður netsíðunnar er Stefán Birgir Stefánsson sem er fyrrverandi nemandi í MK. Umsjónarmaður net- síðunnar er hins vegar Hreinn Freyr Hálfdánarson íslenskukennari við MK. Á myndinni eru þeir Stefán Birgir og Hreinn Freyr. Ný heimasíða MK Inga Gísladóttir er fædd á bæn- um Galtavík undir Akrafjalli fyr- ir 84 árum en flutti til Kópavogs árið 1959 og bjó fyrst á Kársnes- brautinni. Árið 1989 flutti Inga í Vogatungu og segir að það sé alveg frábært að búa þar fyrir eldri borgara, enda sé gott að verða gamall í Kópavogi, líklega sama hvar búið er í bænum. “Ég var með skúringar í Kárs- nesskóla meðan ég var ekki orðin of gömul til að sinna því. Ég reyni að koma hingað í félagsstarfið í Gjábakka við Fannborg eins oft og ég get, helst daglega. Það er frábært starfsfólk hér á Gjábakka, og svo er alveg nauðsynlegt að hitta fólk hér og spjalla við það, og drekka kaffi í leiðinni og borða meðlætið,” segir Inga Gísladóttir. “Gott að verða gamall í Kópavogi” Inga Gísladóttir, stödd á skemmtun í Gjábakka. - segir Inga Gísladóttir.

x

Kópavogsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.