Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Page 18

Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Page 18
18 Kópavogsblaðið OKTÓBER 2007 K ó p a v o g u r, S m i ð j u v e g i 6 8 - 7 0, s í m i 5 4 4 5 0 0 0 N j a r ð v í k , F it jabraut 12, sími 421 1399 - S e l f o s s, Austurvegur 58 , s ími 482 2722 Komdu og skiptu um dekk fyrir 20. október og við gefum þér 10% afslátt af umfelgun og geymum fyrir þig sumardekkin í allan vetur endurgjaldslaust. Bjóðum einnig mikið úrval af fólksbíla- og jeppadekkjum. ������������� af umfelgun og frí geymsla á sumardekkjunum. � � �� � �� � ��� �� � �� � � ��� � � � � � Ókeypis heimsendingaþjónusta á blómum og gjafavöru á Stór-Reykjavíkursvæðið ALLAR helgar og eftir kl. 19.00 virka daga. Opið frá 11-21 nema sunnudaga til 19.00 Blómaþjónusta eftir lokun frá 08-23 í Gsm 866 1510. Íslenskir aðalverktakar: Íslenskir aðalverktakar hlutu viðurkenningu Umhverfisráðs Kópavogs árið 2007 fyrir frágang húss og lóðar við Ásakór 2 - 4. Byggingarframkvæmdir hófust í september 2005 og lauk þeim í mars 2007. Ásakór 2 - 4 er átján íbúða lyftuhús á þremur hæðum auk bílageymslu. Íbúðirnar eru þriggja og fjögurra herbergja, all- ar með sérinngangi. Góður frágangur og fagmennska einkenna Ásakór 2 - 4. Fjölbýlishús- ið er falleg bygging sem nýtir vel þá möguleika sem lóðinni fylgir en húsið stendur í hallandi landi og bílageymsla neðanjarðar leysir hluta hæðarmunar á lóðinni. Frá jarðhæð hússins er hæðarmunur leystur með gras- og gróðurbrekk- um og þannig mótast skjólgóður hvammur sem snýr vel við sól. Á jöðrum lóðarinnar og aðkomu- svæði er markvisst unnið með gróður til skjólmyndunar og skap- að hlýlegt yfirbragð. Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar veitti Íslenskum aðalverktökum einnig viðurkenningu í ár fyrir snyrtilegan frágang lóða og góðan heildarsvip við Þrastarhöfða í Mos- fellsbæ. Á síðasta ári fengu Íslensk- ir aðalverktakar einnig tvenn verð- laun fyrir hús við Perlukór í Kópa- vogi og Herjólfsgötu í Hafnarfirði. Kópavogsblaðið óskar Íslensk- um aðalverktökum til hamingju með þær viðurkenningar sem þeim hefur hlotnast og bera vott um vönduð vinnubrögð og gæði. Íslenskir aðalverktakar fengu viðurkenningu umhverfisráðs Kópa- vogs fyrir frágang húss og lóðar við Ásakór 2 - 4 sem er hannað af ASK arkitektum en Landslag ehf. sá um lóðahönnun. ÍAV fá viðurkenningu Umhverfisráðs Kópavogs Eitt af áhersluverkefnum Kópavogsdeildar Rauða kross- ins er að vinna gegn einsemd og félagslegri einangrun. Deildin sinnir þessu með öflugri heim- sóknaþjónustu og rekstri Dval- ar, athvarfs fyrir geðfatlaða. Þjónustan er sífellt að eflast og nú eru 65-70 sjálfboðaliðar í reglubundnum verkefnum heimsóknavina. Gestgjafarnir eru karlar og konur á ýmsum aldri. Heimsóknirnar fara fram á einkaheimilum, sambýlum aldraðra, sambýlum og athvarfi geðfatlaðra, sambýli heilabil- aðra, skammtímavistun fyrir langveik börn og í Sunnuhlíð. Þess má geta að heimsóknir til heimilismanna í Sunnuhlíð hafa staðið yfir frá árinu 1984. All- taf er þörf fyrir sjálfboðaliða og alltaf heitt á könnunni á skrif- stofunni í Hamraborg. Einnig er hægt að fylgjast með starfinu á netsíðunni www.redcross.is/ kopavogur. “Öll höfum við þörf fyrir félags- skap, nærveru og hlýju, við erum bara misdugleg að bera okkur eftir björginni. Oftast eru það aðstæður og upplag sem valda því að fólk upplifir sig einmana og félagslega einangrað. Aukið framboð á afþreyingu, erill, hraði og tímaskortur eru líka ástæður þess að fólk upplifir einsemd. Oft og tíðum verður þetta að víta- hring sem erfitt er að rjúfa en þar geta sjálfboðaliðar Rauða kross- ins komið til aðstoðar með reglu- bundnum heimsóknum sínum,” segir Linda Ósk Sigurðardóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri Kópavogsdeildar, í samtali við Kópavogsblaðið. Kópavogsdeild- in er ein sú öflugasta á landinu, og heldur upp á 50 ára afmæli sitt árið 2008 “Yfirleitt er um að ræða klukku- stundar heimsókn hverju sinni og þá gjarnan einu sinni í viku. Þó eru líka dæmi um heimsóknir á tveggja vikna fresti. Fjölbreyti- leiki og tíðni heimsókna fer eft- ir óskum og þörfum gestgjafa. Samveran er gjarnan notuð til að spjalla saman, spila, lesa, syngja, tefla, föndra, fara saman út að keyra, í bíó, á kaffihús, í göngu- túra eða hvað annað sem tveir góðir vinir koma sér saman um að gera. Hvernig heimsóknavinur og gestgjafi ákveða að eyða tím- anum saman er alfarið í þeirra höndum. Linda segir að sífellt sé verið að efla og þróa þjónustuna og það nýjasta eru heimsóknir sjálfboðaliða með hunda. Í Kópa- vogi eru níu hundar að störfum við mikinn fögnuð gestgjafa sem njóta samvista við þá.” Til viðbótar við opinber- ar stofnanir Heimsóknaþjónusta Rauða krossins kemur ekki í stað þeirrar þjónustu sem opinberar stofnan- ir og aðilar eiga að sinna heldur er litið á hana sem kærkomna við- bót við það sem í boði er. Hver heimsókn er vel undirbúin og hitt- ir fulltrúi deildarinnar bæði sjálf- boðaliða og gestgjafa fyrir fyrstu heimsókn. “Þótt meirihluti þeirra sem þiggja heimsóknir séu aldrað- ir þá erum við sífellt að fá fleiri yngri gestgjafa, ungmenni og fólk á miðjum aldri sem hafa lent í erfiðleikum, t.d. vegna veikinda. Opin umræða um einsemd og félagslega einangrun og kynning á þjónustunni er að skila sér til okkar og því fögnum við. Innflytj- endur og fólk með geðraskanir eru í hópi þeirra sem við viljum gjarnan þjónusta betur. Við erum aðallega að fá ábendingar frá fjöl- skyldu, vinum, starfsfólki félags- þjónustu og heimahjúkrunar. Það eru dæmi um að fólk hringi sjálft og óski eftir heimsóknavini, það er samt eitthvað sem við viljum gjarnan sjá meira af, að fólk sé óhrætt við að leita til okkar og biðja um aðstoð. Það er gott að gefa af sér því maður fær það svo margfalt til baka. Gestgjafarnir hafa svo mikið að gefa og það er það skemmtilega og góða við þetta verkefni,” segir Linda Ósk. Sjálfboðaliðar Rauða krossins sækja námskeið áður en farið er af stað í heimsóknir. Um er að ræða þriggja klukkustunda löng námskeið sem haldin eru reglu- lega í húsnæði deildarinnar og standa öllum áhugasömum til boða þeim að kostnaðarlausu. Á þessum námskeiðum er far- ið yfir hlutverk, starfsreglur og skuldbindingar heimsóknavina og mikilvægi þess að virða þagn- arskyldu varðandi persónuleg málefni gestgjafa enda er hún forsenda trausts og trúnaðar. Sjálfboðaliðum Kópavogsdeild- ar stendur þar að auki til boða ýmis fræðsla og þjálfun og haldin er reglulega samvera heimsókna- vina til að styrkja þá í starfi. Sjálfboðaliðar Rauða krossins gegn einsemd og einangrun Nýir stjórnendur Kópavogsdeildar Rauða kross Íslands. T.v. er Dögg Guðmundsdóttir verkefnisstjóri sjálfboðamiðstöðvar. Dögg er mann- fræðingur frá Háskóla Íslands með framhaldsmenntun í þróunarmál- um og alþjóðasamskiptum frá Háskólanum í Álaborg í Danmörku. Á liðnum vetri var hún í starfsþjálfun í Úganda á vegum Þróunarsam- vinnustofnunar Íslands og gegndi áður verkefnavinnu fyrir mannrétt- indasamtökin Human Rights without Frontiers í Belgíu. Linda Ósk Sigurðardóttir er framkvæmdastjóri og hefur starfað fyrir Raða krossinn í ein 9 ár og hef mikla og góða reynslu af störfum fyrir Rauða krossinn. Byrjaði sem sjálfboðaliði og þá sem formaður Grund- arfjarðardeildar Rauða krossins en hefur gegnt stöðu svæðisfulltrúa Rauða kross deilda á höfuðborgarsvæðinu og Vesturlandi og verið verkefnisstjóri heimsóknaþjónustu á landsskrifstofu þar til hún hóf störf í byrjun ágústmánaðar hjá Kópavogsdeild ásamt Dögg. NETSAGA.IS

x

Kópavogsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.