Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 23

Kópavogsblaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 23
23KópavogsblaðiðOKTÓBER 2007 Fjórir leikmenn HK í N1-deild- inni í handbolta eru að æfa með A-landsliðinu í handbolta. Þetta eru þær Rut Jónsdóttir, Arna Sif Pálsdóttir, Auður W. Jónsdóttir og Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir. Sl. laugardag léku þær í N1- deildinni gegn Fram, en töpuðu 26-16. Áður hafa þær tapað fyrir Gróttu 28-17, gegn Val 27-20 en unnu FH 28-23. GETRAUNANÚMER Brei›abliks ER 200 GETRAUNANÚMER HK ER 203 Einar Árni Jóhannsson tók í sumar við starfi þjálfara meist- araflokks Breiðabliks í körfu- bolta, en liðið leikur í 1. deild. Einar Árni þjálfari á síðasta leik- tímabili lið Njarðvíkinga í úrvals- deildinni. Einar Árni byrjaði að þjálfa yngri flokka Njarðvíkinga (UMFN) 1993 og þjálfaði alla ald- urshópa drengja og stúlkna á árunum 1993-2007 og varð síðan yfirþjálfari yngri flokka UMFN 2003-2007. Þá varð hann þjálf- ari meistaraflokks kvenna UMFN 2001 til 2003 og þjálfari meist- araflokks karla UMFN 2004-2007 en áður hafði hann verið aðstoð- arþjálfari meistaraflokks karla UMFN 1997-2000 og 2004. Hann er landsliðsþjálfari yngri lands- liða KKÍ. Árangurinn er ekki síður glæsi- legur (kemur hér að neðan) og ljóst að Blikar hafa hreppt góðan þjálfara sem ætlar liðinu ekkert annað en sæti í úrvalsdeildinni á leiktímabilinu 2008/2009. • Ellefu sinnum Íslandsmeistari með yngri flokka UMFN • Sex sinnum orðið bikarmeist- ari með yngri flokka UMFN • Tvisvar unnið Scania Cup (óopinbert Norðurlandamót félagsliða) með yngri flokk UMFN • Gerði U-18 ára landslið karla að Norðurlandameisturum 2004 • Varð í 14. sæti í A deild með U-16 ára landslið karla 2005 • Meistari meistaranna 2004, 2005 og 2006 með UMFN í meist- araflokki karla • Powerade bikarmeistari 2005 með UMFN í meistaraflokki karla • Deildarmeistari 2007 með UMFN í meistaraflokki karla • Bikarmeistari 2005 með UMFN í meistaraflokki karla • Íslandsmeistari 2006 með UMFN í meistaraflokki karla. Einar Árni segir að það sé viss ögrun að taka við liði í 1. deild og koma þeim í deild með þeim bestu. Breiðablik hafi verið í 1. deildinni í 4 ár, og hann hafi sjálf- ur verið spenntastur fyrir að taka að sér svona verkefni þar sem byggja þyrfti að mestu leiti upp nýtt lið. Þetta sé töluvert frábrugð- ið því að vera með lið í toppbarátt- unni í úrvalsdeild og öllum öðrum vígstöðvum og vera með þéttan kjarna leikmanna. Einar Árni segir það hollt fyrir alla að breyta til en hann var búinn að vera allan sinn þjálfaraferil í Njarðvík. “Það er búinn að vera nokkur þéttur kjarni hér til staðar undan- farin ár en Þorsteinn Gunnlaugs- son er farinn norður á Akureyri að reyna sig í úrvalsdeildinni. Það var ákveðið strax í upphafi að taka Bandaríkjamann inn í liðið. Það er Tony Cornett, 23 ára sem er mjög vinnusamur og á bara eftir að eflast og um leið styrkja hópinn. Það eru 5 nýir leikmenn komnir til Breiðabliks. Loftur Þór Einarsson er aftur kominn heim eftir 2 ár á Egilsstöðum, og svo koma þrír strákar að sunnan, þ.e. Halldór Halldórsson frá Keflavík og Rúnar Ingi Erlingsson og Krist- ján Rúnar Sigurðsson koma frá Njarðvík. Þetta eru allt strákar sem efla breiddina og gera góðan hóp betri og stærri en hópurinn telur um 20 leikmenn.” Markmiðið að fara upp í úrvalsdeild - Hvernig líst þér á 1. deildina í vetur? “Þetta er töluvert sterkari deild en í fyrra þar sem flest liðin hafa verið að styrkja sig. Hún er enn- fremur stærri en í fyrra voru í henni 8 lið en verða 10 í vetur. Ísfirðingar verða með 5 erlenda leikmenn og verða líklega í topp- baráttunni og Valsmenn eru að leggja mikla áherslu á sitt lið í nýju íþróttahúsi, Vodafonehöll- inni, Fsu hefur styrkt sig töluvert svo það verða mörg sterk lið í toppbaráttunni þar sem við ætl- um okkur líka að vera. Efsta liðið í 1. deild fer beint upp en liðin í 2. til 5. sæti fara í umspil. Fyrsti leikurinn í deildinni er 13. október suður í Sandgerði gegn heimamönnum í Reyni og síðan er fyrsti heimaleikurinn gegn Hauk- um í Smáranum 19. október. Við þurfum að sýna fólki í Kópavogi að við stefnum á árangur og ætl- um að hafa þetta skemmtilegt. Þá kemur vonandi fjöldi áhorfenda á pallana í vetur til að styðja okk- ur og klára verkefnið sem er að fara upp í úrvalsdeild. Það hef- ur frábær stuðningsmannahópur fylgt knattspyrnuliði Breiðabliks í sumar og fylgst með skemmtileg- um og árangursríkum leik þeirra. Vonandi verður það sama upp á teningunum í vetur hjá okkur í körfuboltanum, að okkur takist að virkja þennan skemmtilega stuðn- ingsmannahóp í vetur.” Minni munur á úrvals- deild og 1. deild - Er áhugi á körfubolta að eflast á Íslandi um leið og fleiri góð lið sjá dagsins ljós? “1. deildin er orðinn sterkari en nokkru sinni fyrr, minni munur á henni og úrvalsdeildinni en áður. Um leið hefur úrvalsdeildin ver- ið að eflast. Síðustu ár hafa 6 lið verið kandidatar til Íslandsmeist- aratitils svo breiddin hefur aukist töluvert. Það eru ekki mörg ár síð- an KR var eina liðið utan Suður- nesjaliðanna sem gat gert tilkall til Íslandsmeistaratitils. Það er hins vegar mjög gott fyrir körfuna, ekki síst þann reykvíska, að KR skyldi verða Íslandsmeistari í vetur en titillinn skyldi ekki enn einn gang- inn á Suðurnesin. Stemmningin á úrslitaleiknum í KR-heimilinu í vor var alveg ógleymanleg þeim sem þar voru og alveg gríðarleg auglýs- ingin fyrir körfuboltann. Það eyk- ur áhugann og breiddina og fjölg- ar áhorfendum. Karfan er klárlega á uppleið og við og við eignumst við efnilega atvinnumenn í grein- inni. Yngi landsliðin hafa verið að ná fínum árangri og A-lands- liðið hefur verið að vinna nokkra glæsta sigra í ágúst- og septem- bermánuðum,” segir Einar Árni Jóhannsson körfuboltaþjálfari. “Viss ögrun að taka við Blikum” Leikmenn Breiðabliks á leiktíðinni 2007/2008 ásamt þjálfara, Einari Árna Jóhannssyni. Lið HK-Víkings í 1. deild kvenna tryggði sér keppnisrétt í Lands- bankadeild kvenna sumarið 2008. Liðið vann deildina, sigraði Aft- ureldingu í úrslitaleik. Fjögur lið leika því í efstu deild knattspyrn- unnar næsta sumar, HK-Víkingur og Breiðablik í efstu deild kvenna og HK og Breiðablik í efstu deild karla. HK-Víkingur í efstu deild Kópavogsliðin Breiðablik og HK verða bæði áfram í úrvalsdeild í knattspyrnu karla, Landsbanka- deildinni. Þetta var ljóst eftir síð- ustu umferðina þar sem HK tapaði fyrir Val sem varð Íslandsmeistari með sigrinum, en Breiðablik gerði 2-2 jafntefli við Fram. Í 1. deild féllu Víkingar eftir æsispennandi botnbaráttu en HK, Fram og KR sluppu með skekkinn, öll með 16 stig, en HK er í 9. sætinu þar sem markamismunurinn var verstur hjá þeim. Breiðablik hafnaði í 5. sæti með 24 stig. Upp í úrvalsdeild úr 1. deild koma Grindavík, Þrótt- ur og Fjölnir en fjölgað verður í 12. lið í úrvalsdeild sumarið 2008. Áhorfendamet var sett í sum- ar í Landsbankadeildinni, en alls komu 119.644 á leikina 90, eða 1.324 að jafnaði á hvern leik. Kópavogsliðin bæði áfram í úrvalsdeild Kópavogsliðin skildu jöfn 1-1 í næst síðustu umferðinni. Hér ganga markmenn liðanna til leiks, þeir Casper Jacobsen og Gunnleifur Gunn- leifsson. N1 verður aðalstyrktaraðili HSÍ næstu árin og mun Íslands- mót karla og kvenna fá nafnið N1-deildin. Fulltrúar fyrirtækisins og HSÍ skrifuðu í dag undir sam- starfssamning þessa efnis að við- stöddum formönnum félaganna og fyrirliðum. Guðmundur Ingv- arsson, formaður Handknattleiks- sambands Íslands, segir að samn- ingurinn við N1 marki ákveðin tímamót og gefi sambandinu færi á að sækja duglega fram, bæði í kynningu á Íslandsmótinu og í faglegri og samræmdri umgjörð leikja. “Takmarkið er að fá sem flesta til að mæta á leiki í N1-deildinni, bæði í karla- og kvennadeildinni. Við höf- um meira fé til ráðstöfunar til kynn- ingarmála en áður og ætlum að nýta það vel,” segir formaður HSÍ. Hermann Guðmundsson, for- stjóri N1, segir mikla möguleika felast í samstarfi við HSÍ. “Það er nú einu sinni þannig að handbolti er sú íþrótt sem við Íslendingar erum bestir í, rétt eins og við hjá N1 teljum okkur vera best í okkar deild. Við hlökkum til að taka þátt í að auka útbreiðslu handboltans og að gera íþróttina sýnilegri. Það eru til dæmis skemmtileg tækifæri til þess á þjónustustöðvum okkar. Þar munu stuðningsmenn liðanna geta hist og byrjað að pumpa upp stemmninguna fyrir leik. Hvar sem handbolti er spilaður, þar er N1 stöð í nágrenninu!,” sagði Hermann Guðmundsson. Höfuðstöðvar N1 eru við Dalveg- inn í Kópavogi, en fyrirtækið varð til við samruna Bílanausts, Olíufé- lagsins ESSO og fleiri fyrirtækja. Við Dalveginn er yfirstjórn, sölustarfið, innkaup, fjármál og mannauðssvið. Í Kópavogi rekur N1 þjónustumið- stöð og smurstöð við Stórhjalla, bílavöruverslun á Smiðjuvegi og EGÓ-bensínstöðvar við Salaveg, Hæðarsmála og Smáralind. Íslandsmót karla og kvenna í handbolta heita N1-deildin - segir Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Einar Árni Jóhannsson, þjálfari mfl. Breiðabliks í körfubolta. Landsliðskonurnar Rut, Arna Sif, Auður W. Og Ólöf Kolbrún. Fjórar HK stelpur með A-landsliðinu

x

Kópavogsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.