Bændablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 7

Bændablaðið - 11.09.2014, Qupperneq 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 11. september 2014 umarhátíð Þistilfirðinga, Kátir dagar, sem haldin var upp úr miðjum júlí síðastliðinn, er hátíð hlaðin menningarlegum uppákomum. Efnt var til hagyrðingamóts og þá fengnir til leiks afreksmenn þeirrar íþróttar. Þetta sinnið sátu við borð heimamennirnir Jóhannes á Gunnarsstöðum og Ágúst í Sauðanesi. Aðfengnir afreksmenn voru þeir Björn Ingólfsson frá Grenivík og Hjálmar Freysteinsson frá Akureyri. Pétri Péturssyni var og ætlað sæti, en náði ekki til móts í tæka tíð. Að vanda stýrði Birgir Sveinbjörnsson hagyrðingum. Næstu vísnaþættir verða helgaðir þessum viðburði, en hér er fyrst framlag Jóa á Gunnarsstöðum. Þó kominn ég sé á efri ár enn finnst mér vera gaman, en viðbragðsseinni, í vöngum grár og veðurbarinn í framan. Engan finn ég þó í mér beyg, ekki róðurinn þungur. Og þegar ég held á fullum fleyg finnst mér ég vera ungur. Þá fékk Jói að yrkja um sitt uppáhaldsefni. Guðni Ágústsson varð fyrir valinu: Á bændum hafði tröllatrú og talaði af fjöri. Strípaður hann stendur nú steiktur í írsku smjöri. Birgir stjórnandi upplýsti, að hann á sínum manndómsárum hefði verið í síld á Raufarhöfn. Hvergi sæist þó svipmót hans meðal íbúa þar: Á Raufarhöfn hann slag í slag sló í púkk með konum. Er að harma enn í dag að engin fékk við honum. Um sessunaut sinn, Hjálmar Freysteinsson, orti Jói: Ekki Hjálmar er að flíka öllu sem hann kann og veit. Fágætt er að finna slíka sem fæddir eru í Mývatnssveit. Gústi á Sauðanesi fékk líka vísu: Að verkum Guðs ég varla finn, víst þó á mig taki, að hann skapaði Ágúst minn alveg í tímahraki. Björn Ingólfsson fékk eftirfarandi: Vinalegt viðmót hefur, og vísurnar streyma frá‘onum, en Björn hann er bragðarefur og betra að vara sig á‘onum. Birgir stjórnandi lagði sig í framkróka við að spana þá saman Gústa og Jóa. Næstu tvær vísur Jóa tengjast því uppgjöri: Þistlar alltaf fara fljótt í forystuna glaðir. En Langnesingar löngum þótt latrækir og staðir. Oft sig hafa af ýmsu stært en illa virðast meta, það að hafa af Þistlum lært það litla sem þeir geta. Eins og greinir í upphafsorðum þáttarins, þá forfallaðist Pétur Pétursson. Þurfti nauðsynlega til hestaferðar inn á Hveravelli. Ekki var það öllum harmsefni, en Hjálmar Freysteinsson saknaði þó kollega síns: Pétur hestaferðir fer; finnst mér einhvern veginn, að skárra væri að haf‘ann hér og hrossin yrðu fegin. Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggd1@gmail.com Líf og starf MÆLT AF MUNNI FRAM S Norrænir bændur vilja efla stöðu fjölskyldubúa Forystumenn norrænna bændahreyfinga funduðu á Íslandi Bændasamtök Íslands stóðu í lok ágúst fyrir fundi samtaka Norrænna bændasamtaka (NBC) á Hótel Sögu. Gestir voru formenn allra systursamtaka á Norðurlöndum eða varaformenn ásamt öðrum framámönnum úr félagskerfinu, framkvæmdastjórum og lykil- starfsmönnum sem starfa að félagspólitískum málum. Umræðuefni fundarins voru meðal annars þróun lífhagkerfisins, viðskiptasamningar með búvörur, ár fjölskyldubúsins og önnur mál sem efst eru á baugi í starfi norrænna bænda. Fundir sem þessir eru haldnir reglulega en þjóðirnar skiptast á að hýsa gestina. Að þessu sinni voru forystumenn ungra bænda á Norðurlöndum með í för og funduðu þeir sérstaklega um sín málefni við þetta tækifæri. Ályktun um fjölskyldubúið var samþykkt á fundinum og er hún birt hér undir. Í lok fundar var haldið í kynnisferð um Suðurland þar sem farið var í höfuðstöðvar MS á Selfossi, kúabúið Bryðjuholt og endað í Friðheimum þar sem hópurinn snæddi tómatsúpu og brá sér á hina vinsælu hestasýningu á hringvellinum í Friðheimum. Landið skartaði sínu fegursta í frábæru veðri. Árið 2014 er ár fjölskyldubúsins hjá Sameinuðu þjóðunum. Með því vilja Sameinuðu þjóðirnar leggja áherslu á mikilvægt hlutverk fjölskyldubúsins er varðar matvælaöryggi og draga úr fátækt, bæta nýtingu náttúruauðlinda og efla sjálfbæra svæðisbundna þróun. Bændur á fjölskyldubúum eru mikilvægir hlekkir á sínu svæði, þeir nota tekjurnar í miklum mæli á nálægum eða svæðisbundnum mörkuðum og taka þannig þátt í atvinnusköpun bæði innan landbúnaðar og í öðrum greinum. Sameinuðu þjóðirnar hvetja ríkisstjórnir um allan heim til að móta stefnu og að byggja upp löggjöf og stofnanir sem styðja við fjölskyldubúskap. 90% búa rekin af fjölskyldum Könnun í 93 löndum sýnir að yfir 90% af búum eru rekin af fjölskyldum. Á Norðurlöndunum er búreksturinn aðallega með þessum hætti. Þetta stuðlar til lengri tíma að sjálfbærari framleiðslu þar sem bóndinn á sjálfur jörðina og fær tekjurnar af rekstrinum. Samvinnufélög eru mjög tengd fjölskyldubúskap. Með því að bindast böndum í samvinnufélögum verða bændurnir hluti af stærri heild við verðmætasköpun sem tengist matvælaframleiðslu og hagnaðurinn mun í miklum mæli leiða til svæðisbundinnar þróunar atvinnulífs. Um allan heim er sótt að fjölskyldubúskapsforminu. Það gerist meðal annars í gegnum verri aðgang að jarðnæði, breytingar á innlendri stefnumótun, vegna aukinnar þarfar á fjármagni og veikrar stöðu bóndans í virðiskeðjunni. Norrænir bændur og samvinnufélög fagna ári fjölskyldubúsins og deila baráttu Sameinuðu þjóðanna um að vekja athygli á og styrkja fjölskyldubúið. Við viljum reka og þróa fjölskyldubúin í framtíðinni. Formannaráð Norrænna bænda hvetur viðkomandi ríkisstjórnir til að styðja við fjölskyldubúið á eftirfarandi hátt: • Styrkja pólitísk og efnahagsleg úrræði sem byggja upp og gera fjölskyldubúin arðvænleg • Viðhalda löggjöf sem auðveldar rekstur fjölskyldubúa • Forgangsraða fjármögnun og stuðningi til fjölskyldubúsins • Gera það meira aðlaðandi fyrir ungt fólk að taka við fjölskyldubúinu • Styrkja samvinnufélögin og þeirra mikilvæga hlutverk í landbúnaði Formannaráð Norrænna Bændasamtaka (NBC) eru sameiginleg samtök norrænna bænda- og samstarfssamtaka. Samtökin voru stofnuð árið 1934. Formennskunni er deilt á milli norrænu landanna en nú halda Norðmenn um formannstaumana. Ár fjölskyldubúsins Fulltrúar norrænna bænda funda reglulega um sín hagsmunamál. Á fundi B í lok ágúst var m.a. rætt um þróun lífhagker sins og viðskiptasamninga með búvörur. Á myndinni eru forystumenn norrænu bændasamtakanna ásamt fulltrúum frá hagsmunasamtökum ungra bænda á orðurlöndum. Myndir / TB Ungir bændur á orðurlöndum áttu sína fulltrúa á fundi B . Fulltrúi slands, frá Samtökum ungra bænda, Ástvaldur árusson, er lengst til hægri.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.