Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Page 21

Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Page 21
21KópavogsblaðiðOKTÓBER 2007 Tillaga Samfylkingarinnar um ítarlega úttekt á heimagreiðslu í Kópavogi var felld í atkvæða- greiðslu í Bæjarstjórn Kópavogs eftir snarpar umræður með 6 atkvæðum gegn 4, einn sat hjá. Efnislega var tillagan eftirfar - andi: “Bæjarfulltrúar Samfylkingar- innar óska eftir ítarlegri úttekt á heimagreiðslum í Kópavogi. • Hversu margar konur óska eft- ir að vera heima með börn sín? • Hversu margir karlar óska eft- ir að vera heima með börn sín? • Hver er meðallaun þessara einstaklinga sem kjósa að vera heima með barninu? • Hver er meðallaun útivinn- andi maka? • Hversu margir borga ættingja fyrir gæslu barns og hver eru tengslin við þann ættingja, t.d. afi eða amma? • Hversu margir einstaklingar þiggja heimagreiðslur og jafn- framt örorkubætur? • Hversu margir einstaklingar þiggja heimagreiðslur og jafn- framt atvinnuleysisbætur? • Hversu margir einstaklingar af erlendum uppruna þiggja heima- greiðslur og hvert er upprunaland viðkomandi?” Það er ljóst, segir í tillögu Sam- fylkingarinnar, að nokkurt verk mun reynast að taka þessar upp- lýsingar saman en ítarleg saman- tekt er mjög brýn svo hægt sé að draga ályktun um kosti og galla heimagreiðslna sem fyrst. Hversu margir óska að vera heima og þiggja heimagreiðslur? Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar á bæjarstjórnarfundinum 25. september sl., þau Ingibjörg Hinriksdóttir, Jón Júlíusson, Hafsteinn Karlsson og Guðríður Arnardóttir. Háhýsið í Hörðakór 1 í Kópa- vogi stendur nálægt hæst allra íbúðahúsa í þéttbýli á Íslandi og þar sem húsið er 12 hæðir búa íbúar á efstu hæðinni hæst allra íbúa í byggð á Íslandi, eða 162,85 metra yfir sjó. Þau hús sem næst komast Hörða- kórnum eru húsin við Vesturgil á Akureyri sem eru í 99,6 metra hæð yfir sjó og í Egilsseli í Selskógi á Egilsstöðum sem standa í 85,2 metra hæð. Nokkrir íbúar í dreifbýli búa hærra yfir sjávarmáli, s.s. á Möðru- dal á Austurlandi og hugsanlega starfsmenn virkjana á hálendinu, s.s. við Blönduvirkjun fyrir norðan. Kópavogur státar af fleiru sem er stærst eða hæst, s.s. af Sundlaug Kópavogs við Borgarholtsbraut sem er stærsta sundlaug landsins, 50 metra löng og 25 metra breið og því 1.250 fermetrar. Sundlaugin var tekin í notkun 1. febrúar 1991 en fram að því var sundlaugin í Laug- arskarði við Hveragerði sú stærsta á landinu. Hörðakór 1. Byggingin fékk nýlega viðurkenningu fyrir hönnun þeg- ar umverfisviðurkenningar Kópavogs voru afhentar. Íbúar Hörðakórs 1 búa hæst allra á landinu AUGL†SINGASÍMI: 511 1188 - 895 8298

x

Kópavogsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.