Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Side 20
20 Kópavogsblaðið OKTÓBER 2007
Ferlinefnd Kópavogs og Kópavogsbær
hafa ákveðið að veita hönnuði, fyrirtæki
eða þjónustuaðila í Kópavogi viðurkenningu fyrir
gott aðgengi í tilefni af Alþjóðardegi
fatlaðra, 3. desember nk.
Viðurkenningin verður veitt fyrir útivistarsvæði,
nýtt húsnæði, sem er aðgengilegt hreyfihömluðum
eða fyrir endurbætur á eldra húsnæði.
Vinsamlegast komið ábendingum um þá aðila
sem koma til greina við úthlutun viðurkenningar
á framfæri við ferlinefnd Kópavogs eigi síðar en
20. október 2007.
f.h. ferlinefndar Kópavogs
Helga Skúladóttir, netfang: helga.skula@isl.is
Guðlaug Ósk Gísladóttir, netfang:
gudlaugo@kopavogur.is
Viðurkenning
fyrir gott
aðgengi
K-lykill Kiwanis er lykill að lífi
Sparisjóðirnir á Íslandi, Toy-
ota, Olís og Bónus verða bak-
hjarlar landssöfnunar Kiwanis-
hreyfingarinnar til stuðnings
geðsjúkum og aðstandendum
þeirra sem fram fer dagana 4.-7.
október. Kjörorð söfnunarinnar
er Lykill að lífi og er hún hald-
in í tengslum við alþjóðlega geð-
heilbrigðisdaginn 10. október
nk. Fyrsti K-lykillinn var afhent-
ur Guðlaugi Þór Þórðarsyni heil-
brigðisráðherra.
Kiwanis-hreyfingin á Íslandi
hefur allt frá árinu 1974 staðið
fyrir landssöfnun þriðja hvert ár
með sölu á K-lyklinum. Ágóði af
landssöfnununum hefur runnið til
fjölda verkefna til hjálpar geðsjúk-
um. Tilgangurinn er að vekja þjóð-
ina til umhugsunar um málefni
geðsjúkra og safna fé til þess að
styðja við endurhæfingu þeirra.
Að þessu sinni er sjónum sérstak-
lega beint að ungu fólki sem glím-
ir við geðræn vandamál.
Ágóði landssöfnunarinnar að
þessu sinni rennur til þriggja mál-
efna; Geðhjálpar, BUGL og Forma.
Gengið verður í hús um land allt,
sölumenn verða við verslanamið-
stöðvar og aðra fjölfarna staði,
auk þess sem leitað er til fyrir-
tækja um stuðning. K-lykillinn
verður ennfremur til sölu í öllum
verslunum Bónuss og á þjónustu-
stöðvum Olís og hjá Toyota. Þá
verður hægt að leggja inn á reikn-
ing söfnunarinnar; 1100-26-55000,
kennitala 640173-0179. Sparisjóð-
irnir á Íslandi eru fjárvörsluaðili
söfnunarinnar og hægt verður að
leggja málefninu lið með því að
fara inn á heimabanka sparisjóð-
anna og millifæra.
Þeir Óskar Guðnason forseti
Kiwanisklúbbsins Eldeyjar í Kópa-
vogi og Magnús Svavar Magnús-
son kjörforseti segja að við síðstu
söfnun hafi Eleyjarfélagar selt
1.790 lykla sem hafi verið 10%
af landssölunni. Stefnt er nú að
2.000 lykla sölu.
Geðhjálp mun við ráðstöfun
síns hluta söfnunarfjárins beina
sjónum sérstaklega að ungu fólki
á aldrinum 12-25 ára sem á við
geðraskanir að etja. Ætlunin er
að efla, styrkja og samþætta þau
úrræði sem víða eru í boði en
eru ekki sem skyldi sýnileg eða
aðgengileg, jafnframt því sem leit-
ast verður við að finna úrræði þar
sem á skortir. Meðal annars verð-
ur komið á fót athvörfum fyrir þá
einstaklinga sem einangrast hafa
félagslega í samfélaginu vegna geð-
raskana og haldið verður áfram
að byggja upp sjálfshjálparhópa
um allt land.
BUGL hyggst nýta sinn hluta
söfnunarfjárins til verkefna sem
\gera legudeildarsjúklingum kleift
að fá þjálfun og afþreyingu utan
deildarinnar. M.a. á að endurnýja
útileikaðstöðu og auðvelda skjól-
stæðingum BUGL með ýmsu móti
að fá holla hreyfingu og stunda
uppbyggilega tómstundaiðju.
Forma mun nýta styrkinn til
að efla ráðgjafastarfsemi sína um
land allt svo átröskunarsjúkling-
ar eigi auðveldara með að leita
sér hjálpar. Einnig verður komið
á fót skipulegri forvarnafræðslu
í 8. bekk grunnskóla og 1. bekk
framhaldsskóla til að sporna við
fjölgun átröskunarsjúklinga.
KÓPAVOGSBLAÐIÐ hvetur alla
Kópavogsbúa og forsvarsmenn
fyrirtækja í Kópavogi til að taka
vel á móti þeim sem banka upp á
með K-lykilinn.
Óskar Guðjónsson, forseti Kiwanisklúbbsins Eleyjar í Kópavogi og
Magnús Svavar Magnússon kjörforseti klúbbsins með K-lykla og aug-
lýsingaspjald vegna landssöfnunarinnar sem hófst í gær, 4. október.
NETSAGA.IS